Fréttablaðið - 12.07.2007, Blaðsíða 12
Óvíst er enn hvaða
áhrif árásin á rauðu moskuna í
Islamabad mun hafa á álit
landsmanna í Pakistan á Pervez
Musharraf forseta. Töluvert hefur
verið um mótmæli gegn honum
síðustu daga.
Um 500 manns komu saman í
Peshavar í gær og hrópuðu vígorð
gegn forsetanum, og um fimmtán
manns komu einnig saman framan
við byggingu hæstaréttar í
Islamabad til að krefjast afsagnar
Musharrafs.
„Aðgerðinni er lokið. Allir sem
voru inni eru komnir út,“ sagði
Shaukat Aziz, forsætisráðherra
Pakistans, við blaðamenn að átök-
unum loknum snemma í gær. Hann
sagði engin lík af konum eða börn-
um hafa fundist og taldi litlar líkur
á að fleiri lík myndu finnast.
Meira en 50 herskáir múslimar
og tíu hermenn létu lífið í átökun-
um, sem hófust fyrir dögun á
þriðjudag og stóðu samfleytt í 35
klukkustundir.
Alls hafa átökin um moskuna,
sem hófust snemma í síðustu viku,
kostað meira en áttatíu manns
lífið.
Einn af foringjum í pakistanska
hernum sagði síðustu klukkustundir
átakanna hafa farið þannig fram
að hermenn fóru á milli herbergja
í kjallara kóranskólans, sem er við
hlið moskunnar, þar sem þeir
sprengdu upp hvert fylgsni
andstæðinga sinna á fætur öðru.
Stjórnvöld í Pakistan halda því
fram að 1.300 manns, bæði karlar,
konur og börn, hafi komið út úr
byggingunum frá því að umsátrið
hófst fyrir rúmri viku. Áður en inn-
rásinni lauk var talið að hundruð
manna gætu hugsanlega verið þar
enn og í gær voru margir foreldrar
að leita að börnum sínum inni í
moskunni.
Átökum um rauðu
moskuna lokið
Pakistanski herinn vann í gær endanlegan sigur á herskáum múslimum í rauðu
moskunni í Islamabad. Engin lík af konum eða börnum sögð hafa fundist í
moskunni. Átökin um moskuna hafa kostað meira en áttatíu manns lífið.
OLÍS – við höldum með þér!
Gleymdirðu
nokkru?
Komdu við hjá Olís
Coleman-hitabrúsi
0,75 l
Primus-ferðagasgrill
ásamt slöngu
Primus-tjaldhitari
2000–2500 W Primus-hella
Coleman-lugt, samfellanleg
Ath! Gaskútar seldir sér
5.900
kr.
Sumar
tilboð!
6.900
kr.
1.690
kr.
2.900
kr.
1.990
kr.
250 kr
. 550 kr
. 8
90 kr.
Coleman-gasflöskur
190 but./pro. 250 but./pro. 500 but./pro.
Fullbúin máltíð á innan við 5 mínútum
Má bjóð
a þér
upp á ýs
u í kvöld
?
„Það besta er farið úr Sigtúninu en ég á samt
slatta eftir af skápum, sófum og rúmum,“ segir
Ástvaldur Óskarsson, sem rak sölu varnarliðseigna í
gamla Blómavalshúsinu við Sigtún. Hann er nú fluttur
þaðan og hyggst halda sölunni áfram á geymslusvæð-
inu gegnt álverinu í Straumsvík. Þar byggir hann hús
undir verslun sína.
„Ég seldi um 250 gáma af dóti í Sigtúninu og á um 40
gáma eftir. Húsnæðið í Sigtúninu var orðið of stórt
fyrir starfsemina en í nýju búðinni ætla ég að taka upp
úr einum gámi í einu og hafa þetta minna í sniðum.“
Ástvaldur segist hafa gefið töluvert til góðgerðar-
mála en hann sendi meðal annars nokkra flutningabíla
til Samhjálpar.
Neytendastofa innkallaði lampa síðari hluta ársins
2006 vegna þess að þeir leiddu út. „Engir eftirmálar
voru vegna þessara lampa,“ segir Ástvaldur.
Hann segir viðskiptavini sína vera úr öllum áttum,
einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir. „Ég hef til dæmis
selt næstum alla bílana en þeir voru á bilinu 150 til 180
talsins og ég á kannski tíu eftir.“
Um fjörutíu gámar eru eftir