Fréttablaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 62
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Ég held ég verði að segja Vín
og skel. Sjávarfangið heillar.“
Tónlistarmaðurinn Gísli Kristjáns-
son á lag í kvikmynd franska leik-
stjórans Luc Besson, Angela-A,
sem var tekin til sýninga í Banda-
ríkjunum þann 25. maí síðastlið-
inn.
„Ég var að vinna með stelpu
í Noregi, Anja Garbaric, sem
þekkir Besson vel. Þegar hann
heyrði lögin sem við lögin sem
við sömdum saman fyrir plötuna
hennar vildi hann endilega nota
þau í myndina sem hann var að
byrja á þá. Við gerðum eiginlega
plötuna og bíómyndina á svip-
uðum tíma. Hún flaug alltaf til
Frakklands til að spila fyrir hann
lögin,“ segir Gísli, sem er búsett-
ur í London en var áður í Noregi.
Lagið sem Besson notaði nefnist
Can I Keep Him en auk þess not-
aði Besson í myndinni búta úr
öðrum lögum eftir þau Gísla og
Anja. Samdi Anja jafnframt rest-
ina af tónlistinni í myndinni.
Gísli varð þess heiðurs aðnjót-
andi að hitta Besson einu sinni.
„Hann er stórhættulegur,“ segir
hann og hlær. „Fólk sem hefur
komist langt veit hvað það vill og
hvernig það vill hafa hlutina. Það
getur verið þægilegt að vinna með
svona fólki og maður þarf ekkert
að efast um að það segi það sem
það meinar.“ Á meðal kvikmynda
Besson eru The Fifth Element,
Leon, Nikita, The Big Blue og Sub-
way.
Gísli, sem er á samningi hjá út-
gáfurisanum EMI, er um þessar
mundir að undirbúa sína aðra sóló-
plötu. Sú fyrsta, How About That,
kom út árið 2004 við góðar undir-
tektir.
Gísli með lag í mynd Luc Besson
„Við vorum að gera tugmilljóna
króna samning við Egil svo þetta
er engin smá samningur,“ segir
Ari Edwald, forstjóri 365 miðla,
sem hefur farið þess á leit við
sjónvarpsmanninn Egil Helgason
að hann efni ráðningarsamning
sem hann telur að þeir hafi gert.
Málið hefur vakið mikla athygli
síðustu daga en á föstudaginn til-
kynnti Egill, sem stýrt hefur Silfri
Egils á Stöð 2 undanfarin ár, að hann
hefði ákveðið að færa sig um sig set
yfir á RÚV. Það telur Ari vera brot
á samningi þeirra og hefur fyrir-
tækið leitað réttar síns vegna máls-
ins. Allir aðilar
standa fast á
sínu og svo
virðist sem
málið verði
leitt til
lykta í gegn-
um lögfræð-
inga eða jafn-
vel dómstóla.
„Ef við
myndum snúa þessum samskipt-
um við, það er að ég hefði ráðið
hann til starfa og svo dregið það
til baka, hefði ég aldrei komist
upp með það. Hvernig myndi það
samfélag líta út þar sem enginn
stendur við sín orð?“ spyr Ari og
vísar í tölvupóstsamskipti hans og
Egils sem fram koma í bréfi sem
lögfræðingur 365 hefur sent þeim
síðarnefnda.
Ari segir að ef Egill hefði viljað
losna undan samningi sínum við
365 miðla hefði hann átt að koma
hreint fram. „Það sem mér sárn-
ar mest er að Egill neitaði því hinn
22. maí að vera að semja við RÚV
og sagði að allt stæði eins og
stafur á bók í okkar sam-
skiptum,“ útskýrir Ari.
Afstaða Egils er óbreytt
en hann á þá ósk heitasta
að farsæl lausn fáist á mál-
inu og allir geti verið vinir á
endanum. Egill er hins vegar
við öllu búinn og hefur
ráðið sér lögfræðing.
„Við munum funda á
morgun [í dag] en ég
veit hins vegar ekkert
hvernig framhaldið
verður. Ég hef aldrei áður þurft að
leita til lögfræðinga á minni ævi,“
segir Egill.
Páll Magnússon útvarpsstjóri
telur viðbrögð 365 við brotthvarfi
Egils afar sérkennileg en ítrekar
að það sé ekki Ríkisútvarpsins að
velta því fyrir sér hvað hafi farið
á milli Egils og forstjóra 365 í að-
draganda málsins. Páll skilur ekki
þegar fólk er þvingað til vinnu
með fógetavaldi.
„Mér finnst afskaplega sér-
kennilegt þegar fólk vill hætta í
vinnu sinni, að vinnuveitandi skuli
hanga á því fólki eins og hundur
á roði. En menn þurfa auðvitað að
fljúga eins og þeir eru fiðraðir,“
segir Páll.
Spurður hvort Ríkis-
útvarpið muni styðja við
bakið á Agli í þeirri deilu
sem upp er komin sagði Páll
að stofnunin styddi alltaf sitt
starfsfólk.
„Við lentum því miður á báti sem
hafði aldrei áður verið róið á.
Hann var ekki þannig búinn að við
næðum okkar besta hraða og þær
færeysku höfðu því betur sem
fyrr,“ segir Egill Örn Jóhannsson,
framkvæmdastjóri bókaútgáfunn-
ar JPV, sem þurfti ásamt liði sínu
að láta í minni pokann fyrir fær-
eyska saumaklúbbnum Stokkun-
um í hinni árlegu róðrarkeppni
sem haldin er á sjómannadaginn.
Egill og félagar í JPV fengu þó
ágætis tíma, tvær mínútur og níu
sekúndur. En það dugði ekki til.
Færeyski saumaklúbburinn var
tuttugu sekúndum á undan.
Lið JPV átti upphaflega að vera
skipað skáldum en svo fór að að-
eins eitt mætti til leiks, Hugleikur
Dagsson. „Skáldin guggnuðu á
bátnum þannig að við þurftum að
reiða okkur á eigin starfsmenn,
sem var í fínu lagi. Við áttum sig-
urinn vísan þar til við fengum vit-
lausan bát,“ segir Egill Örn. Þó
var valinn maður í hverju rúmi
hjá JPV. Auk Hugleiks og Dags
reri Hrafn Margeirsson, fyrrver-
andi landsliðsmarkvörður, þýski
ljósmyndarinn Thorsten Henn,
Kristín Gunnarsdóttir, Ýr Gísla-
dóttir og Anna Guðrún, sem allar
starfa hjá útgáfufyrirtækinu. Sú
síðastnefnda hreppti þó stýri-
mannshlutverkið.
Egill hefur síður en svo lagt
árar í bát þótt keppnin hafi ekki
farið eins og hann óskaði sér. „Við
mætum tvíefld til leiks á næsta ári
og hefjum stífar æfingar í sumar,“
segir Egill Örn, sem hefur ekki
enn náð að landa róðrarbikarnum
eftirsótta.
Skáldin guggnuðu á bátnum