Fréttablaðið - 12.07.2007, Side 71

Fréttablaðið - 12.07.2007, Side 71
Söngkonurnar Margrét Eir, Hera Björk, Regína Ósk og Heiða Ólafsdóttir hafa komið fram saman og vakið mikla lukku áhorfenda. Nú endurtaka þær leikinn vegna mikillar eftirspurnar og vellukkaðra tónleika fyrr í vetur. Með þeim verður píanóleikarinn Karl Olgeirsson en dívurnar munu halda tónleika bæði í Reykjavík og á Akureyri. Tónleikarnir eru á Domo, Þingholtsstræti 5, í kvöld og hefjast klukkan níu. Hinn 19. júlí halda þær seinni tónleikana á Græna hattinum á Akureyri og hefjast þeir einnig klukkan níu. Aðgangseyrir er 1.500 krónur. Dívur á Domo Hinni nýgiftu Evu Longoria hefur verið bannað að eignast börn strax af yfirmönnum hennar í Desperate Housewives. Framleiðandi þáttanna, Marc Cherry, minntist á það í ræðu sem hann hélt í brúðkaupinu að brúðhjónin mættu ekki eignast börn í heilt ár samkvæmt samningi þáttanna. Eva segir þetta þó alls ekki angra sig og að hún hlakki til að eyða tíma með eiginmanni sínum. „Okkur er alveg sama. Við viljum vera saman tvö ein um sinn þó svo að okkur langi auðvitað mjög mikið í börn þegar rétti tíminn kemur,“ sagði leikkonan nýgifta. Mega ekki eignast börn Þú missir ekki bara bílprófið ef þú ekur of hratt, heldur gæti bíllinn þinn verið gerður upptækur og þú greitt sekt sem jafngildir mánaðarlaunum margra. Hraðakstur borgar sig ekki - Í ALVÖRUNNI!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.