Fréttablaðið - 12.07.2007, Síða 42
12. JÚLÍ 2007 FIMMTUDAGUR10 fréttablaðið sumarið 2007
Flestir foreldrar vilja nota sumarleyfið
sem best með börnunum sínum og eitt
af því sem getur verið skemmtilegt er
að fara í fjallgöngur. Stefán Gunnars-
son, framkvæmdastjóri Jarðbaðanna í
Mývatnssveit, hefur gengið mikið með
sín börn og veit að hverju þarf að huga.
Stefán á tvö börn, nítján ára strák og fjórtán
ára stelpu, sem voru ekki gömul þegar hann
og Eygló konan hans byrjuðu að fara með
þau á fjöll. „Við fórum með strákinn strax
nokkurra mánaða gamlan í burðargrind á
bakinu og það var það sama með stelpuna,“
segir Stefán.
Fjölskyldan hefur gengið víða og í alls
konar veðrum. „Við höfum farið með börnin
með okkur, hvort sem er að vetri eða sumri
og í stórhríðarveðri gildir bara að búa börn-
in jafn vel og sjálfan sig. Við höfum líka
farið í gönguferðir víða erlendis þó að það
hafi verið miklu meira hérna heima og einu
sinni fórum við í tíu mánaða heimsreisu og
keyrðum niður Afríku og Suður-Ameríku og
um allar trissur með börnin.“
Stefán telur að ekkert eigi að vera því
til fyrirstöðu að fara með börn allt niður
í tveggja ára í styttri gönguferðir á fjöll.
„Krakkar eru náttúrulega þrælduglegir og
í nágrenni Reykjavíkur er til dæmis hægt
að ganga á Vífilfellið og Esjuna og einhver
slík fjöll. Svo er alls ekki tæknilega erfitt
að labba upp á Heklu og ég myndi segja
að það væri alveg hægt að fara með börn
frá sex til sjö ára aldri upp á hana, ef þau
eru dugleg og vel útbúin. Hekla er tæplega
fimmtán hundruð metra hátt fjall, en alls
ekki brött og auðveld fjallganga alla leið þó
að taki náttúrulega nokkra klukkutíma að
labba hana.“
Skóbúnaður skiptir máli og til þess að
geta gengið eitthvað að ráði verða börnin að
vera vel búin til fótanna. „Í dag er orðið að-
eins teygjanlegra hugtak hvað eru striga-
skór og hvað gönguskór og komnir svona
mjúkir og teygjanlegir göngustrigaskór. Ef
búast má við göngu í snjó ættu þau að vera
í nokkuð vatnsþéttum skóm og það er nátt-
úrulega ekki hægt að fara með börn í striga-
skóm eins og á Heklu því þar þarf að labba í
snjó part af leiðinni.“
Best er að yngstu börnin þurfi ekkert að
bera þegar farið er í fjallgöngur en þau eldri
ráða alveg við smá bakpoka að sögn Stef-
áns. „Ég myndi hafa þau alveg laus fram
undir svona sex ára en uppúr því er pass-
legt fyrir þau að halda á sínum eigin svefn-
poka ef farið er í nokkurra daga göngur.“
Ekki skiptir öllu máli hversu hratt er
gengið eða oft er stoppað á leiðinni að sögn
Stefáns ef börnin skemmta sér vel. „Grund-
vallarreglan þegar ferðast er með börn er
sú að það verður að vera gaman allan tím-
ann. Það skiptir engu máli hvort er stopp-
að oft eða sjaldan eða hvort er labbað hratt
eða hægt eða hvað er gert því að númer eitt
er að það verður að vera gaman. Um leið og
hættir að vera gaman er eins hægt að pakka
saman og fara heim,“ segir Stefán og hlær.
emilia@frettabladid.is
Fjölskyldan öll
saman á fjöll
Stórfjölskyldan í Víti síðasta sumar. Stefán, Eyrún
og Signý hittu bróður Stefáns og hans fjölskyldu á
hálendinu.
Stefán og Signý dóttir hans hafa gengið saman á fjöll frá því að hún var pínulítil. Hér eru þau í Dyrfjöllum.
Fjölskyldan tjaldaði í Stóruurð og hér er Eyrún,
kona Stefáns, við tjaldið.
Vinkonudagar
Sumartilboð
Þökkum frábærar viðtökur!
Bílskúrssala Austurbergi 18, 111 Reykjavík
Frábær verð frá 500-2000 kr
Bæði nýr og lítið notaður fatnaður til sölu
Kjólar - bolir - toppar - skyrtur - buxur - skór - línuskautar
Erum einnig með hársnyrtivörur frá TIGI til sölu á hlægilegu verði!
Opið - Föstudag 18-21 • Laugardag 12-17 • Sunnudag 12-17