Fréttablaðið - 11.06.2007, Síða 39
Hljómsveitin The National kemur
frá hinu „spennandi“ ríki Ohio í
Bandaríkjunum. Hljómurinn á
þó kannski lítið skylt við það ríki
heldur meira staðinn þar sem
meðlimir sveitarinnar eru búsett-
ir núna, Brooklyn-hverfi í New
York. Hljómsveitin hefur áður
sent frá sér þrjár breiðskífur og
var sú síðasta, Alligator, sérstak-
lega spennandi. Einhver óbeisl-
andi sjarmi einkenndi plötuna sem
gerði hana að einni bestu uppgötv-
un ársins 2005.
The National tekur annað
framfaraskref á Boxer og sann-
ar best að Alligator var ekkert
skot í myrkri. Hljómsveitin held-
ur áfram að vera jafn hrífandi og
vinaleg enda ekki furða þar sem
hljómsveitina skipa tvö pör af
bræðrum auk eins vinar þeirra.
Tónlistin er enn í anda sveita á
borð við Tindersticks, American
Music Club og Interpol en hefur
þó sín sérkenni sem einungis The
National státar af.
Helsti styrkur plötunnar felst
í ótrúlega gefandi lagasmíðum,
krókum og melódíum sem sveima
um kæruleysislega og fá hlust-
andann til þess að gleyma stað og
stund. Metnaðurinn skín í gegn en
platan er þrátt fyrir allt áreynslu-
laus þó hún sé full af þrótti. Stór-
virkir strengir fá nokkrum sinnum
að hljóma og auk þess spilar Sufjan
Stevens á píanó í lögunum Ada og
Racing Like a Pro, sálarfullum
ballöðum með kraftmiklum text-
um. Reyndar eru textasmíðarnar
á plötunni einstaklega vel úr garði
gerðar og ná oft að framkalla til-
finningarík hughrif með innhverf-
um, lýrískum og oft þunglama-
legum yrkisefnum. Barítónrödd
söngvarans Matt Berninger eykur
síðan enn á þau áhrif.
Þrátt fyrir þennan dökka tón
hefur tónlistin með sér heimilis-
legan blæ og er langt því frá þung-
lyndisleg. Er í raun týpísk sunnu-
dagsplata sem hægt er að setja
undir geislann til þess að tæma
hugann og endurnæra sálina.
Gjafmildur Boxari
SNÆFELLSJÖKULL
DRANGAJÖKULL
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
Njóttu dagsins
- taktu flugið
Aðeins fimm skref á Netinu og þú ferð á loft
Það getur ekki verið auðveldara.
Þú bókar flugið á flugfelag.is þar sem
þú finnur ódýrustu fargjöldin og að
auki frábær tilboð.
Njóttu dagins, taktu flugið
og smelltu þér á flugfelag.is
flugfelag.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/F
L
U
3
77
33
0
5/
07