Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.07.2007, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 12.07.2007, Qupperneq 4
 „Fólk er hrætt við þessar framkvæmdir. Þarna er mikið af ungu fólki með börn og gömlu fólki. Borgarstjóri veitti okkur engar frekari upplýsingar en þær sem við vissum þegar,“ segir Edda Ólafsdóttir, 75 ára gamall íbúi að Njálsgötu. Edda sat í gær fund ásamt öðrum fulltrúa íbúa götunnar, Kristni Jóhannessyni, með Vil- hjálmi Þ. Vilhjálmssyni borgar- stjóra og kynnti skoðanir íbúa í nágrenni fyrirhugaðs heimilis fyrir heimilislausa menn að Njáls- götu 74. Það hús er samliggjandi húsi Eddu og segir hún ekki hafa verið tekið tillit til þess að engin hljóðeinangrun er þar á milli. Vil- hjálmur borgarstjóri segist ekki hafa vitað að svo væri. „Það verð- ur hljóðeinangrað þarna á milli hið fyrsta,“ segir hann. Vilhjálmur minnti einnig á að um tilraunaverkefni til eins árs væri að ræða og ef vandamál kæmu upp í götunni yrði því hætt að ári liðnu. Hann sagðist þó ekki eiga von á slíkum uppákomum. Meðal þeirra spurninga sem íbúar lögðu fyrir Vilhjálm var hvort ekki væri verið að stuðla að félagslegri einsleitni með því að setja heimilið á þennan reit borg- arinnar, þar sem fjörutíu prósent af öllu húsnæði væru á vegum félagsmálayfirvalda. Því svaraði Vilhjálmur þannig til að fólk sem væri í félagslegum íbúðum væri ekki verra fólk en annað. Vilhjálmur sagði engin laga- ákvæði til sem skylduðu borgar- yfirvöld til að standa fyrir grenndarkynningu vegna breytinganna. „Ég skal þó viður- kenna að betra samráð hefði mátt hafa við íbúa götunnar vegna þessa og bið íbúa afsökunar á að það hafi ekki verið gert,“ segir Vilhjálmur. Stella Víðisdóttir, sviðstjóri Velferðarsviðs Reykjavíkur, segir óánægju fólks að nokkru leyti hafa skapast vegna þess að það blandi saman félagslegum leigu- íbúðum og sértækum úrræðum, eins og heimilið á Njálsgötu er. „Inn á heimilið verða valdir menn sem vilja breyta lífi sínu til hins betra. Staðsetningin hentar mjög vel vegna nálægðar við geðdeild Landspítalans og þjónustu í mið- borginni,“ segir Stella. „Við erum búin að fá mikið af skammaryrðum í blöðunum, það er búið að segja að við séum eig- ingjörn, skorti mannkærleika og fleiri ásökunum hefur verið dembt yfir okkur. Þær fullyrðing- ar finnast mér þó lýsa skilnings- leysi á aðstæðum okkar og ábend- ingum,“ segir Edda. Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18. Opið virka daga: 10-18 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 Hluti nemenda við Háskólann á Bifröst er óánægð- ur eftir að tilkynnt var um breyt- ingar á leiguverði í háskólaþorp- inu á og við Bifröst í gær. Tæpur fjórðungur íbúða hækkar í verði, mest um fjórtán þúsund krónur á mánuði. „Okkur hefur borist mikið af kvörtunum frá þeim sem hafa orðið fyrir þessu. Hækkunin bitn- ar harðast á fjölskyldufólki og þeim sem síst skyldi,“ segir Elín Björg Ragnarsdóttir, sem er í íbúðaráði háskólaþorpsins. Hún segir mikið af einstæðum foreldr- um vera á Bifröst og hækkanir séu mestar í íbúðum þeirra og annars fjölskyldufólks. Á meðan lækki leiguverð hjá einstakling- um. „Einstæða foreldra munar um fjórtán þúsund krónur á mánuði,“ segir Elín. Ágúst Einarsson, rektor Háskól- ans á Bifröst, segir almennt verið að lækka leiguverð. „Verðið lækkar hjá 75 prósentum nemenda okkar. Þetta er fyrst og fremst samræming á milli mismunandi gerða húsnæðis sem lengi hefur verið talað um.“ Ágúst segir jafnframt að þessar aðgerðir hafi í för með sér tekjutap fyrir skólann. Bitnar mest á þeim sem síst skyldi Borgarstjóri biður íbúana afsökunar Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri segir að betra samráð hefði mátt hafa við íbúa á Njálsgötu vegna fyrirhugaðs heimilis fyrir heimilislausa menn í götunni. Hann segir að hljóðeinangrað verði á milli húsa. Öldruð kona í götunni segir fólk óttaslegið. Fjórir menn á þrítugsaldri hafa verið dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir að ætla að fremja hryðjuverk í Lundúnum hinn 21. júlí árið 2005, tveimur vikum eftir að 52 manns dóu í sjálfsmorðsárásum í borginni. Mennirnir komu bakpokum fullum af sprengiefni fyrir í þremur neðanjarðarlestum og í strætisvagni. Sprengjurnar sprungu ekki og enginn slasaðist. Dómarinn sagði að ef sprengjurnar hefðu sprungið hefðu allt að 50 manns getað dáið og hundruð særst. Hann sagði að al-Kaída hefði staðið á bak við sprengjutilræðin. Mennirnir kváðust saklausir. Fjórir lífstíðar- dómar felldir Opna Kaupþingsmótið í skák fer fram í Lúxemborg þessa dagana. Mótið hófst síðasta laugardag og því lýkur næsta laugardag. Sex Íslendingar eru meðal þátttakenda. Hannes Hlífar Stefánsson og Snorri Bergsson eru efstir þeirra með þrjá og hálfan vinning eftir fimm umferðir og eru í 11. til 21. sæti. Í efsta sæti með fjóra og hálfan vinning er næststigahæsta skákkona heims, Humpy Koneru frá Indlandi. Sex íslenskir keppendur Fataframleiðandinn 66° Norður hefur stofnað dóttur- félagið 66° North USA til að sinna málum fyrir markaðinn í Norður- Ameríku. Síðastliðin fimm ár hefur þarlendur dreifingaraðili séð um sölu- og dreifingarmál fyrir Bandaríkin og Kanada. „Með þessu móti höfum við fullt vald á vörumerkinu, verðlagningu og stöðu á markaðn- um,“ segir Halldór G. Eyjólfsson, forstjóri 66° Norður. „Þetta er næsta skref í að ná enn meiri útbreiðslu og árangri á þessum gríðarlega stóra og samkeppnis- harða markaði.“ Útrás fyrirtækisins hefur verið hröð og flytur það nú út vörur til fimmtán landa. Dótturfélag vestanhafs Heimilisfólkið í Hvannatúni í Borgarfirði er þegar byrjað að taka upp kartöflur þótt enn sé langt til hausts. Fram kemur á vefsetri Borgarbyggðar að fyrsta útsæðið í Hvannatúni hafi farið í mold 30. apríl. „Þrátt fyrir útsæðið hafi verið undir plasti þá var maímánuður erfiður, þar sem grösin frusu reglulega á næturnar. Það virðist ekki hafa komið að sök og nú gleðja dýrindis kartöflur heimilisfólkið á hverjum degi og hafa gert um nokkurt skeið,“ segir á borgarbyggd.is Nýjar kartöflur í Hvannatúni
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.