Fréttablaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 30
Enn einu sinni hefur spænska deildin reynst sú mest spennandi í álfunni. Hún er jafnframt sú síðasta að renna sitt skeið þetta vorið og teygist reyndar inn í sumarið. Þrátt fyrir gæði boltans eru skipulagsgæði knattspyrnu- mála ekki þau sömu og kalla margir syðra eftir breyting- um. Spánverjar ríghelda í þá fornu hefð að hvíla sig seinnipartinn. Taka „siesta“. Þetta hefur áhrif á fótboltann, hvergi er leikið jafn seint á kvöldin, algengt að flautað sé til leiks kl. 9 eða jafnvel kl. 10. Sparkáhorf að síðkveldi er stór hluti af helgarvenjum spænskra og hefur verið mikil mótspyrna við að breyta háttum. Spænsku sjónvarpsstöðvarnar hræra svo í leiktímum fram á síðustu stundu og gerir það erlendum sjónvarps- stöðvum erfitt fyrir að sinna spænsku deildinni. Einnig er þetta hvimleitt fyrir útlendinga sem vilja skella sér til Spánar og horfa á leik. Þetta vorið hefur keyrt um þverbak. Landsleikjahlé slítur í sundur mest spennandi toppbar- áttu í háa herrans tíð og væng- stýfir liðin í verslunarmálum. Real, Barca og Sevilla mega ekki við því að skapa óróa í leikmanna- hópnum fyrr en mótið er búið. Á laugardagskvöldið verður næstsíðasta umferðin leikin. Það var ekki fyrr en rétt fyrir helgina að ákveðið var að allir helstu leikirnir ættu að fara fram á sama tíma. Fram að því hafði þeim verið dreift hist og her að fornum frjálslegum sið. Óþreyj- an er mikil eftir lokaslagnum en blöðin nenna lítið að fjalla um landsleikina tvo sem Spánverjar heyja í millitíðinni og urðu fréttir af sigrinum gegn Lettum að lúta í minni pokann fyrir umfjöllun um tennis og mótorhjólakappakstur. Það er ekki nóg með að liðið þyki lélegt og andstæðingarnir ómerkilegir heldur gætir pirrings yfir því að deildin mikilvæga þurfi að bíða á meðan. 6 sport Real Madrid og Barcelona vilja kaupa hann. Liverpool vildi fá hann í fyrra og einnig núna, sem og Evrópumeistarar AC Milan. Velkomin í heim Daniel Alves, hins 24 ára gamla brasilíska bakvarðar Sevilla. Nú um stundir er hann talinn besti leikmaður Spánar. EFTIR ÓSKAR HRAFN ÞORVALDSSON » DANIEL ALVES « ÞAÐ ERU ALLIR Á EFTIR ALVES “ Hann er þrír leikmaður í einum. Hann er leik-stjórnandi á miðjumanni með sál kantmanns sem spilar bakvörð.“ Svona lýsti spænska dagblaðið AS Daniel Alves eftir stórleik hans gegn Barcelona í mars þar sem hann var yfirburða- maður á vellinum í sigri Sevilla, 2-1. Það er kannski ekki skrýtið að Daniel Alves sé eftirsóttur af öllum bestu liðum álfunnar. Menn af hans sauðahúsi vaxa ekki á trjánum. Alves kom til Spánar sem óþekktur tvítug- ur strákur en er nú talinn vera besti leikmaður Spán- ar. OG AF HVERJU? „Hann er eins manns hljómsveit, stórkostlegur íþróttamaður sem lifir sig inn í leikinn eins og ofvirkt barn. Hann er eins og Roberto Carlos fyrir réttfætta. Eini munurinn er sá að Alves getur varist. Hann getur reyndar verið ansi grófur þegar hann vill það við hafa. Það er kannski engin tilviljun að á sama tíma og hann leiðir deildina í stoðsendingum þá er hann einnig við toppinn yfir þá leikmenn sem hafa fengið flest spjöld og brotið oftast af sér. Í stuttu máli sagt, Alves getur gert allt.“ Svona lýsti Sid Lowe, hinn virti sérfræðingur The Guardian í spænsku knattspyrnunni, Alves fyrir skömmu. Með svona lýsing- ar á bakinu er auðvelt að skilja að allir séu á eftir Alves. Og það er ekki ólíklegt að Alves hverfi á braut í sumar. Hann hefur þegar unnið Evrópukeppni félags- liða tvívegis með Sevilla og gæti þess vegna unnið spænsku deild- ina. Umboðsmaður hans orðaði þetta þannig við fjölmiðla um dag- inn: „Fólk verður að vera raun- hæft og gera sér grein fyrir því að bestu leikmennirnir enda yfirleitt í bestu félögunum. Og með fullri virðingu fyrir Sevilla þá er það skör lægra en nokkur önnur lið í Evrópu. Þetta er rétti tíminn til að selja Daniel.“ NAUTABANINN Einar Logi Vignisson SÍÐBÚIÐ SPÆNSKT DRAMA Þrjú lið eiga möguleika á spænska meistaratitlinum Aldur: 24 ára Hæð: 1,71 m Þyngd: 64 kg Staða: Hægri bakvörður Þjóðerni: Brasilískur Lið: Sevilla Leikir/mörk: 140/9 Landsleikir: 4 ÉG ER DANIEL ALVES Verbúð 8 við Geirsgötu, 101 Reykjavík, Sími 553 1500Opið 7-21 alla daga vikunnar G S æ g r e i f a n s Humarsúpa r i l l ve is l a Fiskur á grillið Hin fullkomna humarsúpa samkvæmt New York Times LOKABARÁTTAN BARCELONA REAL MADRID SEVILLA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.