Fréttablaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 21
Josy Zareen segir Íslendinga hafa tekið miklum
framförum í magadansi þau ár sem hún hefur
kennt í Magadanshúsinu.
„Magadansinn verður sífellt vinsælli og við höfum
því bætt við okkur námskeiðum, meðal annars fyrir
börn og einstaklinga með Downs-heilkenni, ekki síst
vegna þess hversu góð áhrif hann hefur á heilsu-
farið,“ segir Josy Zareen, sem hefur kennt maga-
dans í Magadanshúsinu á Íslandi undanfarin sex ár.
„Magadansinn er meðal annars góður fyrir móður-
líf kvenna og þá gildir líkamsvöxturinn einu,“ heldur
hún áfram.
„Einn kosturinn við dansinn er einmitt sá að vel-
flestar konur geta stundað hann án þess að vera í
einhverju svakalegu formi. Hingað koma konur af
öllum stærðum og gerðum og margar verða undr-
andi á því hversu vel þeim gengur.“
Josy segir magadansinn ekki síður hafa góð sál-
ræn en líkamleg áhrif, hann efli einfaldlega sjálfs-
traustið. „Til mín hafa leitað konur með alls kyns
vandamál, eru með lágt sjálfsmat eða eru að jafna
sig eftir sambandsslit, svo dæmi séu tekin. Þeim
líður yfirleitt strax betur eftir að hafa reynt fyrir
sér í dansinum og margar kjósa að halda áfram.“
Áhuginn sem íslenskar konur hafa sýnt maga-
dansi hefur meðal annars skilað sér í góðri frammi-
stöðu á erlendum vettvangi. Til marks um það hefur
einn nemenda Josy þegar fengið samning um að
sýna í Dubai eftir sigur í keppni og sjálf tryggði hún
sér fyrsta sætið í keppni sem var nýverið haldin í
Stokkhólmi.
„Þetta er í báðum tilvikum mjög góður árangur,
þar sem við öttum kappi við lönd þar sem magadans
er orðinn að hálfgerðri þjóðaríþrótt,“ segir Josy.
„Í kjölfarið varð ég vör við aukinn áhuga manna á
því sem er að gerast hér í dansinum og var jafnvel
talað um að bestu dansararnir kæmu frá Íslandi. Við
getum verið virkilega stolt.“
Magadans í uppsveiflu
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI