Fréttablaðið - 12.07.2007, Síða 24
taekni@frettabladid.is
Talsmenn írska fyrir-
tækisins Steorn segjast
hafa fundið upp tæki
sem gefur frá sér meiri
orku en það notar. Mikil
leynd hefur hvílt yfir
tækinu, sem nefnist
Orbo, síðan það var
kynnt í fyrra.
Halda átti kynningu
núna í byrjun júlí, en af
óviðráðanlegum orsök-
um þurfti fyrirtækið
að hætta við hana. Enn
hafa engir vísinda-
menn fengið að sann-
reyna fullyrðingar talsmanna fyrir-
tækisins.
Sean McCarthy, forstjóri Steorn,
segir tækið snúa öflugum rafsegl-
um í kringum hverja aðra til þess að
framleiða meiri orku en fer í að
snúa seglunum. Þannig verði til
orka úr engu. Þetta
kemur fram á fréttavef
BBC.
Fyrsta lögmál
varmafræðinnar segir
að orka geti aðeins
breyst úr einu formi í
annað, til dæmis úr
stöðuorku í hreyfiorku,
en hvorki sé hægt að
búa hana til né eyða
henni. Ef í ljós kemur
að þetta lögmál heldur
ekki alltaf er grunnur-
inn að tækniþróun
mannkynsins hruninn
eins og hann leggur sig. Sem betur
fer hefur það aldrei nokkurn tím-
ann í sögu vísindanna brugðist.
McCarthy segir fyrsta lögmál
varmafræðinnar líkara trúarkenn-
ingu en lögmáli. Hann sé staðráð-
inn í að brjóta það fyrstur allra.
Á íslensku Wikipedia-síð-
unni má finna upplýsingar
um allt mögulegt og ómögu-
legt. Yfir sextán þúsund
greinar hafa verið skrifað-
ar á síðuna síðan hún var
opnuð árið 2003. Tuttugu og
tveir stjórnendur í sjálf-
boðavinnu sjá um að skrifa
greinar og lagfæra þær sem
fyrir eru.
Smári McCarthy, tuttugu og
þriggja ára stærðfræðinemi, er
einn þeirra sem halda um stjórn-
artaumana á íslensku útgáfu
Wikipedia-síðunnar. Hann segir
starfið að mestu leyti felast í að
halda ákveðnum gæðastaðli í
greinum og umfjöllunum, og lag-
færa hvers kyns skemmdarverk
eða staðreyndavillur. Stjórnendur
sjái einnig um að skrifa greinar og
bæta við þær sem fyrir eru.
Fyrir þá sem ekki vita er Wiki-
pedia ókeypis alfræðirit á netinu
sem allir geta skrifað í og lagfært.
Enska útgáfan var sett á netið árið
2001 og er í dag ein vinsælasta
síðan á internetinu.
„Þetta er allt saman unnið í
sjálfboðavinnu, fólk skrifar eftir
því sem það hefur áhuga og tíma
til. Flestir gera þetta af því að þeir
hafa gaman af því að miðla upp-
lýsingum og koma þeim á fram-
færi,“ segir Smári. „Markmið
Wikipedia er háleitt: Að reyna að
gera öllum íbúum jarðar kleift að
fá sameiginlegar upplýsingar
mannkyns á sínu eigin tungu-
máli.“
Smári segir íslenska hluta
Wikipedia hafa vaxið ört á undan-
förnum árum. Lengi vel var mark-
miðið að ná tíu þúsund greinum en
nú eru þær yfir sextán þúsund
talsins. Nú er aðalmarkmiðið að
fjölga svokölluðum gæða- og
úrvalsgreinum, en það eru greinar
sem uppfylla ákveðin skilyrði um
hlutleysi, nákvæmni og framsetn-
ingu, segir hann.
„Þótt fólk sé misduglegt að
skrifa á síðuna skipta allir máli
sem koma að henni. Ég hvet alla til
að taka þátt í þessu verkefni, að
reyna að koma allri mannlegri
þekkingu á framfæri á íslensku.“
Síðuna má finna á slóðinni www.
is.wikipedia.org.
Riddarar mann-
legrar þekkingar
Forritum meinaður aðgangur með manneskjuprófi
B&L