Fréttablaðið - 25.05.2007, Side 102

Fréttablaðið - 25.05.2007, Side 102
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Það ætti að leyfa almenna hænsnarækt, því hún er bæði holl og góð fyrir andlegu hlið- ina.“ „Nú verð ég að passa mig á bæði bílum og brennivíni,“ segir tón- listarmaðurinn Eyþór Arnalds sem hefur endurheimt bílpróf sitt eftir hrakfarir á síðasta ári. Að auki mun hann á næstunni hella sér af fullum krafti út í bæjarpól- itíkina í Árborg. Eyþór var, sem kunnugt er, sviptur ökuréttindum sínum fyrir ári síðan eftir að hafa keyrt á ljósastaur á Kleppsvegi og ekið af vettvangi. Slysið kom á versta tíma fyrir hann enda voru þá sveitarstjórnarkosningar fram undan í landinu og Eyþór skip- aði efsta sætið á lista Sjálfstæð- isflokksins í Árborg eftir glæsi- legan sigur í prófkjöri flokksins. Málið vakti mikla athygli og var í kastljósi fjölmiðlanna svo dögum skipti og var talað um að ferill Ey- þórs sem stjórnmálamaður væri úti. En Eyþór stóð af sér storm- viðrið. Í kjölfar atburðarins dró hann sig út úr kosningabaráttunni og lýsti því yfir að hann hyggðist fara í meðferð. Sjálfstæðisflokk- urinn vann hins vegar yfirburð- arsigur í kosningunum en Eyþór taldi sig ekki stætt á því að taka sæti í bæjarráði fyrr en að hann væri búinn að taka út sína refs- ingu. Og því stendur Eyþór í raun á tvennum gleðilegum tímamót- um því auk þess að vera akandi aftur, situr hann sinn fyrsta bæj- arráðsfund í næstu viku. „Ég get ekki annað sagt en að ég hlakki til að koma inn í starfið af fullum krafti, reynslunni ríkari,“ segir Eyþór. Eins og lesa má í Sirkus, fylgiblaði Fréttablaðsins í dag, hefur oddvitinn verið duglegur í heilsuræktinni og hann býst ekki við því að bílprófið eigi eftir að eyðileggja það góða átak fyrir sér. „Ég ætla ekki að leyfa bílnum að hrifsa heilsuræktina úr höndun- um á mér,“ sagði Eyþór. „Ég hef fengið ótrúlega góða tilfinningu fyrir þessum tveimur jafnfljótu og þeir sjá manni fyrir góðri jarð- tengingu,“ segir Eyþór. „Auk þess finnur maður einhvern veginn miklu betur fyrir þeim. Þá má ekki gleyma því hversu mikill meng- unarvaldur bíllinn er, því það er varasamt að láta hann þjóna sér of mikið að ekki sé nú talað um út- blásturinn,“ segir Eyþór. „Þetta er besta ævisaga sem ég hef lesið,“ sagði hinn virti gagn- rýnandi Marta Norheim sem fjall- aði um ævisögu Halldórs Lax- ness eftir Halldór Guðmundsson í þættinum Kulturnytt í Norska ríkisútvarpinu á miðvikudag. Hóf hún umfjöllun sína á orðunum: „Ævisaga þessi er svo vel hugsuð og vel skrifuð frá fyrstu setningu að maður sogast inn í söguna og óskar þess að hún endist lengi.“ Tiden gaf bókina út í þýðingu þeirra Silje Beite Løken og Ine Camilla Bjørnsten, og bauð for- lagið höfundinum til Noregs að vera viðstaddur útgáfuna. Af því tilefni efndu forlagið og ís- lenska sendiráðið til móttöku fyrir rit- höfunda, útgef- endur og fleira áhugafólk í bú- stað íslenska sendiherrans á miðvikudagskvöldið. Jostein Ga- arder rithöfundur hélt þar tölu. Halldór Guðmundsson var stadd- ur úti í Noregi þegar Fréttablaðið náði af honum tali og var hann að vonum kátur. „Þetta er auðvitað hundgaman. Fyrsta erlenda útgáfan og fyrsta erlenda gagnrýnin. Maður veit ekki hvernig þetta virkar á menn utan Íslands og ég bíð spenntur eftir því.“ Bókin er svo væntanleg í Danmörku, Svíþjóð, Þýskalandi og Englandi, auk Noregs. „En þetta snýst ekki um mína persónu heldur er þetta tæki- færi á að efla lestur á Lax- ness hérna. Hann hefur verið á miklu „swingi“ erlendis en kannski síst í Noregi. Gaman hvað þeir taka honum vel nú eins og Halldór var nú lítið fyrir Norðmenn. Sjálfstætt fólk var samhliða endurút- gefið hér,“ segir Halldór. Halldór slær í gegn í Noregi Það var mikið um dýrðir um borð í seglskútu Björgólfs Thors Björ- gólfssonar í Cannes um liðna helgi. Athafnamaðurinn kunni var nýkominn á kvikmyndahátíð- ina þar í borg þegar hann bauð til glæsilegrar veislu. Gestalist- inn var ekki af lakara taginu, allir þekktustu Hollywoodleikararnir sem staddir voru á kvik- myndahátíðinni. Sam- kvæmt upplýsingum Fréttablaðsins voru þekktustu nöfnin í veislu Björgólfs kær- ustuparið Angelina Jolie og Brad Pitt og góðvinur þeirra, hjartaknúsarinn George Clooney. Athygli vakti að allir þeir þekktu gestir sem boðið var í veisluna létu sjá sig en það mun ekki vera algengt á stórhátíð sem þessari. Kristín Ólafsdóttir, unnusta Björgólfs, er stödd á kvikmynda- hátíð- inni í Cannes til að kynna sig og verk sín. Kristín er fulltrúi Íslands á heimildar- myndahluta hátíðarinnar. Hún framleiddi sem kunnugt er myndirnar How Do You Like Iceland? og Love is in the Air og eru þær sýndar á hátíðinni. Veisla Björgólfs og Kristín- ar var haldin á skútu þeirra, The Parsifal. Um er að ræða 97 feta glæsifley sem þótti sóma sér vel þar sem hún lá fyrir akkeri í höfninni í Cannes innan um aðrar glæsi- snekkjur. Þess má reyndar geta að um þess- ar mundir er Björgólf- ur með aðra snekkju í smíðum sem á að leysa The Parsifal af. Íslensku framleiðendurnir Leif- ur Dagfinnsson og Hjörtur Grét- arsson hjá True North, sem Björ- gólfur á hlut í, voru á meðal gesta í veislunni. Þeir voru auk þess svo heppnir að fá að gista á segl- skútunni meðan á dvöl þeirra í Cann- es stóð. Jolie, Pitt og Clooney í partíi Björgólfs
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.