Fréttablaðið - 12.07.2007, Síða 10

Fréttablaðið - 12.07.2007, Síða 10
Okkur var bara sagt að búast við hinu versta og vona það besta. VERKFÆRI N1 býður upp á mikið úrval af hágæða rafmagns- og handverkfærum. WWW.N1.ISN1 VERSLUN BÍLDSHÖFÐA 9 · SÍMI 440 1200 Auglýsingasími – Mest lesið Eitt stærsta og mest lesna dagblað í Litháen, Kauno diena sem gefið er út í borginni Kaunas, gerði greinaflokk Fréttablaðsins um umsvif litháísku mafíunnar á Íslandi að umtalsefni á vefútgáfu sinni í gær. Blaðamaður leitar viðbragða yfirmanns fíkniefna- deildar lögreglunnar og uppsker innihaldsrýr svör. Þá ræðir hann við framkvæmda- stjóra litháísku ferðaskrifstofunn- ar Jetis, en í umfjöllun Fréttablaðs- ins kom fram að þeir Litháar sem hingað hafa komið með fíkniefni eigi það nokkrir sameiginlegt að hafa bókað ferðina í gegnum þá skrifstofu. Framkvæmdastjórinn þvertekur þar fyrir að stofan eigi þátt í nokkurs konar óeðlilegu bókunarferli. Litháar fjalla um greinaflokk Fréttablaðsins „Ég er ekki einu sinni fær um að flytja sjálf, ég hef ekki heilsu,“ segir Birna Skarphéðins- dóttir, íbúi við Hringbraut 128 í Reykjanesbæ. Fasteignir Reykja- nesbæjar hafa selt níu félagslegar íbúðir í húsinu og sagt upp leigu- samningunum við íbúana. „Konan sem er tengiliðurinn okkar í húsnæðismálunum hjá bænum segir að það séu engar íbúðir til, þau hafi ekkert að bjóða okkur,“ segir Birna. „Við erum öryrkjar, einstæðar mæður og lágtekjufólk í íbúðun- um, þannig að manni finnst þetta skrýtið. Okkur var bara sagt að búast við hinu versta og vona það besta,“ segir Birna. Íbúum var til- kynnt um söluna 1. júlí. „Það stóð til áður en ákveðið var að selja að taka þessa blokk í gegn að utan, hún er orðin svolítið ljót að utan,“ segir Birna. Hún segir þó íbúðirnar hafa verið teknar í gegn á nýliðnum árum og nýjar hita- og vatnslagnir verið lagðar. Fasteignir Reykjanesbæjar er að fullu í eigu Reykjanesbæjar og rekur félagslegar íbúðir í bænum fyrir aldraða, lágtekjufólk og aðra. „Við eigum 250 íbúðir og erum alltaf að kaupa og selja, byggja og hvaðeina,“ segir Hjörtur Zakarías- son, framkvæmdastjóri Fasteigna Reykjanesbæjar. „Þarna erum við að selja íbúðir sem eru okkur óhagstæðar og gamlar, það þarf mikið að endur- nýja. Við ætluðum að taka þessa blokk í gegn fyrir tugi milljóna áður en kom að þessu söluferli.“ Að sögn Hjartar hefur bærinn skipað nefnd sem mun fara yfir húsnæðismál sveitarfélgsins. Hvort nýjar íbúðir komi í staðinn fyrir þessar sé óljóst. Hjörtur segir nýja eigendur vera tilbúna að leigja fólkinu íbúð- irnar áfram, en segist ekki vita hvort leigan verði jafn lág. Annars geti fólkið leitað til félagsþjónustu bæjarins. „Auðvitað á fólk sinn rétt, alveg þriggja mánaða uppsagnarfrest upp í ár, alveg eftir því hvað það hefur verið lengi. Það getur líka komið til Reykjanesbæjar og sótt um íbúð,“ segir Hjörtur. Á seinustu tveimur til þremur árum hafa Fasteignir Reykjanes- bæjar selt um 25 íbúðir, að sögn Hjartar, og lítið komið í staðinn. 25 íbúða blokk hafi hins vegar verið reist árið 2000. „Það getur ekki verið markmið að fjölga félagslegum íbúðum því að við viljum að fólk hjálpi sér sjálft helst,“ segir Hjörtur. Íbúar félags- íbúða segjast úrræðalausir Íbúum níu félagslegra íbúða í Reykjanesbæ var tilkynnt um sölu þeirra 1. júlí og uppsögn leigusamninga þeirra. Bærinn hefur selt 25 félagslegar íbúðir á síðustu árum en alls eru slíkar íbúðir um 250 í bænum. Fimmtán ára stúlka var stöðvuð undir stýri á bíl í íbúðargötu í Hafnarfirði í fyrra- dag, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hún mældist á kolólöglegum hraða og hafði eðli málsins samkvæmt heldur aldrei öðlast ökuréttindi. Þá var karlkyns jafnaldri hennar stöðvaður undir stýri á vespu í einu úthverfa Reykjavíkur. Hann hafði ekki réttindi til að aka slíku ökutæki, og var þar fyrir utan með hjálmlausan farþega aftan á hjólinu. Allnokkrir ökumenn til viðbótar voru stöðvaðir fyrir hraðakstur í borginni í fyrradag. Fimmtán ára ók allt of hratt „Tilkynningar varðandi útivist unglinga aukast alltaf á sumrin. Við fáum þó nokkurn fjölda af tilkynningum um unglinga í útilegum sem hafa ekki aldur eða þroska til og einnig um unglingadrykkju. Það má segja að langflestar tilkynningar komi frá lögreglu,“ segir Halldóra Gunnars- dóttir, framkvæmdastjóri Barna- verndarnefndar Reykjavíkur. Hún segist hafa tilfinningu fyrir því að það sé heldur meira frjálsræði á sumrin en það sé þó ekki merkjanlegur munur á tilkynningum eftir tímabilum á árinu. „Við höfum fengið fyrir- spurnir frá foreldrum um hvað sé eðlilegt og hvað megi varðandi að skilja barn eftir eitt heima. Við fáum þó tilkynningar allan ársins hring um að börn séu skilin eftir ein heima eða í umsjá annarra barna.“ Hrefna Friðriksdóttir, lög- fræðingur Barnaverndarstofu, segir að ekki séu til neinar beinar reglur varðandi á hvaða aldri börn mega vera ein heima. „Þetta er eitt af því sem foreldrum er treyst til að sjá um. Ef það kviknar grunur um að foreldri fari ekki nógu vel með hlutverk sitt þá er sjálfsagt að tilkynna það og skoða hvert tilvik fyrir sig enda eru þau mjög mismunandi,“ segir Hrefna. Unglingadrykkja áberandi

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.