Fréttablaðið - 12.07.2007, Síða 1
Sigraði í hönnunar-
samkeppni í Barcelona
Hrafnhildur Kristjánsdóttir sigraði í hönnunarsamkeppni í Barcelona.
Hrafnhildur Kristjánsdóttirhefur verið við nám í skartgripa-hönnun við Escola Massana í Bar-celona á Spáni síðastliðin þrjú ár. Fyrir skemmstu tók hún þátt í nemendasamkeppni á vegumlistamannasamtakanna Artesaniade Catalonia, og stóð uppi semsigurvegari.
„Þetta var keppni um flottustu næluna og ég ákvað að skila inn litlu gylltu laufblaði,“ segirHrafnhildur og bætir því við að hún hafi valið laufblað, vegna þeirra mismunandi merkinga sem það búi yfir í ólíku menning-arsamfélögum. Sums staðar tákniþað lífið, en annars staðar eitt-hvað allt annað.„Þegar ég valdi þetta form, vildi ég líka að það hæfði tilefninu,“ bendir Hrafnhildur jafnframt á.„Þar sem nælan kemur til með að fara í framleiðslu og verður gefin katalónskum handverksmönnum, sem eiga sæti í Artesania de Catalonia, í heiðursverðlaun.“ Mun Hrafnhildur sjálf annast framleiðsluna, enda sýnt ogsannað hvað í hennibýr.
Hrafnhildur viðurkennir aðsigurinn hafi komið henni svolít-ið í opna skjöldu, en hún var stöddhérlendis þegar fréttirnar bárust. „Ég fékk SMS-skeyti sent fráeinum kennaran Þ
AFSLÆTTI
ALLAR VÖRUR MEÐ
ENN MEIRI LÆKKUN
50-70%
BT bæklingur fylgir Fréttablaðinu í dag
Útsala
Opið til 21
Ljúfar lautarferðir
sumarblaðiðFIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2007 Fjölskyldan á fjöllAð mörgu er að huga þegar börnin fara með í fjallgöngur BLS. 10
„Þetta eru ódýrari bílar
og lægri rekstrarkostnaður. Því
verður ódýrara að taka metan-
knúinn leigubíl en hefðbundinn
bensínknúinn,“ segir Björn
Þorvarðarson, framkvæmdastjóri
Leigubílastöðvarinnar 5678910, sem
hefur tekið í notkun tvo metanknúna
leigubíla og hyggst fjölga þeim enn
frekar. „Það er náttúrlega undir
leyfishöfunum komið hvernig bílum
þeir aka en við erum að hvetja
bílstjórana til að fá sér vistvæna
bíla við endurnýjun. Við erum einnig
með Prius-tvinnbíl sem gengur bæði
fyrir bensíni og rafmagni,“ segir
Björn undir Leigubílastöðina falla
Aðalbílar í Reykjanesbæ, BSH í
Hafnarfirði og NL í Reykjavík.
„Mörg íslensk stórfyrirtæki hafa
lýst yfir áhuga á að nota þjónustu
vistvænna leigubíla þannig að
sóknarfærin eru mikil,“ segir
Björn.
„Vörugjöld hafa verið felld
niður af metanbílunum ásamt því
að þeir eru undanþegnir þunga-
skatti,“ segir Ragna Halldórsdóttir,
deildarstjóri gæða- og þjónustu-
sviðs Sorpu, en Metan hf. er
dótturfyrirtæki Sorpu. „Það magn
metans sem er sambærilegt einum
lítra af bensíni kostar tæplega 79
krónur þannig að rekstrar-
kostnaður ætti að vera lægri,“
segir Ragna.
Ódýrara með metanleigubíl
Bandaríkja-
maðurinn Kent Couch fór í
heldur óvenjulega flugferð á
dögunum þegar hann flaug í
garðstól. Couch, sem býr í
bænum Bend í Oregon-ríki,
settist í stólinn með svolítið
nesti og fallhlíf við höndina. Við
garðstólinn hafði hann fest
kirfilega 105 helíumblöðrur og
hugðist fljúga sem leið lá til
nágrannaríkisins Idaho.
Hann hafði komið fyrir GPS-
staðsetningartæki og búnaði svo
hann gæti mælt lofthæð og
flughraða á meðan á ferðinni
stóð. Einnig var hann með fjóra
vatnspoka sem hann gat hleypt
vatni úr til að hækka flugið.
Ekki tókst honum að komast
alla leið til Idaho, eins og að var
stefnt. Hann hafði þó flogið
ríflega þrjúhundruð kílómetra
leið þegar hann lenti níu
klukkustundum síðar á akri við
bóndabæ.
Flaug á garð-
stólnum sínum
„Menn hafa lent í
ákaflega erfiðum aðstæðum þar
sem það viðgengst að einn sjúkra-
flutningamaður er sendur í útköll
og flutninga á alvarlega veiku og
slösuðu fólki,“ segir Vernharð
Guðnason, formaður Landssam-
bands slökkviliðs- og sjúkraflutn-
ingamanna (LSS). „Við þannig
aðstæður er ekki hægt að veita
nokkra aðhlynningu og sjúklingar
geta verið í lífshættu.“
Í leiðara Slökkviliðsmannsins,
blaðs LSS, gagnrýnir Vernharð
harðlega hvernig víða er staðið að
þjónustu í sjúkraflutningum utan
höfuðborgarsvæðisins. Hann tekur
sem dæmi að í Borgarnesi og nær-
sveitum er einn sjúkraflutning-
amaður til taks í útköll. Bendir hann
á að í nágrenni við Borgarnes er eitt
stærsta sumarhúsasvæði landsins
og gífurleg umferð ferðamanna á
leið vestur og norður um land.
Rekur hann einnig dæmi þar sem
einn sjúkraflutningamaður hefur
verið sendur með alvarlega veikan
sjúkling frá utanverðu Snæfells-
nesi á sjúkrahús í Reykjavík.
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Snæfellsbæjar, tekur undir gagn-
rýni Vernharðs. „Við lítum það mjög
alvarlegum augum að einn maður
sé að flytja sjúklinga þessa löngu
leið. Það þarf lítið að bera út af til að
illa fari.“ Kristinn segir hluta vand-
ans liggja í hvernig litlum heilsu-
gæslustöðvum sé úthlutað fé til
rekstrar. Þar sé gert ráð fyrir kostn-
aði við sjúkraflutninga en ekki tekið
tillit til allra kostnaðarliða við
rekstur. „Því þarf að forgangsraða,
sem bitnar á þjónustu eins og
sjúkraflutningum.“
Nýleg könnun sem unnin var á
vegum Sjúkraflutningaskólans
sýnir að menntunarstig sjúkraflutn-
ingamanna á landsbyggðinni er
mun lægra en á höfuðborgar-
svæðinu. Á Austurlandi er nú um
tugur manns við sjúkraflutninga án
þess að hafa lokið tilskildu grunn-
námi.
Spurður um niðurstöður
könnunarinnar segir Vernharð
menntun sjúkraflutningamanna á
landsbyggðinni hafa batnað á síð-
ustu árum en ástæðan fyrir mann-
eklunni sé önnur. „Menn kæra sig
ekki um að vinna í því umhverfi
sem þeim er boðið. Hver vill lenda í
erfiðu útkalli og vita að hann getur
ekki veitt veiku eða slösuðu fólki
nauðsynlega þjónustu? Hver vill
lifa með því að geta ekki bjargað
mannslífi sem hefði ekki verið í
hættu við eðlilegar aðstæður?“
spyr Vernharð.
Sjúkraflutningar á lands-
byggðinni taldir hættulegir
Formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna gagnrýnir harðlega hvernig staðið er að
sjúkraflutningum víða á landsbyggðinni. Hann segir heilsu og lífi sjúklinga ógnað vegna lélegrar þjónustu.