Fréttablaðið - 12.07.2007, Side 32
Í Íþróttaakademíunni í Kefla-
vík verður kennd ný nálgun að
einkaþjálfunarnámi frá og með
komandi vetri þar sem áhersla
er lögð á að vinna út frá jafn-
vægi og líkamsstöðu. Haraldur
Magnússon er osteopati og
kennir einkaþjálfun við Aka-
demíuna.
„Það má segja að þetta sé ósköp
venjuleg einkaþjálfun sem snýst
um að meðhöndla hvern og einn
eftir því hvar veikustu hlekkirnir
eru í líkamanum,“ segir Haraldur
og bætir því við að það sé nokkur
breyting frá því sem verið hefur.
„Þú kemur bara til einkaþjálfara
og segir honum hvað þú vilt gera;
léttast, styrkjast, grennast eða
eitthvað slíkt og færð þá æfinga-
kerfi upp úr bunka eftir því.“
Haraldur segir hins vegar að
nýja hugmyndafræðin sé persónu-
miðuð og leitist við að rétta úr lík-
amsstöðunni og hafa jákvæð áhrif
á hana ásamt því auðvitað að
styrkja líkamann. „Það sem er mik-
ilvægast í þessu er að áður en byrj-
að er að æfa fer hver og einn í gegn-
um stoðkerfagreiningu til að finna
út hvaða áherslur þarf að hafa í
þjálfuninni. Til dæmis ef önnur
öxlin liggur ofar en hin eða aftar þá
veit ég að ákveðnir vöðvar þurfa
teygju á móti hinum. Eins eru hugs-
anlega einhverjar æfingar sem
þarf að forðast en aðrar sem leggja
þarf sérstaka áherslu á á móti,“
segir Haraldur og bætir við:
„Æfingunum er þá raðað upp með
það að markmiði að líkaminn nær
jafnvægi, líkamsstaðan jafnast og
fólki líður betur fyrir vikið.“
Haraldur segir alla helstu einka-
þjálfara heims vera búna að taka
upp þessar persónumiðuðu aðferð-
ir og nú sé loks verið að innleiða
þær hér á landi.
„Það verður dálítið breytt fyrir-
komulag á einkaþjálfunarkennsl-
unni í vetur því við ætlum að
minnka áhersluna á akademíska
þáttinn en auka á móti verklega
þáttinn, enda er þetta verklegt
starf,“ segir Haraldur osteopati að
lokum.
Einstaklingsmiðuð einkaþjálfun
Unglingar fá fleiri tækifæri til áfengisneyslu á bæjar- og
útihátíðum, sem fer fjölgandi. Skipuleggjendur og foreldrar ættu
að bera sameiginlega ábyrgð.
Bæjar- og útihátíðir gefa sumrinu
skemmtilegan blæ. Þeim fer
fjölgandi ár hvert en leiðinlegur
fylgifiskur slíkra hátíða er oft ölvun
og óspektir. Hátíðirnar gefa því
miður unglingum fleiri tækifæri til
að neyta áfengis og því hefur
Lýðheilsustöð sent frá sér áminningu
um ábyrgð skipuleggjenda og
foreldra.
Fullorðnir eru alltaf fyrirmynd
barna og ungmenna varðandi áfengisdrykkju. Lýðheilsustöð hvetur til
sameiginlegrar ábyrgðar þannig að bæjar- og útihátíðir geta staðið undir
nafni og verið hátíð og skemmtun. Sjá nánar um áminningu Lýðheilsu-
stöðvar: www.lydheilsustod.is
Stutt kynning verður haldin á klukkutíma
fresti auk þess sem hægt verður að ræða við
starfsfólk, kynna sér kennslubækur og skoða
kennsluaðstöðuna sem er til fyrirmyndar.
Léttar veitingar í boði.
Kynning á einkaþjálfara-
náminu í dag,
12. júlí, kl. 16–19
Auglýsingasími
– Mest lesið