Fréttablaðið - 11.06.2007, Qupperneq 13
Ný tækni við
gegnumlýsingu greinir lífræn efni
mun betur en sú sígilda, sem
greinir helst raftæki og málma.
John Hooper, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Strategic Alliances,
heimsótti Ísland á dögunum og
kynnti þessa tækni fyrir lögreglu
og tollgæslumönnum.
Uppgang tækninnar má meðal
annars rekja til aukinna krafna um
að farangur, gámar og sendingar
séu gegnumlýst áður en þau komi
að ströndum landsins.
Uffe Ynill, umboðsaðili tækj-
anna í Danmörku, segir merkjan-
legan mun á afstöðu þeirra sem
með öryggismál fara og tímaspurs-
mál hvenær tækin verði gerð að
staðalbúnaði í Evrópu.
Greinir lífræn efni mun betur
50 ára afmæli AFS á Íslandi
verður haldið hátíðlegt laugardaginn 16. júní næstkomandi á hótel
rskriftina “ Sá einn veit er víða ratar”,
hefst kl. 14:00. Meðal ræðumanna og gesta er forseti Íslands hr. Ólafur
Ragnar Grímsson, Francisco Tachi Casal forseti alþjóðasamtaka AFS, Rudolf
Schuster fyrrum forseti Slóvakíu og friðarleiðtogi og Madeleine Ströje Wilk-
ens sendiherra Svía á Íslandi.
Um kvöldið er hátíðarkvöldverður sem hefst kl. 19:30 og dansleikur þar á
eftir. Hljómsveitin Stjórnin mun leika fyrir dansi. Hátiðarkvöldverðurinn er
öllum opinn en miðaverð er 4000 kr. fyrir 25 ára og eldri en 2500 kr. fyrir
yngri. Miðar eru seldir á skrifstofu AFS á Íslandi. Nánari upplýsingar um
nna á www.afs.is eða á skrifstofu AFS á Íslandi
í síma: 5525450
Sendiráð Íslands í
London, Landssamband íslenskra
útvegsmanna (LÍÚ) og helstu
sölufyrirtæki íslenskra sjávar-
afurða stóðu í vikunni fyrir fundi
með fulltrúum allra helstu
fiskkaupenda og smásöluaðila í
Bretlandi.
Á fundinum var aðallega fjallað
um íslenska fiskveiðistjórnun,
ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar-
innar og umhverfismerkingar
sjávarafurða.
Markmið fundarins var að
skapa samstarfsvettvang þar sem
framleiðendur á Íslandi og
kaupendur í Bretlandi gætu
skipst á upplýsingum og skoðun-
um. Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra sótti
fundinn.