Fréttablaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 14
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Atvinnuleysi og fátækt eru
algeng í Armeníu og efna-
hagsvandinn gríðarlegur.
Fáir Íslendingar þekkja til
í Armeníu en meðal þeirra
er Björk Þorgrímsdóttir
háskólanemi sem bjó þar og
starfaði í níu mánuði árið
2005.
Björk Þorgrímsdóttir vann í sjálf-
boðavinnu í Armeníu á endurhæf-
ingarmiðstöð fyrir börn.
„Krakkarnir komu þangað með
mæðrum sínum í fjórar vikur í
senn. Þau gátu ekki gengið og höfðu
flest fæðst þannig en sum þeirra
höfðu lent í slysi. Krakkarnir gistu
á svæðinu og voru í endurhæfingu
hjá okkur. Eftir endurhæfinguna
höfðu þau ekkert að gera á daginn
og voru bara að glápa á sjónvarpið
þannig að mitt hlutverk var að
kenna þeim ensku, leika við þau og
gera eitthvað skemmtilegt með
þeim,“ segir Björk.
Armenía á landamæri að Tyrk-
landi, Georgíu, Aserbaídsjan og
Íran. Landið var eitt af lýðveldum
Sovétríkjanna og hlaut sjálfstæði
árið 1991. Björk segir að Armenía
tilheyri allt öðrum menningarheimi
en Ísland, landið sé lítið smitað af
vestrænum áhrifum og þar séu til
dæmis engir McDonald‘s-staðir.
Björk kom til Armeníu um miðja
nótt í marsmánuði. Hún segir að
það hafi slegið sig fyrst hve
umhverfið hafi virkað skítugt og
vegirnir holóttir og lélegir. „Húsin
líta frekar illa út að utan en þegar
maður kemur inn eru heimilin allt
öðruvísi og mjög aðlaðandi. Fólk er
afskaplega gestrisið og almenni-
legt. Armenar gefa manni allt þó að
þeir eigi ekki neitt,“ segir hún.
Spilling er talin mikil í Armeníu.
Björk telur að peningar og tengsl
við háttsetta menn greiði fólki leið-
ina. „Ef fólk á peninga getur það
keypt pláss fyrir krakka í skólum
eða heilbrigðisþjónustu. Ef fólk
þekkir einhvern háttsettan þá er
fjölskyldan á grænni grein.“
Björk bjó hjá þremur fjölskyld-
um í höfuðborginni Jerevan þá níu
mánuði sem hún var í Armeníu og
allar voru þær frekar vel settar þó
ólíkar væru. Í einni fjölskyldunni
var eiginmaðurinn til dæmis
læknir sem bjó og starfaði í Rúss-
landi í níu eða tíu mánuði ársins,
þar sem hann fékk ekki vinnu í
Armeníu. Í annarri fjölskyldu var
eiginmaðurinn vel þekktur listmál-
ari sem hefur sýnt verk sín víða um
heim. Björk segir að listmálarinn
hafi verið vel tengdur og talsvert
fengið ráðamenn í heimsókn til sín.
Í þriðju fjölskyldunni var pabbinn
prófessor í rússnesku og mamman
kennari.
Þingkosningar áttu sér nýlega
stað í Armeníu og í kjölfarið spunn-
ust umræður um kosningasvindl.
Björk segir að Armenar vilji lítið
velta sér upp úr pólitík. Annað gildi
um þjóðarmorðin. „Ég var þarna
þegar níutíu ár voru liðin frá því að
Tyrkir frömdu þjóðarmorð á
Armenum og það vilja allir fá viður-
kenningu á þessu. Það er mjög
djúpt í fólki, líka unga fólkinu,“
segir hún.
Björk rifjar upp athöfn við minn-
isvarða í Jerevan þegar þess var
minnst að sextíu ár voru liðin frá
lokum seinni heimsstyrjaldarinnar.
Hún segir að sú athöfn sé sér eftir-
minnilegus. „Þarna var fullt af
gömlum mönnum, sem gátu varla
gengið, með medalíur í fínu jakka-
fötunum sínum og alla þessa sögu á
bak við sig. Innan um voru gamlar
konur með mótmælaspjöld. Þær
höfðu kannski misst manninn sinn
eða aðra ástvini í stríðinu. Ég fékk
yfirþyrmandi tilfinningu í hópnum
inni í þessari sögu. Það var svo
mikil samheldni í fólkinu, það býr í
svo litlu landi með óvini allt um
kring,“ segir hún.
Peningar og tengsl greiða leiðina
Í haust verður boðið upp á nýtt
nám í Myndlistaskólanum í Reykja-
vík. Um er að ræða tveggja ára
diplómanám í mótun sem unnið er í
samvinnu við Iðnskólann í Reykja-
vík. Námið er efnistengt nám í leir
og tengdum efnum þar sem nem-
endur læra að hugsa og móta gegn-
um efnið.
„Okkur langaði að auka náms-
framboð í list- og hönnunargreinum
en keramiknám hefur ekki verið í
boði hér á landi síðan Mynd- og
handíðaskólinn var og hét,“ segir
Sólveig Aðalsteinsdóttir, deildar-
stjóri keramikdeildar í Myndlista-
skólanum. Kennarar verða leir-
listamenn, myndlistarmenn og
vöruhönnuðir svo nemendur ná að
kynnast hinum ýmsu sviðum mót-
unar. „Þetta nám mun til dæmis
nýtast öllum þeim sem annað hvort
hafa lært hönnun og vilja bæta við
sig eða hyggja á hönnunarnám í
framtíðinni,“ segir Sólveig.
Skólinn er í samstarfi við Glas-
gow School of Art og þeir sem
ljúka þessu tveggja ára námi geta
farið út, bætt við sig tveimur árum
í Glasgow og útskrifast þaðan með
BA-gráðu.
Umsóknarfrestur er til 11. júní.
Ásthildur
þjálfi liðið
Útskrifaði síðustu nemendurnaMoðhausabíómynd Stolinn hugbúnaður
Á undanförnum mánuðum hafa fjölmargir stærri viðskipta-
vinir óskað eftir hækkun Dælulyklaheimilda úr 15.000 í 25.000.
Af þeim sökum hefur Atlantsolía ákveðið að sólarhringsheimild
allra Dælulykla með 15.000 krónum verði hækkuð upp í 25.000
krónur.
Þeir viðskiptavinir okkar sem vilja halda eldri sólarhringsheimild
er bent á að hafa samband við skrifstofu okkar, í síma eða með
tölvupósti.
Athygli er vakin á því að viðskiptavinir geta hvenær sem er breytt
sólarhringsheimildum í 5, 10 eða 25 þúsund kr.
Dælulyklahafar
hækkun sólarhringsheimilda
Allar nánari upplýsingar má finna á vefsíðu
okkar www.atlantsolia.is, með því að hringja
í síma 591 3100 eða með því að senda okkur
tölvupóst á atlantsolia@atlantsolia.is
P
IP
A
R
/
S
ÍA
/
7
11
14
Atlantsolía Lónsbraut 2 / 220 Hafnarfirði / Sími 591 3100 / atlantsolia@atlantsolia.is / www.atlantsolia.is