Fréttablaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 28
4 sport HVAR ER HANN NÚ? HREINN HALLDÓRSSON Hreinn Halldórsson kúluvarpari er einn af glæsilegri íþróttamönnum sem við Íslendingar höfum átt. Hreinn var þrívegis kjörinn Íþróttamaður ársins; 1976, 1977 og 1979. Hann setti setti sex Íslandsmet og kastaði lengst 21,09 metra á Stokk- hólmsleikvangi árið 1977. Hann lagði kúluna á hilluna árið 1982 og síðan hefur farið lítið fyrir honum. Sport forvitnaðist um hvað hefði drifið á daga Hreins frá því að hann hætti í kúluvarpinu. „Ég kynnist konunni minni, sem er að austan, þegar ég var fastur gestur í Múla- kaffi þar sem hún var að vinna. Þegar ég hætti í kúluvarpinu má eiginlega segja að hún hafi platað mig austur og þar hef ég verið síðan,” segir Hreinn og hlær. Hreinn hefur haft umsjón með íþróttamannvirkjum á Egilsstöðum mörg undan- farin ár og hefur það orðið ærinn starfi eftir þá miklu uppbyggingu sem átt hefur sér stað í bænum á undanförnum árum. „Ég byrjaði á því að hafa umsjón með gömlu sundlauginni en síðan hefur þetta orðið meira og meira,” segir Hreinn, sem var líka lengi ökukennari. „Nú er ég á sjálfskiptum bíl og get ekki kennt. Það er þó alltaf verið að spyrja mig, núna síðast í gær,” segir Hreinn sem á tvo syni, Geisla 22 ára og Bjarma 14 ára, með konu sinni Jóhönnu G. Þorsteinsdóttur. TÍU HANDKNATT- LEIKSMENN SEM HAFA ORÐIÐ MEISTARAR ERLENDIS 1. AXEL AXELSSON Varð meistari með Grün-Weiß Danker- sen í Vestur-Þýska- landi árið 1977. 2. ÓLAFUR H. JÓNSSON Varð meistari með Grün-Weiß Dankersen í Vestur-Þýska- landi árið 1977. 3. ÁGÚST SVAVARSSON Varð meistari með Drott í Svíþjóð 1978. 4. VIGGÓ SIGURÐSSON Varð meistari með FC Barce- lona á Spáni árið 1980. 5. ALFREÐ GÍSLASON Varð meistari með TUSEM Essen í Vestur-Þýska- landi 1986 og 1987. 6. KRISTJÁN ARASON Varð meistari með VfL Gummersbach í Vestur-Þýskalandi 1988. 7. ARON KRISTJÁNSSON Varð meistari með Skjern í Danmörku árið 1999. 8. ÓLAFUR STEFÁNSSON Varð meistari með Magde- burg í Þýska- landi árið 2001 og Ciudad Real á Spáni 2007. 9. DAGUR SIGURÐSSON Varð meistari með A1 Bregenz í Austur- ríki árin 2004, 2005, 2006 og 2007. 10. RAGNAR ÓSKARS- SON Varð meistari með Ivry í Frakk- landi árið 2007. Ágóðum degi æfa um tuttugu manns bogfimi á Íslandi. Endurnýjunin hefur verið talsverð og við höfum fengið ágætis viðbrögð við námskeiðum sem við höfum haldið. En iðkendurnir mættu að sjálf- sögðu vera fleiri,“ segir Kristmann Einarsson, formaður Bogfiminefndar ÍSÍ og besti bog- fimimaður landsins. Kristmann, sem er 32 ára, byrjaði að æfa bogfimi fyrir sjö árum. „Þetta var eitthvað sem mér fannst spennandi. Ég hef aldrei verið mikið fyrir hinar hefðbundnu vinsælu greinar eins og fótbolta og handbolta og þar sem það voru mjög fáir í þessu ákvað ég að prófa. Og sé ekki eftir því,“ segir Kristmann, sem vill ekki meina að bogahetjur á borð við Hróa Hött og Vilhjálm Tell hafi haft djúp- stæð áhrif á hann. „Pabbi las reyndar fyrir mig bókina um Hróa Hött þegar ég var yngri og kannski það hafi skilið eitthvað eftir sig,“ segir Kristmann og hlær. MIKIL ÁSKORUN Aðspurður segir Kristinn að mikla þolinmæði þurfi til að ná árangri í bogfimi. „Þetta er mikil áskorun. Fyrstu mánuðina finnur fólk miklar framfarir og ég hef sagt að fólk er til- tölulega fljótt að verða þokkalegt með bog- ann. Það er hins vegar fínstillingin sem er lengi að koma. Það er mikið haft fyrir því að verða góður og það er kannski ástæðan fyrir því að það eru ekki fleiri að æfa þessa íþrótt. Fullt af fólki gefst upp þegar það lendir á vegg og bætir sig ekkert í langan tíma. Það eru ekki margir sem hafa þessa þrautseigju. Þolinmæði er dyggð í þessu eins og svo mörgu öðru,“ segir Kristmann. FÆR HJÁLP FRÁ MAREL Kristmann vinnur dags daglega hjá Marel og hann segir stjórnendur fyrirtæksins vera draumavinnuveitendur. „Við fáum aðeins þrjá tíma á viku inni yfir vetrartímann og Marel hefur leyft mér að nota kjallara í höfuðstöðvum fyrirtækisins sem æfingahús- næði,“ segir Kristmann en hann æfir allt upp í fimmtán tíma á viku þegar mest er auk þess sem hann stundar box árið um kring til að halda sér í góðri þjálfun. Kristmann fer líka í fjölmargar æfinga- og keppnisferðir á hverju ári og það kostar frí frá vinnu. „Stjórnendurnir hafa sýnt mér mikinn skilning og í raun gert mér kleift að stunda þessa íþrótt. Þjálfarinn minn er í Hol- landi og ég fer töluvert út. Ég reyni yfirleitt að sameina keppnir og æfingabúðir í einni ferð en það er algjörlega nauðsynlegt fyrir mig að keppa erlendis. Hér heima er engin samkeppni fyrir mig. Ef ég færi ekki út til að keppa við betri menn myndi ég aldrei bæta mig,“ segir Kristmann, sem veit þó ekki hvar hann stendur í heiminum í dag. „Það er ómögulegt að segja. Minn besti árangur er 32 manna úrslit á heimsmeistaramótinu í Dan- mörku fyrir tveimur árum. Þessi íþrótt er í stöðugri þróun og ég vinn stanslaust í því að bæta mig. Það er áskorun að keppa erlendis og það heldur mér við efnið,“ segir Krist- mann en fram undan er mót á Írlandi eftir mánuð og stór mót í Hollandi í ágúst og desember. Spurður hvenær menn toppi í bogfiminni segir Kristmann allan gang á því. „Ég tel mig eiga nokkur góð ár eftir en menn geta stund- að þessa íþrótt eins lengi og sjónin er í lagi og hendurnar eru stöðugar,“ segir Kristmann. » ÞOLINMÆÐI « ER DYGGÐ Kristmann Einarsson er bestur í bogfimi á Íslandi. Hann hefur æft íþróttina í sjö ár og þarf að fara til útlanda til að fá samkeppni. EFTIR ÓSKAR HRAFN ÞORVALDSSON Kristmann Einarsson segist þurfa að leita út fyrir landsteinana að samkeppni - hún sé einfaldlega ekki til staðar á Íslandi. TUGURINN HVAÐ KOSTA GRÆJURNAR? Kristmann segir að hægt sé að fá byrjenda- búnað; boga, örvar og aukahluti, fyrir um 100 þúsund krónur. Hins vegar þurfi að panta dótið að utan þar sem enginn hafi séð hag sinn í því að flytja þennan útbúnað inn til landsins. Kristmann segir sinn eigin búnað kosta um 300 þúsund krónur. Þann búnað þurfi ekki að endurnýja mikið nema íþróttin breytist stór- kostlega. Aðalatriðið sé hins vegar hjá atvinnumönnum sem og byrjendum að útbúnaðurinn sé traustur og fólki þekki það sem það er með í höndunum. SPO RTM YN D /VA LLI 1 matsk. safieða 1 hylki. Fæst í apótekum og heilsubúðum. Ný sen din g
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.