Fréttablaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 36
12 sport
HVAÐVEISTU
Svör:1. Hann ber millinafnið Benedikt. 2. Hann
heitir Ólafur og þjálfar Fram. 3. Hann skoraði níu
mörk í 41 landsleik. 4. Hann lék með Lens og Cannes.
5. Hann byrjaði hjá sænska liðinu Skövde. 6. Hann
stýrði eistneska landsliðinu 1995 til 1999. 7. Hann
lék undir stjórn Gerards Houllier, fyrrum stjóra
Liverpool. 8. Þeir hafa unnið níu af 22 leikjum.
1. Hvaða millinafn ber hann?
2. Hvað heitir bróðir hans sem
þjálfar lið í Landsbankadeildinni?
3. Hvað skoraði hann mörg mörk
fyrir íslenska A-landsliðið?
4. Með hvaða tveimur frönsku
liðum lék hann?
5. Hvar hóf hann þjálfaraferil sinn?
6. Hvaða landsliði hefur hann stýrt?
7. Undir stjórn hvaða fræga þjálfara
lék hann hjá Lens?
8. Hvað hafa KR-ingar unnið marga
leiki í Landsbankadeildinni undir
stjórn Teits síðan hann tók við?
» UM TEIT ÞÓRÐARSON?
» TEITUR ÖRLYGSSON
Teitur Örlygsson lék tuttugu
tímabil með Njarðvíkingum
og verður að teljast goðsögn
hjá félaginu sem hann
þjálfar nú. Teitur lék 406 leiki
með þeim grænklæddu
og skoraði alls 6.597 stig
en hann lék í eitt tímabil
með Larissa í Grikklandi,
veturinn 1996/1997. Teitur
var beðinn um að rifja upp
stærstu stundina á ferli
sínum en hann átti í miklum
vandræðum með að velja
atvik, sem er ekki skrýtið
miðað við langan og glæstan
feril. Teitur er sigursælasti
leikmaður úrvalsdeildarinnar
í körfubolta frá upphafi með
tíu titla í farteskinu. Á endan-
um stóðu tvær stundir upp
úr, sú fyrri í Grikklandi.
„Þetta var einn af síðustu leikjunum okkar í deildinni og við vorum
nýbúnir að bjarga okkur frá falli. Við vorum að spila á móti Panathinaikos
sem þá var Evrópumeistari og í baráttu við Olympiakos um titilinn í
Grikklandi. Höllin okkar var alveg troðfull. Leikstjórnandinn okkar var besti
vinur minn þarna úti. Hann komst frá sínum manni, dró annan mann til
sín og ég beið tilbúinn með hendurnar til að skjóta. Karlgreyið heyrði ekki
í mér og boltann fékk ég aldrei. Þarna hefði ég fengið skot á síðustu sek-
úndunum til að leggja Evrópumeistarana að velli. Þetta atvik hefur setið í
mér lengi enda lét ég félaga minn heyra það eftir þetta,” sagði Teitur, sem
síðan fékkst til að velja eitt atvik frá glæstum ferli sínum með Njarðvík.
„Minnisstæðast er kannski þegar við unnum Keflavík í framlengingu í
bikarúrslitunum 1999 í Laugardalshöllinni. Hermann Hauksson jafnaði
á síðustu sekúndunum í 88-88 eftir að Keflvíkingar voru níu stigum yfir
þegar ein og hálf mínúta var eftir. Margir stuðningsmenn okkar voru farnir
úr Höllinni, þeir hreinlega gátu ekki horft upp á Keflvíkingana fagna sigri,
en komu hlaupandi aftur inn þegar við jöfnuðum. Keflvíkingarnir gerðu
ótrúlega mörg mistök á síðustu mínútunum, þeir fengu dæmd á sig skref,
hentu boltanum út af, brenndu af vítum og gáfu okkur þetta hreinlega
enda gráta þeir þetta enn í Keflavík. Þeir liggur við gáfust upp og við
tókum þetta nokkuð örugglega í framlengingunni,” sagði Teitur brosandi
yfir góðri minningu. - hþh
STÆRSTA STUNDIN
HVAÐ Á ÉG
AÐ SEGJA
GUÐJÓNI?
Helgi Pétur Magnússon, varn-
armaður ÍA, er heldur beygð-
ur og boginn á þessari mynd
sem Hörður Sveinsson, ljós-
myndari Sports, tók af honum
í leik Fylkis og ÍA í Lands-
bankadeildinni í fótbolta 28.
maí síðastliðinn.