Fréttablaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 58
Íslenska landsliðið hefur
spilað vel í tveimur heimsóknum
sínum á Råsunda, heimavöll AIK
í Solna í Stokkhólmi. Leikurinn á
miðvikudaginn verður sá þriðji í
röðinni en hinir tveir enduðu með
1-1 jafntefli 1995 og með 1-3 tapi
tíu árum síðar. Þetta eru alls ekki
slæm úrslit, ekki síst fyrir þær
sakir að íslenska liðið hefur tapað
síðustu þremur heimaleikjum
sínum á móti Svíum með marka-
tölunni 2-7.
Ísland lék sinn fyrsta leik á
Råsunda í undankeppni EM 1996
en þjóðirnar mættust þá 1. júní
1995 á Råsunda. Þetta var fjórði
leikur Íslands af átta í riðlakeppn-
inni. Svíar höfðu náð í brons á HM
í Bandaríkjunum sumarið á undan
og unnið 1-0 sigur í fyrri leiknum
sem fram fór á Laugardalsvell-
inum í september árið á undan.
Leikurinn byrjaði frábærlega
þegar Arnar Gunnlaugsson skor-
aði glæsilegt mark beint úr auka-
spyrnu eftir aðeins þriggja mín-
útna leik. Svíar náðu reyndar að
jafna leikinn úr vafasamri víta-
spyrnu þrettán mínútum síðar en
íslenska vörnin hélt út og jafn-
teflið er ein bestu úrslit íslenska
landsliðsins á útivelli í sögu Evr-
ópukeppninnar. Stigin tvö sem
Svíar sáu eftir spiluðu líka rullu
í að Svíar komust ekki í úrslita-
keppnina.
Þjóðirnar mættust aftur á
Råsunda rúmum tíu árum seinna
eða nákvæmlega 12. október 2005
í lokaleik Íslands í undankeppni
HM 2006. Svíar voru í harðri bar-
áttu við Króata um sigur í riðlin-
um en komust á endanum beint
á HM vegna góðs árangurs í 2.
sæti. Leikurinn byrjaði á svipað-
an hátt og áratug áður því Kári
Árnason kom íslenska liðinu yfir
á 25. mínútu leiksins. Það tók
Svía nú aðeins fjórar mínútur að
jafna leikinn og var þar að verki
snillingurinn Zlatan Ibrahimovic,
sem lagði einnig upp annað mark
Svía sem Henrik Larsson skoraði
rétt fyrir hálfleik. Svíar skoruðu
síðan þriðja markið í blálokin og
tryggðu sér 3-1 sigur.
Råsunda er sögulegur leik-
vangur því aðeins einn annar völl-
ur hefur hýst bæði úrslitaleik
karla og kvenna á HM. Sá völlur
er Rósarskálin í Pasadena í Kali-
forníu í Bandaríkjunum (karlar
1994 og konur 1999). Úrslitaleikur
kvenna fór fram á Råsunda-leik-
vanginum 1995 en 37 árum áður
hafði Pele, þá 17 ára, breytt knatt-
spyrnusögunni á vellinum með
því að skora tvö mörk í 5-2 sigri
Brasilíumanna á Svíum í úrslita-
leik karla. Þetta var fyrsti heims-
meistaratitill Brasilíu.
Þetta gæti orðið síðasti lands-
leikur Íslands á vellinum því Svíar
eru að byggja sér nýjan fimmtíu
þúsund manna völl í Solna og í
kjölfarið verður Råsunda-völlur-
inn rifinn. Nýi völlurinn ætti að
verða tilbúinn upp úr árinu 2010
en þangað til er Råsunda heima-
völlur sænska landsliðsins og þar
bíður íslenska liðsins erfitt verk-
efni á miðvikudagskvöldið.
Íslenska karlalandsliðið mætir Svíþjóð í Stokkhólmi á miðvikudagskvöldið. Þetta verður þriðji leikur liðs-
ins á þjóðarleikvangi Svía í Solna. Fyrri leikirnir byrjuðu báðir vel en enduðu á ólíka vegu.
Íslenska landsliðið hefur
aðeins tvisvar sinnum verið án
Eiðs Smára Guðjohnsen í keppnis-
leik undanfarin átta ár en stjarna
íslenska landsliðið verður fjarri
góðu gamni í næsta landsleik.
Íslenska landsliðið mætir því
aðra undankeppnina í röð til
Stokkhólms án fyrirliða síns en
Eiður Smári fékk sitt annað gula
spjald í undankeppninni í jafntefl-
inu á móti Liechtenstein um síð-
ustu helgi. Eiður Smári var einnig
í banni í útileiknum á móti Svíum í
undankeppni HM 2006.
Eiður Smári er búinn að fá fjögur
gul spjöld í síðustu tíu leikjum, öll
fyrir mótmæli eða að sparka bolt-
anum í markið eftir að búið var að
dæma hann rangstæðan.
Markaleysi fyrirliðans er farið
að dragast á langinn og það verður
fróðlegt að sjá hvernig sóknarleik-
urinn verður gegn Svíum í Solna.
Eiður Smári hefur ekki skorað í
síðustu fimm landsleikjum og er
án marks í samtals 503 mínútur.
Líklegast er að Hannes Þ.
Sigurðsson komi inn í byrjunarlið-
ið í hans stað enda er hann sterkur
í loftinu og góður í að halda boltan-
um uppi á toppnum.
Án Eiðs í þriðja sinn
Sænski landsliðsmaður-
inn Zlatan Ibrahimovic vísaði því
á bug á blaðamannafundi í gær að
hann yrði í byrjunarliði Svíþjóðar
gegn Íslandi á morgun. Hann
hefur átt við meiðsli að stríða.
„Ég hef ekki spilað í einn og
hálfan mánuð. Ég gæti hugsan-
lega spilað í 20-30 mínútur,“ sagði
Zlatan. „Ég er allur að koma til og
get tekið þátt í æfingum af fullum
krafti. En það er stór munur á æf-
ingum og leikjum.“
Lars Lagerbäck landsliðsþjálf-
ari sagði alls óvíst hvort Zlatan
myndi spila. „Endanleg ákvörðun
verður ekki tekin fyrr en annað
kvöld,“ sagði hann í gær.
Næ kannski
hálftíma
Landsliðsmarkmað-
urinn Birkir Ívar Guðmundsson
verður með í báðum umspilsleikj-
unum gegn Serbum. Þýska hand-
knattleikssambandið færði leik
liðs hans, TuS N-Lübbecke, fram
en hann átti að fara fram daginn
fyrir Serbaleikinn ytra. Því var
óvíst um þáttöku hans fyrr en í
gær þegar málið leystist farsæl-
lega.
Með í Serbíu
Ótvíræð krafa um sigur Svía gegn Íslandi
Þrír leikir fóru fram í
Landsbankadeild kvenna í gær.
Harpa Þorsteinsdóttir kom
Stjörnunni yfir í Kópavoginum
gegn Blikastúlkum en Greta
Mjöll Samúelsdóttir jafnaði metin
í fyrri hálfleik. Greta misnotaði
svo vítaspyrnu þegar skot hennar
small í stönginni og hvorugt liðið
náði að bæta við marki í litlausum
síðari hálfleik.
Keflavík burstaði ÍR 7-0 þar
sem Guðný Þórðardóttir og Vesna
Smiljkovic skoruðu báðar þrennu.
Danka Podovac skoraði eitt mark.
Þá vann KR lið Fylkis í Árbænum
4-2. Hrefna Jóhannesdóttir skor-
aði þrennu fyrir KR og og Edda
Garðarsdóttir eitt en Anna Björg
Björnsdóttir skoraði bæði mörk
Fylkisstúlkna.
Jafnt í Kópavogi