Fréttablaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 64
*
á
v
ið
u
m
s
já
lfs
ki
p
ta
b
íla
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
-
3.445.000 kr.
KIA • Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is
KIA Sorento – fullbúinn alvörujeppi
KIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU.
NÚ ER
RÉTTI TÍMINN
TIL AÐ SKIPTA
KIA Sorento með ríkulegum staðalbúnaði
• hátt og lágt drif • 5 þrepa sjálfskipting
• ESP stöðugleikastýring • öflug 170 hestafla dísilvél
• ný og glæsileg innrétting • hraðastillir (Cruise Control)*
• 16" álfelgur • þakbogar
• vindskeið og þokuljós • 3.500 kg dráttargeta
Sorento hefur slegið í gegn um allan heim og eignast
dygga fylgismenn á Íslandi. Það er ekki að ástæðulausu
að Sorento er orðinn einn vinsælasti jeppi landsins, enda
líklega bestu jeppakaupin í dag.
Sorento 2,5 EX dísil, beinskiptur 3.445.000 kr.
Sorento 2,5 EX dísil, sjálfskiptur 3.645.000 kr.
Keyrðu inn í sumarið á nýjum Sorento
Sumarpakki
Dráttarbeisli, sumar- og
vetrardekk innifalin í verði
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is
Um súludans og vændi virðist oft ekki mega tala um án þess
að sjálfskipaðir verndarar frelsis
stígi fram. Þeir vilja vernda þessar
atvinnugreinar og hafa jafnan bent
á, máli sínu til stuðnings, að vændi
sé til að mynda ein elsta atvinnu-
grein heims. Fólk eigi að hafa rétt
til að gera það sem það vill við lík-
ama sinn. Ég hef aldrei áttað mig á
því að það sé einhver rökstuðning-
ur að vændi hafi lengi verið til í
mannlegu samfélagi. Margt fleira
hefur lengi verið til sem ekki líðst
nú á tímum. Nefnum sem dæmi
þrælahald. Ekki verjum við frelsi
til þrælahalds. Boðberi frelsis
myndi líklega hlaupa til og segja
að vændi og þrælahald séu ekki
sambærileg. Því næst myndu þeir
benda á að stúlkurnar sem hingað
koma til lands til að dansa sæju oft
fjölskyldu sinni farborða í heima-
landinu þar sem ekkert væri fyrir
þær að hafa.
þræl yrði gefið frelsi en hann
teldi sig ekki hafa í neitt hús að
vernda annað en hjá húsbónda
sínum væri frelsi hans lítils virði.
Ef stúlka telur sig ekki hafa nein
önnur úrræði í veröldinni en að
selja líkama sinn, hvert er þá
frelsi hennar?
Íslandi eru margir sem dálæti
hafa á listdansi, eins og súludans
hefur oft verið kallaður. Til að fá
listrænni þrá sinni fullnægt eru
menn tilbúnir að eyða tugum og
hundruðum þúsunda í að kaupa
drykki handa listamönnunum og
til að fá að horfa á þá framkvæma
gjörning sinn í einrúmi. Miðað við
þann mikla fjölda listunnenda sem
tilbúnir eru að veita háum fjár-
hæðum í að fylgjast með ómennt-
uðum dönsurum næturklúbbanna
segir mér hugur að sýningar
menntaðra dansara hjá Dans-
flokknum gangi vel.
vita allir að vændi fer fram
á Íslandi og að hægt er að kaupa
konur inni á dansstöðunum. Þeir
sem það gera fría sig samt jafn-
an allri ábyrgð með því að telja
sér trú um að með þúsundköll-
unum með þeir rétta stúlkunum
geti þær borgað leigu, brauðfætt
fjölskyldur sínar og kostað sig í
nám. Þannig sannfæra þeir sig
um að þeir séu velgjörðarmenn
stúlknanna. Ægilega góðir.
danshaldari á Ís-
landi hefur oft greint frá því að
hann viti ekkert um vændi. Auð-
vitað segir hann það, hvað annað.
Við höfum svo oft heyrt danshald-
ara halda þessu fram, þvert ofan
í allar aðrar upplýsingar. Þegar
blaðamenn Ísafoldar sögðu aðra
sögu en þá sem við vorum orðin
vön að heyra frá eigendum stað-
anna og bentu á að lánsömu stúlk-
urnar eru jafnan kallaðar druslur
og hórur varð fólk hissa. Jafnvel
þótt það hefði aldrei haldið neitt
annað.
markaði viss tímamót
því loksins voru orð stúlknanna
tekin fram yfir orð yfirmanns
þeirra. Þær voru sjálfar spurðar
hvort hægt væri að kaupa kynlíf
og þær voru sjálfar spurðar hvort
þeim þætti þetta gaman. Þær
höfðu aðra sögu að segja en yfir-
maður þeirra.
Velgjörðarmenn
fátækra stúlkna