Fréttablaðið - 11.06.2007, Side 2
Farley Mowat, skip
nátúruverndarsamtakanna Sea
Shepherd, er væntanlegt á
Íslandsmið síðla í júlí, segir Paul
Watson, forseti og
stofnandi Sea
Shepherd.
Skipið hefur
verið á siglingu
frá Ástralíu síðan
um miðjan maí, en
þegar það lagði úr
höfn sagði Watson
það væntanlegt til
Íslands um miðjan
júní. Markmiðið
með komu skipsins hingað til
lands er að stöðva hvalveiðar
Íslendinga.
„Ég mun fara um borð í lok
júní, og við reiknum með að vera
komin á íslenskt hafsvæði síðla í
júlí ef ekkert óvænt kemur upp
á,“ segir Watson.
Á Íslandsmið-
um seint í júlí
Sigurður, heitir þetta ekki að
berjast til sigurs?
George W. Bush var fagnað sem
hetju í fyrstu heimsókn Bandaríkjaforseta til
Albaníu í gær. Í Tirana sagði hann að það
gengi ekki að ræða út í það óendanlega um
sjálfstæði Kosovo-héraðs, sem enn tilheyrir
formlega Serbíu en hinn albanski meirihluti
íbúanna vill að fái sjálfstæði sem fyrst.
„Á einhverjum tímapunkti – frekar fyrr en
síðar – verður að segja: „Hingað og ekki
lengra. Kosovo er sjálfstætt“ og það er sú
afstaða sem við höfum tekið,“ sagði Bush á
blaðamannafundi með albanska forsætisráð-
herranum Sali Berisha.
Kall Bush eftir sjálfstæði Kosovo var beint
að ráðamönnum í Rússlandi og öðrum löndum
sem eru andsnúin áformum um aðskilnað
Kosovo frá Serbíu.
Um viðleitni Albaníustjórnar til að fá
inngöngu í Atlantshafsbandalagið sagði Bush
að frekari pólitískar og hernaðarlegar
umbætur væru nauðsynlegar áður en hún
gæti komið til greina. Leiðtogar Albaníu
sögðust hafa skilning á því.
„Við erum ákveðnir í að taka hverja þá
ákvörðun, setja hver þau lög, grípa til hverra
þeirra umbóta sem myndu gera Albaníu tæka
í bandalagið,“ sagði Berisha.
Bush sat einnig hádegisverðarfund með
forsætisráðherrum Albaníu, Makedóníu og
Króatíu, en Króatar vonast til að fá inngöngu í
NATO á næsta ári.
Að lokinni Albaníuheimsókninni flaug Bush
til Sofíu, höfuðborgar Búlgaríu, sem er síðasti
viðkomustaður hans í Evrópu eftir G-8-
fundinn í Þýskalandi, en í ferðinni heimsótti
hann sex lönd á átta dögum.
Gangan á tinda í fimm
landshlutum til styrktar Sjónarhóli
hafði gengið vel en ekki þrauta-
laust þegar Fréttablaðið hafði sam-
band við gönguhópinn í gærkvöldi.
Gangan á Snæfell gerði að verkum
að hópurinn var fjórum tímum á
eftir áætlun.
„Bíllinn okkar festist og komst
ekki alla leið upp að Snæfellsskála
þannig að við urðum að labba að
fjallinu og komum að því úr rangri
átt. Við fórum upp á það á röngum
stað og gengum upp 1.500 metra.
Þar komum við að hamravegg og
vorum þá gjörsamlega úrvinda.
Það munaði engu að við legðum
upp laupana en létum okkur hafa
það að ganga alla leið niður að
fjallsrótum til að komast framhjá
skriðjökli. Svo aftur upp á fjallið til
að klára þetta,“ segir Leifur Dam
Leifsson, einn leiðangursmanna.
Von var á hópnum til byggða í
nótt eftir göngu á síðasta fjallið,
Heklu. Leifur sagði að allir væru
stjarfir af þreytu, mjög ringlaðir
og tímaskynið ruglað.
„Gangan á Snæfellið átti að vera
fjórir tímar en varð átta og hálfur
tími. Við vissum að Kerling yrði
erfið en okkur óraði ekki fyrir
erfiðleikunum sem við lentum í á
Snæfelli. Snæfell er nefnilega
mjög auðvelt fjall en það var djúp-
ur snjór. Þetta var eins hræðilegt
og hægt var að hugsa sér.“
Svefnlausir og alveg úrvinda
Maður sem grunað-
ur er um að hafa reynt að nauðga
konu í Traðarkotssundi á laugar-
dagsmorgun er enn ófundinn.
Í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi
kom fram að vitni hefðu verið að
árásinni en þau ekki séð ástæðu
til að koma konunni til hjálpar.
Maðurinn er sagður um þrítugt,
á bilinu 185-190 sentímetrar á
hæð, með stutt, mjög dökkt eða
svart hár og svarta skeggbrodda
eða skegg. Hann er grannur og
var klæddur í rauða eða vínrauða
peysu eða jakka og svartar buxur.
Þeir sem hafa upplýsingar um
hann eru beðnir að láta lögreglu
vita í síma 444-1100.
Maðurinn enn
ófundinn
Kjúklingar sem
mannafæða bárust til Ameríku
frá Pólýnesíu í
Kyrrahafi, en
ekki frá
Evrópu. Þessi
uppgötvun,
sem byggist á
fundi kjúkl-
ingabeina í
fornleifaupp-
greftri í Chile,
rennir stoðum
undir kenn-
ingu norska
ævintýramannsins Thors
Heyerdahl um að siglingar hafi
tíðkast yfir Kyrrahafið til forna.
Rannsóknir hafa sýnt að
kjúklingabein sem fundust í
uppgreftri við strönd Chile séu
af kjúklingum sem lifðu á
árabilinu 1304-1424. Rannsókn á
erfðaefninu í beinunum sýndi
auk þess fram á að kjúklingarnir
komu upprunalega frá Pólýnesíu.
Þetta kemur fram á fréttavef
norska blaðsins Aftenposten.
Styður kenn-
ingu Heyerdahls
„Læknarnir hafa
sýnt mikinn trassaskap og hent
þessum miðum. Án miðanna ger-
ist ekki neitt, því þeir eru sönnun-
argagnið,“ segir Sigrún Sigurðar-
dóttir, forsvarsmaður Vonar. Von
er hópur kvenna sem eiga um sárt
að binda eftir að hafa fengið léleg-
ar sílikonfyllingar í barm sinn.
Hún segir þá íslensku lýtalækna
sem framkvæmdu sílikonaðgerðir
á konum á árum áður hafa átt að
taka límmiða sem fylgdu sílikon-
púðunum og setja þá inn í lækna-
skýrslur kvennanna. Þetta hafi
margir þeirra trassað. Miðarnir
séu nauðsynlegir til að sanna upp-
runa púðanna og þar með sekt
fyrirtækis sem seldi gallaðar fyll-
ingar.
„Þeir virtust ekki taka okkur
alvarlega í upphafi og gerðu lítið
úr þessu. Sögðu okkur að við fengj-
um aldrei greitt og ættum ekkert
að sækja,“ segir Sigrún. Hún hafi
sjálf gengið í gegnum þetta á
sínum tíma og margreynt að finna
þessar upplýsingar í kerfinu.
„Síðan endaði það með því að ég
fór til skrifstofustjóra Ríkisspítal-
anna og þá fékk ég númerin,
þannig að einhvers staðar voru
þau til.“ Sigrún segist vona að
lýtalæknarnir verði samvinnuþýð-
ari í framtíðinni. „Þetta er mjög
viðkvæmt fyrir margar konur.
Sumar þeirra eru öryrkjar og það
er talið mega rekja til sílikons-
ins.“
Fyrirtækið sem framleiddi púð-
ana hét Dow Corporation. Það
hætti rekstri árið 1995 eftir mála-
rekstur bandarískra kvenna og
var stofnaður sjóður til að greiða
konum bætur. Í sjóðnum eru nú
400 milljónir dollara. Konur eiga
rétt á misháum upphæðum. Ein
milljón króna fæst ef sýnt er fram
á að púðinn hafi rifnað. Mun meira
fæst þó ef hægt er að sýna fram á
að viðkomandi hafi orðið fyrir
skaða af sílikonpúða frá Dow
Corporation.
Sigrún er bjartsýn á að íslensk-
ar konur hafi sigur í málinu. Allt
að 65 konur hafa lagt fram kröfu í
sjóðinn og verður lögfræðingur á
vegum sjóðsins með fund í Reykja-
vík á morgun.
Ekki náðist í landlækni vegna
fréttarinnar.
Sakar lýtalækna um
trassaskap í starfi
Konur sem fengu sílikonpúða frá Dow Corporation fyrir árið 1992 gætu átt rétt
á skaðabótum, því púðarnir voru lélegir. Íslenskir lýtalæknar eru sagðir hafa
trassað skjalavörslu og verið ósamvinnuþýðir við konurnar. Sumar eru öryrkjar.
Ungur maður er í
haldi lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu eftir að hún hafði
veitt honum eftirför frá Mos-
fellsbæ inn í Hvalfjarðarbotn á
ofsahraða.
Lögreglan ætlaði að stöðva
manninn fyrir of hraðan akstur
en í stað þess að nema staðar jók
maðurinn hraðann. Þurfti
lögreglan að lokum að aka utan í
bíl mannsins til þess að stöðva
hann.
Mildi þykir að engin slys hafi
orðið á fólki þar sem maðurinn
ók á upp undir 200 kílómetra
hraða þegar hann fór hraðast.
Maðurinn var í annarlegu
ástandi og er talið að hann hafi
verið undir áhrifum lyfja.
Var í annarlegu
ástandi og á
ofsahraða