Fréttablaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 13
 Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sat í gær fund leiðtoga evrópskra smá- ríkja um umhverfismál í boði Alberts II fursta í tengslum við smáþjóðaleikana sem hófust í Mónakó í gærkvöldi. Ítarlega var rætt um þær hættur sem fylgja yfirvofandi loftslags- breytingum. Fram kom að lofts- lagsbreytingarnar hefðu meiri áhrif á smáríki en önnur ríki, ekki síst eylönd sem biðu verulegt tjón vegna hækkunar sjávarborðs. Samþykkt var yfirlýsing þar sem hvatt var til aðgerða til þess að vega á móti útblæstri koltvísýr- ings í andrúmsloftið. Loftslagsbreyt- ingar ræddar VIÐ HEIMTUM ÓDÝRA FARSÍMA 1112 Kr. 3.990,- SÁ ALLR A ÓDÝRAS TI GERÐUVERÐSAMANBURÐ Tjónum og slysum í umferðinni fækkaði verulega í alþjóðlegu umferðaröryggisvik- unni sem haldin var hérlendis dag- ana 23. til 29. apríl síðastliðinn, samkvæmt upplýsingum frá Sjóvá. Tjónum fækkaði um 22 pró- sent og slysum um heil 82 prósent samanborið við sömu viku í fyrra. Þá fækkaði tjónum og slysum einnig frá vikunni á undan, öfugt við það sem gerðist í fyrra, þegar tjónum og slysum snarfjölgaði á milli þessara sömu vikna. Einar Guðmundsson, forstöðu- maður Forvarnarhúss Sjóvár, sem stóð fyrir mikilli sýningu og fræðslu í samstarfi við Umferðar- stofu í umferðaröryggisvikunni, segir aðstandendur ekki hafa verið hissa á góðum árangri. „En auðvitað renna menn blint í sjóinn með svona. Við vonuðum að þetta myndi ganga vel, og það er bara mjög gleðilegt að það hafi tekist.“ Vikan er haldin að erlendri fyrirmynd og á Alþjóðaheilbrigð- isstofnunin frumkvæði að henni. Í vikunni var meðal annars haldið fræðslunámskeið fyrir 500 ung- menni um afleiðingar hrað- og ölvunaraksturs. Slysum fækkaði um 82 prósent Samþykki Alþingi stjórnar- frumvarp um breytingu á lögum um stjórnarráð Íslands, sem stefnt er á að verði að lögum á sumarþinginu, verður þess ekki lengur krafist að öll laus störf innan stjórnarráðsins verði aug- lýst laus til umsóknar. Stefán Aðalsteinsson, fram- kvæmdastjóri Bandalags háskóla- manna (BHM), segir tilganginn með því að auglýsa störfin undan- tekningarlaust að fá hæfasta fólkið til starfa og tryggja að ekki séu teknar geðþóttaákvarðanir þegar sýslað sé með almannafé. „Þetta fer væntanlega í nefnd og þá fáum við þetta til umsagnar. Við munum leggjast gegn þessu,“ segir Stefán. „Stjórnarráðið á ekki að vera lokaður klúbbur.“ Ákvæðið í stjórnarfrumvarp- inu mun meðal annars gera stjórnvöldum auðveldara fyrir að færa starfsfólk milli ráðu- neyta þegar breytingar verða gerðar á þeim, eins og kveðið er á um í stjórnarsáttmála. Í athuga- semdum með frumvarpinu segir að æskilegt sé að auka hreyfan- leika starfsfólks innan stjórnar- ráðsins. Heimild til að sleppa því að auglýsa störf og leita til starfs- manna sé í samræmi við það sem tíðkist hjá stærri fyrirtækjum. Stefán segir BHM ekki leggj- ast gegn auknum hreyfanleika en mikilvægt sé að fastar stöður séu auglýstar. Öðru máli geti gegnt með tímabundin störf, til dæmis afleysingar. BHM leggst gegn breytingu Forsætisráðherra mun taka saman skýrslu um samn- inga, viljayfirlýsingar og fyrirheit sem ríkisstjórnin veitti í aðdraganda kosninga, en Alþingi samþykkti í gær samhljóða tillögu þingmanna Vinstri grænna þar að lútandi. Sundur- greina á fyrirheitin eftir ráð- herrum og taka til upphæðir. Í greinargerð með beiðni Vinstri grænna kemur fram að óskað sé eftir öllum fyrirheitum sem gefin voru frá því fjárlög voru samþykkt 6. desember 2006 þar til ríkisstjórn Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks lét af störfum. Skoða loforð fyrir kosningar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.