Fréttablaðið - 12.07.2007, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 12.07.2007, Blaðsíða 68
Margrét Erla Maack ver sumrinu við magadans í New York. Samhliða því gleður hún hjörtu þeirra íslensku stúlkna sem kunna að meta second-hand föt. Hún býður afrakstur verslunarferða sinna upp á myspace. Margrét, sem er magadanskenn- ari í Kramhúsinu, elti uppáhalds magadanskennarann sinn til New York. „Svo á ég mjög góða vini hérna úti og flyt kannski út þegar ég er búin með námið. Ég klára háskólann í febrúar svo þetta er svona síðasta sumarið sem ég hef áður en ég verð fullorðin,“ sagði Margrét sposk, en hún stundar nám í ensku. Margrét segir ekki þverfótað fyrir second-hand verslunum í Brooklyn. „Ég bý eiginlega á Laugaveginum í Brooklyn, Bed- ford Avenue. Þetta er svolítið eins og Hvergiland, hér eru allir á sama aldri og ég og allir í not- uðum fötum,“ útskýrði Margrét, sem var fljót að kynna sér fram- boðið. Margrét kveðst hafa átt í vand- ræðum með að finna sér notuð föt á Íslandi. „Ég er ekkert feit, en ég hef svona eitthvað aðeins til að hrista í magadansinum,“ sagði hún og skellti upp úr. Mar- grét hafði meira upp úr krafsinu í verslunarleiðöngrum úti og telur sig hafa skýringu á því. „Ég held að flestar svona búðir heima kaupi inn frá Evrópu, en hérna er aðeins stærra fólk að gefa fötin sín,“ sagði hún. Uppboðin komu til vegna þess að Margréti „fannst eiginlega bara ósanngjarnt að sitja ein að þessu,“ að eigin sögn. Miðað við viðbrögðin sem hún hefur fengið virðast fleiri hafa verið í sömu sporum. „Það var ekkert smá- vegis vel tekið í þetta,“ sagði Margrét, sem hefur hingað til selt þrettán kjóla og er með tíu uppboð í gangi sem stendur. „Stelpurnar hafa líka verið dug- legar að senda mér skilaboð og spyrja hvort ég geti fundið eitt- hvað í þessari stærð eða þessum lit,“ sagði Margrét, en bendir þó á að ekki sé hægt að sérpanta. „Ég býð allt upp, þannig að þær sitja ekki einar að þessu. En ég passa að hafa uppboðin aldrei lengur en í þrjá, fjóra daga, svo þetta verði ekki of dýrt,“ bætti hún við. Hvaða myspace-meðlimur sem er getur boðið í fötin á slóðinni www.myspace.com/brooklyn- vintage. Fyrir tólf árum síðan gekk hinn 25 ára gamla Divine Brown út á Sunset Boulevard og stundaði iðju sína sem vændiskona. Þegar hvítur BMW renndi upp við hlið- ina á henni breyttist líf hennar á örskotsstundu. „Ég heiti Lewis,“ sagði maður með hafnaboltahúfu og bauð Brown að setjast uppí bílinn sinn. „Þú ert sæt,“ bætti hann við og þau keyrðu á brott. Framhaldið þekkja sennilega flestir en Divine og breski leikarinn Hugh Grant voru tekin við vafasama iðju í skuggasundi af lögreglunni í Los Angeles. Hugh missti eiginlega allt; í það minnsta unnustu sína Elizabeth Hurley og það tók hann þó nokkur ár að endurreisa feril sinn sem á þessum tíma var í miklum blóma eftir velgengni Four Weddings and a Funeral. Niðurlægingin var síðan full- komnuð þegar News of the World birti mynd af Brown í hinum víðfræga Versace-kjól sem Liz hafði gert heimsfrægan. Sögunni af Divine Brown hefur verið líkt við kvikmyndina Pretty Woman þar sem Richard Gere kolféll fyrir Juliu Roberts. Reyndar hét erótíska kvikmyndin hennar Brown einmitt þessu nafni og þrátt fyrir að skötuhjúin hafi ekki tekið upp langtíma- samband svífur andi Grant enn yfir lífi Brown. Vændiskonan græddi á tá og fingri, gerði áðurnefnda klámmynd sem byggði á reynslu hennar en hún var rifin út eins og heitar lummur. Og í dag er hún hamingjusöm móðir, moldrík eftir ástarævintýrið með Hugh Grant. Henni voru borgaðar milljónir fyrir að mæta í spjallþætti þar sem hún ræddi um reynslu sína á meðan Hugh Grant mætti til Jay Leno og baðst afsökunar á þessu öllum saman. Enn þann dag í dag er eftirspurnin eftir þjónustu Brown í sjónvarpi mikil og á næstunni kemur út DVD-diskur um líf hennar. Brown er gift plötuútgefanda og býr í vellystingum í Holly- wood. En hún hefur ekki gleymt breska séntilmanninum sem birtist henni eins og riddari á hvítum hesti. „Hugh Grant kom stelpunum mínum í gegnum háskóla og gaf þeim líf sem ég hefði aldrei getað látið mig dreyma um,“ sagði Divine í samtali við sjónvarpsþáttinn Hollywod Lives sem sýndur var í Bretlandi á dögunum. Divine Brown þakklát Hugh Grant Riceboy Sleeps, sameiginlegt verkefni Jóns Þórs Birgissonar, sem flestir þekkja sem Jónsa í Sigur Rós, og Alex Somers, kærasta hans, heldur utan á næstunni. Jónsi og Alex halda sýningu í Arkansas um næstu mánaðamót og í Melbourne í Ástralíu í október. Jónsi og Alex gáfu út myndabók með sama nafni í nóvember síðastliðnum og settu á sama tíma upp sýningu með myndum úr bókinni og vídeóverkum hér á landi. „Þetta er reyndar ekki sama sýning og við vorum með hérna heima, við erum búnir að vinna heilmikið í þessu,“ sagði Jónsi. Sýningarnar munu þó eiga eitthvað sameiginlegt. „Þegar við sýndum hérna heima vorum við búnir að finna gamla, ónýta gluggaramma sem við sýndum myndverkin í. Galleríeigandinn í Arkansas er búinn að finna fyrir okkur svipaða glugga úti, svo við gerum verkin hérna heima og setjum þau svo upp í gluggunum,“ útskýrði Jónsi. Þeir verða líka með vídeóverk og einhverja tónlist, að sögn Jónsa. Myndabókin Riceboy Sleeps verður jafnframt með í för, en fyrsta upplagið er nú uppselt og annað upplag í prentun. „Fyrstu þúsund eintökin voru númeruð, og þau eru búin. Nú verður þetta gert í stærra og ónúmeruðu upplagi, þannig að þetta verður miklu ódýr- ara líka,“ sagði Jónsi. „Við tökum einhver eintök með út, en við erum líka að vinna í því að fá einhvern dreifingarsamning, úti um allan heim. Það hefst vonandi einhvern tíma,“ sagði hann. Jónsi og Alex sýna í Arkansas
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.