Fréttablaðið - 12.07.2007, Page 32

Fréttablaðið - 12.07.2007, Page 32
Í Íþróttaakademíunni í Kefla- vík verður kennd ný nálgun að einkaþjálfunarnámi frá og með komandi vetri þar sem áhersla er lögð á að vinna út frá jafn- vægi og líkamsstöðu. Haraldur Magnússon er osteopati og kennir einkaþjálfun við Aka- demíuna. „Það má segja að þetta sé ósköp venjuleg einkaþjálfun sem snýst um að meðhöndla hvern og einn eftir því hvar veikustu hlekkirnir eru í líkamanum,“ segir Haraldur og bætir því við að það sé nokkur breyting frá því sem verið hefur. „Þú kemur bara til einkaþjálfara og segir honum hvað þú vilt gera; léttast, styrkjast, grennast eða eitthvað slíkt og færð þá æfinga- kerfi upp úr bunka eftir því.“ Haraldur segir hins vegar að nýja hugmyndafræðin sé persónu- miðuð og leitist við að rétta úr lík- amsstöðunni og hafa jákvæð áhrif á hana ásamt því auðvitað að styrkja líkamann. „Það sem er mik- ilvægast í þessu er að áður en byrj- að er að æfa fer hver og einn í gegn- um stoðkerfagreiningu til að finna út hvaða áherslur þarf að hafa í þjálfuninni. Til dæmis ef önnur öxlin liggur ofar en hin eða aftar þá veit ég að ákveðnir vöðvar þurfa teygju á móti hinum. Eins eru hugs- anlega einhverjar æfingar sem þarf að forðast en aðrar sem leggja þarf sérstaka áherslu á á móti,“ segir Haraldur og bætir við: „Æfingunum er þá raðað upp með það að markmiði að líkaminn nær jafnvægi, líkamsstaðan jafnast og fólki líður betur fyrir vikið.“ Haraldur segir alla helstu einka- þjálfara heims vera búna að taka upp þessar persónumiðuðu aðferð- ir og nú sé loks verið að innleiða þær hér á landi. „Það verður dálítið breytt fyrir- komulag á einkaþjálfunarkennsl- unni í vetur því við ætlum að minnka áhersluna á akademíska þáttinn en auka á móti verklega þáttinn, enda er þetta verklegt starf,“ segir Haraldur osteopati að lokum. Einstaklingsmiðuð einkaþjálfun Unglingar fá fleiri tækifæri til áfengisneyslu á bæjar- og útihátíðum, sem fer fjölgandi. Skipuleggjendur og foreldrar ættu að bera sameiginlega ábyrgð. Bæjar- og útihátíðir gefa sumrinu skemmtilegan blæ. Þeim fer fjölgandi ár hvert en leiðinlegur fylgifiskur slíkra hátíða er oft ölvun og óspektir. Hátíðirnar gefa því miður unglingum fleiri tækifæri til að neyta áfengis og því hefur Lýðheilsustöð sent frá sér áminningu um ábyrgð skipuleggjenda og foreldra. Fullorðnir eru alltaf fyrirmynd barna og ungmenna varðandi áfengisdrykkju. Lýðheilsustöð hvetur til sameiginlegrar ábyrgðar þannig að bæjar- og útihátíðir geta staðið undir nafni og verið hátíð og skemmtun. Sjá nánar um áminningu Lýðheilsu- stöðvar: www.lydheilsustod.is Stutt kynning verður haldin á klukkutíma fresti auk þess sem hægt verður að ræða við starfsfólk, kynna sér kennslubækur og skoða kennsluaðstöðuna sem er til fyrirmyndar. Léttar veitingar í boði. Kynning á einkaþjálfara- náminu í dag, 12. júlí, kl. 16–19 Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.