Fréttablaðið - 25.05.2007, Qupperneq 94
Alfreð Gíslason hefur
tilkynnt þá sautján leikmenn sem
hann hyggst nota í umspilsleikj-
unum tveimur gegn Serbum í
júnímánuði. Það er mikið í húfi
fyrir þjóðirnar - sæti á Evrópu-
mótinu í Noregi á næsta ári. Fátt
kemur á óvart í hópnum sem
kemur saman 4. júní í Tékklandi.
Þar verða leiknir tveir leikir
við heimamenn, 5. og 6. júní, áður
en haldið verður til Serbíu þar
sem fyrri leikurinn fer fram laug-
ardaginn 9. júní. Síðari leikurinn
fer svo fram á þjóðhátíðardaginn
sjálfan, 17. júní.
Alfreð velur
Serbíufarana
Í gær var dregið í riðla-
keppni úrslitakeppni landsliða
nítján ára og yngri, sem fer fram
hér í sumar.
Það verður erfitt verkefni sem
bíður íslensku stúlknanna því
þær drógust í riðil með Noregi,
Danmörku og Svíþjóð.
Í hinum riðlinum eru lið Pól-
lands, Englands, Spánar og
Frakklands.
Norðmenn verða fyrstu and-
stæðingar Íslands en keppnin
hefst 18. júlí.
Gríðarsterkur
íslenskur riðill
Bandaríski bakvörður-
inn Justin Shouse mun spila áfram
með Snæfelli í Iceland Express
deild karla í körfubolta og verður
því óbreytt lið í Hólminum sem er
sögulegt fyrir vestan.
„Við erum búnir að gera munn-
legt samkomulag við hann um að
hann framlengi við okkur,“ sagði
Daði Sigþórsson, formaður Körfu-
knattleiksdeildar í samtali við
Fréttablaðið í gær.
Shouse var með 17,8 stig, 5,5
stoðsendingar og 2,9 stolna bolta
að meðaltali í deildarkeppninni
síðasta vetur en skoraði 16,1 stig
og gaf 7,1 stoðsendingu í leik í úr-
slitakeppninni, þar sem Snæfell
tapaði í oddaleik í undanúrslitum
fyrir þá verðandi Íslandsmeistur-
um KR-inga.
Snæfellingar sjá á eftir Martin
Thuesen sem hefur gert samning
við sitt gamla félag Bakken Bears.
Það er ekki stefnan að fylla í hans
skarð.
„Við erum ekki að leita að nýjum
leikmanni en við gætum tekið inn
mann ef hann dettur upp í hend-
urnar á okkur. Við erum með þræl-
sterkan hóp þó að við myndum ekki
bæta við okkur manni. Við spiluð-
um 90% af tímabilinu í fyrra með
þetta lið og stóðum okkur ágæt-
lega,“ segir Daði sem er spennt-
ur fyrir því hvernig Snæfellsliðið
kemur til leiks í haust.
„Það hefur aldrei gerst hér í
Hólminum að við höfum hald-
ið óbreyttu liði. Við höfum allt-
af verið á byrjendareit á haust-
in. Liðið er á fullu í lyftingum og
látum núna. Það hlakka allir mikið
til næsta veturs og sjá hverju
sumaræfingarnar skila sér því við
höfðum aldrei áður haft tækifæri
til að nota sumarið,“ sagði Daði að
lokum.
Sama lið í Hólminum í fyrsta skipti
Hermann Hreiðarsson
gekk í gærkvöld frá tveggja ára
samningi við enska úrvalsdeild-
arliðið Portsmouth. Hermann
gekkst undir læknisskoðun í gær
sem hann stóðst og skrifaði undir
samninginn að henni lokinni.
Fréttablaðið náði tali af Ólafi
Garðarssyni, umboðsmanni Her-
manns, rétt áður en blaðið fór í
prentun og staðfesti hann þetta.
Aðspurður sagði Ólafur að Her-
manni hefðu staðið margir aðrir
kostir til boða en hann hefði lang-
að til að spila undir stjórn Harry
Redknapp hjá Portsmouth.
„Redknapp hefur lengi verið
hrifinn af Hermanni og reyndi
mikið að fá hann til sín fyrir fjór-
um árum þegar Hermann fór til
Charlton,“ segir Ólafur. Hann vildi
ekki ræða innihald samningsins
en lét þess þó getið að Hermann
fengi fín laun.
Í fyrra birtust fréttir af því að
Hermann fengi 330 milljónir í árs-
laun frá Charlton og má búast við
að laun hans lækki í það minnsta
ekki hjá Portsmouth.
„Ástæðan fyrir því að ég samdi
við Portsmouth er sú að Redknapp
var mjög ágengur. Mér líst vel á
hann sem þjálfara og ber virðingu
fyrir honum. Það er frábært að fá
tækifæri til að vinna með honum.
Það eru stórir hlutir að gerast hjá
Portsmouth og raunhæft að stefna
á Evrópusæti,“ sagði Hermann
kampakátur við Fréttablaðið í
gærkvöldi. Er þetta hans síðasti
stóri samningur? „Ég lít ekki svo á
málið. Ég tek bara eitt ár í einu. Ef
ég held heilsu og hef áfram gaman
af þessu er aldrei að vita hvað ég
held lengi áfram.“
Hermann verður 35 ára þegar
nýi samningurinn rennur út vorið
2009, en Ólafur sagðist ekkert geta
sagt til um hvort Hermann myndi
halda heim á leið þá. „Það skipt-
ir auðvitað máli hvort hann verð-
ur heill og hvernig honum gengur.
Annars þýðir ekkert að hugsa um
það núna,” segir Ólafur.
Ljóst er að Portsmouth ætlar
sér stóra hluti á komandi tímabili
en liðið hafnaði í 9. sæti á nýliðnu
tímabili. Franski varnarmaðurinn
Sylvain Distin gekk í raðir liðsins í
vikunni og von er á fleiri sterkum
leikmönnum. Hermann, sem lék
32 leiki með Charlton í ensku úr-
valsdeildinni á nýafstöðnu , hefur
leikið í Englandi undanfarin tíu
keppnistímabil.
Hann nýtur þessa vafasama
heiðurs að hafa fallið fjórum sinn-
um úr ensku úrvalsdeildinni, fyrst
með Crystal Palace, síðan Wimb-
ledon, Ipswich og loks með Charl-
ton nú í vor.
Landsliðsmaðurinn Hermann Hreiðarsson hefur ákveðið að ganga í raðir enska
úrvalsdeildarfélagsins Portsmouth en hann var laus allra mála hjá Charlton þar
sem það féll. Hermann skrifaði undir samning í gærkvöldi.
Logi vill vera áfram í spænska boltanum
Arsenal ætlar ekki að
nýta sér forkaupsréttinn á Julio
Baptista sem hefur verið í láni frá
Real Madrid á tímabilinu. Bapt-
ista skoraði tíu mörk í 35 leikj-
um en þar af komu aðeins þrjú í
24 leikjum í úrvalsdeildinni. Jose
Antonio Reyes er í láni hjá Real
í staðinn en ákvörðun um fram-
tíð hans hefur ekki verið tekin
þar sem tímabilinu á Spáni er enn
ekki lokið.
Stóð ekki undir
væntingum
„Ég verð ljóshærður
maður,“ sagði Gennaro Gattuso
við Gazzetta dello Sport eftir
sigur AC Milan á Liverpool í úr-
slitum Meistaradeildar Evrópu.
„Ég gerði veðmál um að ég myndi
lita hárið mitt ljóst ef við mynd-
um vinna Meistaradeildina. En
það verður að fá að bíða aðeins,“
sagði hinn dökk- og stutthærði
Gattuso.
Gattuso verður
ljóshærður
Michael Owen verður í
byrjunarliði enska B-landsliðsins
sem mætir Albaníu á Turf Moor,
heimavelli Burnley, í dag. Þetta
er í fyrsta sinn sem hann spilar
með landsliðinu síðan hann sleit
krossbönd í hné á HM í Þýska-
landi síðasta sumar.
Ef hann kemst klakklaust í
gegnum leikinn kemur til greina
að hann spili með aðalliði Eng-
lands gegn Eistlandi í undan-
keppni EM 2008 í næsta mánuði.
Owen verður í framlínunni með
Alan Smith í dag.
Owen snýr aft-
ur í landsliðið
Faðir Arjen Robben
sagði við þýska dagblaðið Bild
í gær, að svo gæti enn farið að
sonur sinn gengi til liðs við Bay-
ern München. Degi áður sagði
Robben eldri, að leikmaðurinn
myndi skrifa undir nýjan samn-
ing hjá Chelsea.
„Við höllumst enn að því að
semja við Chelsea en erum þó
ekki enn sammála um öll smáat-
riði,“ sagði Robben eldri.
Gæti enn farið
til Bayern