Fréttablaðið - 12.07.2007, Qupperneq 40
12. JÚLÍ 2007 FIMMTUDAGUR8
Gönguferðir niður Austurdal í
Skagafirði eru nýjung í afþrey-
ingu á Norðurlandi. Leiðsögu-
maður er kennarinn Gísli Rún-
ar Konráðsson, Skagfirðingur í
húð og hár.
„Þetta er þægileg gönguleið um
óbyggðir og eyðibyggðir og fólk
þarf ekkert að bera annað en nesti,
hlífðarföt og vaðskó,“ segir Gísli
þegar hann er beðinn um að lýsa
fyrirhuguðum ferðum niður Aust-
urdal. Hann býr á Sauðárkróki og
þar segir hann lagt upp á föstudag
og keyrt fyrst inn að Laugafelli en
síðan að gangnamannakofanum
Grána til gistingar. „Gráni rúmar
9-11 manns í kojum en hinir gista
í tjöldum,“ segir hann og tekur
fram að bílarnir bíði og taki tjöld-
in og svefnpokana til baka.
Næsta dag er gengið niður
Austurdalinn um 25 kílómetra
leið að sæluhúsi sem heiti Hildar-
sel. Fyrst er komið í svokallaðan
Stórahvamm sem er við Jökulsá
eystri. „Þar vex villt birki í mestri
hæð yfir sjávarmáli á Íslandi, eða
í 630-640 metra hæð,“ segir Gísli
og tekur fram að hægt sé að velja
hvort gengin sé fjallsbrúnin eða
farið niður í kjarrivaxna Löngu-
hlíðina. „Þegar komið er niður
að svokallaðri Fossá býðst þeim
sem vilja að fara sex kílómetra
krók upp á Fossárdal. Hinir halda
áfram.“ Neðan við Hvítá og Fögru-
hlíð er komið að tóftum bæjar sem
að sögn Gísla er talinn hafa farið í
eyði í svartadauða 1402 eða jafn-
vel fyrr. „Það eru fleiri svona
fornbýli á leiðinni. Nöfin þekkt en
sagan ekki,“ segir hann. Í Hildar-
seli er hins vegar ekki í kot vísað.
Þar er stórt sæluhús í eigu Ferða-
félags Skagfirðinga og fleiri sem
allt að 30-40 manns geta gist í með
góðu móti. „Þar er fullt af teppum
og því þarf enga svefnpoka,“ segir
fararstjórinn.
Seinni dagleiðin er mun styttri
en sú fyrri, bara 12 kílómetrar og
meira er að skoða af mannvistar-
leifum, að sögn Gísla. Fyrst tóftir
Nýjabæjar þar sem Bólu-Hjálmar
bjó á tímabili og fleiri bæja sem
fóru í eyði í kringum aldamótin
1900. Síðan er gengið að kirkju-
staðnum Ábæ. „Þar er alltaf sung-
in messa einu sinni á ári, sunnu-
daginn um verslunarmannahelg-
ina, og seinni ferðin hittir einmitt
á þann dag,“ segir Gísli.
Áfram er svo haldið þar til
komið er á móts við Skatastaði,
eyðibýli vestan megin við ána.
Þar er farið yfir Jökulsá á kláfi og
þangað er hópurinn sóttur. „Fyrst
var settur upp kláfur þarna um
1850. Jökulsá hreinsaði hann af
sér í vetrarflóðum fyrir nokkrum
árum og þá var nýr settur upp,“
lýsir Gísli og segir komið við í
heitu pottunum á Bakkaflöt áður
en kvaðst sé úti á Krók eða annars
staðar á leiðinni.
Tvær ferðir eru fram undan
í sumar hjá Gísla, dagana 20. til
22. júlí og hin 3. til 5. ágúst. Hann
tekur við pöntunum í símum 453
6634 og 893 6634. gun@frettabladid.is
Nesti, hlífðarföt og vaðskór
Horft til norðurs við tóftir Nýjabæjar.
MYND/HALLFRÍÐUR SVERRISDÓTTIR
Nafnarnir Gísli Konráðsson og Gísli Frostason aðstoða einn ferðafélagann yfir Hörtná. MYND/HALLFRÍÐUR SVERRISDÓTTIR
Kláfurinn við Skatastaði er frábær samgöngubót.
Gísli Rúnar við Hildarsel.