Fréttablaðið - 12.07.2007, Page 66

Fréttablaðið - 12.07.2007, Page 66
Söngkonan ástsæla Ragnhildur Gísladóttir býður Völu Matt í ævin- týralegan mat í þættinum Mat og lífsstíl í kvöld. „Ragga er heilmikið að pæla í hollustu og náttúrulegu hráefni. Í kvöld er hún með fisk- rétt sem er örugglega fljótlegasta fiskuppskrift sem ég hef séð á ævinni,“ segir Vala. „Hún setur fiskinn bara í ofnfast fat með soja- sósu og ólífuolíu og skellir honum inn í ofn. Þá er hann orðinn alveg dýrindis réttur,“ útskýrir hún. Ragga ber fiskinn svo fram á skemmtilegan hátt. „Hún brytjar niður japanskar nori-þangplötur og ber þær fram með fiskinum, soðnu byggi og smá dijon-sinnepi. Þá er kominn svona skemmtilegur fingramatur með smá sushi-stemn- ingu. Þetta var alveg ofboðslega gott,“ segir Vala hrifin. Í eftirrétt bakaði Ragga svo bleikar, grænar og bláar pönnu- kökur. „Þetta voru fallegustu pönnukökur sem ég hef séð. Ragga er náttúrlega skrautleg og skemmtileg í sinni matargerð eins og í öllu öðru,“ segir Vala og hlær. Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur gaf nýlega út aðra uppskriftabók sína, sem er stútfull af leynivopnum úr eldhús- skúffum kórkvenna. Anna Sigurjónsdóttir ljóstrar upp uppskrift að lúxusfiskrétti. Anna hefur verið meðlimur í kórnum í ein sjö ár og líkar starfið afskaplega vel. „Það er alltaf nóg að gerast og þetta er afskaplega skemmtilegur hópur,“ sagði Anna, en í kórnum eru um 120 konur. „Við gáfum út uppskriftabók fyrir um tveimur árum síðan og svo plötu í tilefni tíu ára afmælis kórsins í fyrra. Svo förum við til útlanda að syngja annað hvert ár, og hitt árið ferðumst við innan- lands. Við vorum til dæmis á Aust- fjörðum núna í ár,“ sagði Anna. Þar að auki er farið í gönguferðir, útilegur og „makalaus“ hópur kór- kvenna hittist reglulega, að sögn Önnu. „Þetta er nánast þannig að vinnan trufli mann í þessu,“ bætti Anna hlæjandi við. Í matreiðslubókinni er að finna uppskriftir frá hverjum kórfélaga og stjórnendum. „Það var skylda að þetta væri uppskrift sem við notum reglulega og erum ánægð- ar með,“ útskýrði Anna, en lúxus- fiskrétturinn er í uppáhaldi á hennar heimili. „Það er mikið vegna þess að hann er mjög fljót- legur, þrátt fyrir að uppskriftin líti kannski út fyrir að vera flók- in,“ sagði hún. Rétturinn ber líka nafn með rentu að sögn Önnu. „Þetta er svo- lítill lúxus, svona spari – þegar maður bregður út af venjulega steikta fiskinum eða soðningunni,“ sagði hún og hló við. Bókina er aðeins hægt að kaupa hjá kórkonum. Nánari upplýsing- ar er að finna á síðunni www.lett- sveit.is. Farið í... ...að minnsta kosti einn lautartúr í sumar. Það er eitthvað óskaplega notalegt við að sitja á teppi og borða mat af fallegum plastdiskum. Takið aukateppi með og þá skiptir veður litlu máli. Matreiðslumeistarinn Ragnar Ómarsson verður næsti fulltrúi Íslendinga í matreiðslukeppninni Bocuse D’Or, að því er freisting.is greinir frá. Þetta er í annað skipt- ið sem hann etur kappi við rjóma matreiðslumanna heimsins, en Ragnar keppti fyrst árið 2005, þegar hann lenti í fimmta sæti. Í janúar á þessu ári keppti Friðgeir Ingi Eiríksson fyrir Íslands hönd og hafnaði í áttunda sæti. Bocuse D’Or, sem telst virtasta keppni af sínum toga í heiminum, hefur iðulega verið haldin annað hvert ár. Nú verður annar háttur hafður á, því undankeppni fyrir Evrópu fer fram í Noregi í júlí að ári liðnu. Ragnar þarf að hreppa eitt sjö efstu sætanna þar til að öðlast þátttökurétt í aðalkeppn- inni. Hún fer að vanda fram í Lyon í Frakklandi. Ragnar í Bocuse d‘Or Áhugafólk um matjurtir getur sótt sér innblástur í kryddjurtagarð Grasagarðs Reykjavíkur. „Við erum með um fjörutíu tegundir af kryddi og yrki, sem er afbrigði af plöntum sem menn hafa framræktað,“ útskýrir Eva G. Þorvaldsdóttir, forstöðumaður Grasagarðs Reykja- víkur. „Við erum með algengar tegundir eins og steinselju, dill og órigan, en líka fágætar tegundar á borð við sítrónujárnurt, sem kemur frá Suður-Ameríku, og eitt eintak af sykurlaufi frá Paragvæ,“ segir hún. Kryddjurtagarðurinn er úti undir berum himni, en ekki eru allar plöntur í honum fjölærar. „Margar kryddjurtir, til dæmis rósmarín og sykurlauf, þarf að flytja inn í hús á veturna. Hins vegar getur fólk ræktað jurtir á borð við piparmyntu, piparrót og skessujurt úti í garði hjá sér.“ Matgæðingar með græna fingur sem vilja frekari fræðslu ættu svo að leggja leið sína á Uppskeruhátíð garðsins í ágúst. „Þá verðum við meðal annars með smá fræðslu um kryddjurtir,“ segir Eva. Fágætar kryddjurtir Eþíópískur fingramatur besta máltíðin Sushi-stemning hjá Röggu Gísla Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.