Fréttablaðið - 12.07.2007, Page 46
12. JÚLÍ 2007 FIMMTUDAGUR14 fréttablaðið sumarið 2007
Sumartónleikar fara fram í
þrítugasta og þriðja sinn í Skál-
holti og eru rauði þráðurinn í
sumardagskránni.
„Helga Ingólfsdóttir og Manuela
Wiesler unnu það mikla afrek að
setja á stofn sumartónleikana á
sínum tíma. Þá þótti mörgum und-
arlegt að vera með slíka tónleika
úti í sveit en núna hafa þeir svo
sannarlega fest sig í sessi,“ segir
Kristinn Ólason, rektor við Skál-
holtsskóla.
Í Skálholti er fjölbreytt starf-
semi yfir sumartímann. Dagskrá-
in mótast þó mest af tónlistarstarf-
seminni og er þetta í þrítugasta og
þriðja sinn sem sumartónleikar
eru haldnir.
Tónlistarfólkið sem stendur að
sumartónleikunum æfir í Skál-
holti í allt sumar ásamt því að
leika á tónleikum á fimmtudögum,
laugardögum og sunnudögum.
Auk hinna hefðbundnu sumartón-
leika mun Mótettukórinn og stór-
hljómsveit undir forystu Harð-
ar Áskelssonar vera við æfingar í
Skálholti seinnipart sumars.
Í ágúst mun kórinn halda stór-
tónleika þar sem flutt verður H-
moll-messan eftir Bach mánudag-
inn 13. ágúst kl. 19.00 og Ísrael í
Egyptaland eftir Händel föstudag-
inn 17.ágúst.
„Tónleikar Mótettukórsins eru í
beinu framhaldi af sumartónleik-
unum og munu koma með nýja
vídd inn í dagskrána sem við fögn-
um mjög,“ segir Kristinn.
Skálholt tekur á móti þrjú
hundruð þúsund gestum á sumri,
sem ýmist sækja tónleika eða
njóta náttúrunnar á þessum sögu-
fræga stað. Að sögn Kristins er
gistiaðstaða Skálholtsskóla gífur-
lega vinsæl en þar er einnig rekið
veitingahús.
Skólinn tekur á móti ólíkum
hópum í mennta- og menningar-
skyni allan ársins hring. Þang-
að koma guðfræðingar, djákn-
ar og prestar til símenntunar auk
þess sem Skálholt skipuleggur
ýmis námskeið og ráðstefnur. „Í
haust kemur ný biblíuþýðing á ís-
lensku og þá verðum við með ráð-
stefnu og bjóðum fræðimönnum
á ýmsum sviðum enda um stóran
viðburð að ræða,“ segir Kristinn.
Flestir viðburðir Skálholts eru
með trúarlegu ívafi og tengjast
starfi kirkjunnar að einhverju
leyti. „Kirkjan vill gjarnan eiga
rödd í því starfi sem fer fram
hérna í Skálholti. Enda er eðlilegt
að kirkjan hafi skoðun á umhverf-
is- og velferðarmálum,“ segir
Kristinn sem nefnir einnig Kyrrð-
ardagana sem Skálholt býður upp
á.
„Kyrrðardagarnir eru gífur-
lega vinsælir og opnir öllum sem
hafa áhuga. Þá bjóðum við fólki að
hverfa úr amstri hversdagsleik-
ans hingað austur í kyrrðina. Dag-
skráin varir yfir helgi þar sem við
bjóðum upp á hvíld og fræðslu
með ólíkum áherslum,“ segir
Kristinn og nefnir meðal annars
fræðslu um sjúkraþjálfun, streitu,
jóga, gönguferðir og Qi Gong.
Staðurinn er vinsæll meðal
brúðhjóna og segir Kristinn sum
hjón jafnvel gista í Skálholti.
Hann hvetur þó fólk eindregið að
panta tímanlega vegna mikillar
eftirspurnar.
Allar upplýsingar um Skálholt
eru á slóðinni: www.skalholt.is.
Allar upplýsingar um sumartón-
leikana eru á slóðinni: www.sum-
artonleikar.is. rh@frettabladid.is
Menning og mannrækt
Kyrrðardagar í Skálholti eru gífurlega
vinsælir á veturna. Þar kemst fólk í góða
hvíld úr amstri dagsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Kristinn Ólason, rektor í Skálholtsskóla, segir sumartónleikana vera rauða þráðinn í
sumarstarfi í Skálholti. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM