Fréttablaðið - 12.07.2007, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 12.07.2007, Blaðsíða 78
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Samkvæmt öruggum heimildum Fréttablaðsins hyggst Kaupþing blása til mikillar veislu á 25 ára afmæli fyrirtækisins síðar í sumar. Kaupþing hefur fengið sjálfan umboðsmann Íslands, Einar Bárðarson, til að skipuleggja stórtónleika sem fara fram annað hvort á Miklatúni, Laugardalsvelli eða Nauthólsvík en líklegast verður að teljast að Miklatún verði fyrir valinu enda sýndi það sig með Sigur Rósar-tónleikunum að grasflöturinn hentar vel fyrir slíka viðburði. Tónleikarnir fara fram á sjálfan afmælisdaginn eða 17. ágúst. Undirbúningur hefur verið í gangi í nokkuð langan tíma en mikil leynd hvílir yfir verkefninu. Nokkrir staðir hafa komið til greina við skipulagninguna og þá er það síður en svo létt verk að fá til liðs við sig alla fremstu tónlistarmenn þjóðarinnar á einum degi. „Ég get ekkert tjáð mig um þetta mál að svo stöddu,“ sagði Einar Bárðarson og var þögull sem gröfin. Sama var uppi á teningnum hjá Benedikt Sigurðssyni, upplýsingafulltrúa Kaupþings, sem vildi ekkert láta hafa eftir sér. „Kaupþing verður 25 ára í ágúst, það er rétt, en hvað við ætlum að gera er algjört hernaðarleyndarmál.“ Enginn aðgangseyrir verður á tónleikana heldur hyggst Kaupþing bjóða íslensku þjóðinni. Til stendur að byggja eitt stærsta svið sem sögur fara af í íslenskri tónlistarsögu og verður ekkert til sparað og bæði hljóð- og ljósakerfi verða með því öflugustu sem um getur. Heimildir Fréttablaðsins herma að tónlistarfólk á borð við Nylon, Lay Low og Stuðmenn hafi þegar gefið vilyrði fyrir að spila á tónleikunum og komi því til með að trylla lýðinn. Þá mun sjálfur Bubbi Morthens einnig stíga á svið ef allt gengur samkvæmt óskum. Enn á þó fjöldi íslenskra tón- listarmanna eftir að gefa svar og því má reikna með mikilli tónlistarveislu um miðjan ágúst. Bubbi og Nylon saman á sviði „Þessi hugmynd kviknaði nú bara þegar ég var eitthvað að ráfa á netinu og komst að raun um að það er enginn félagsskapur fyrir einhleypa,“ segir Anna Magnea Harðardóttir, fertugur grunnskóla- kennari í Hofsstaðarskóla. Hún kom á fót vefsíðunni soloklubburinn. com fyrr á þessu ári þar sem einhleypum Íslendingum gafst kostur á að kynnast öðrum í svipaðri stöðu. Og vefsíðan hefur blómstrað frá fyrsta degi. Félagar eru nú yfir sjötíu talsins á milli fertugs og fimmtugs og virkir hópar á borð við útivistarklúbbinn fara þrisvar í viku í göngur. Auk þess stendur félagsskapurinn fyrir ferðum í leikhús og bíó og fer saman út að borða. Anna Magnea tekur hins vegar skýrt fram að félags- skapurinn er hvorki staður fyrir daður né einhver kynlífsklúbbur. „Þetta eru bara góðir vinir sem nenna ekki alltaf að vera þriðja hjólið undir giftu félögunum,“ segir Anna Magnea og skellir upp úr. Yfir sjötíu manns eru virkir á vefsíðunni en innganga í félagið er háð nokkrum skilyrðum. Þannig þurfa áhugasamir að mæta á kaffi- húsafund á sunnudegi til að gefa upp kennitölur sínar en Anna Magnea segir þetta eingöngu gert til að halda hvers kyns vitleysing- um frá vefnum. „Hann er harð- læstur og fólk ræðir þar sín mál undir nafni,“ segir Anna. Konur eru í miklum meirihluta í félagsskapnum og vill Anna meina að karlar séu svolítið hægari af stað en hún hvetur þá endilega til að hafa samband. „Við höfum rætt að hafa nokkurs konar stuðnings- fulltrúa sem fólk getur haft sam- band við og mætt með á fundina,“ útskýrir Anna. Vefsíða klúbbsins er sem fyrr segir Sólóklúbburinn.com en vert er að ítreka að aðgangur að henni fæst ekki nema fólk mæti fyrst á fund hjá félaginu. Einhleypir Íslendingar stofna klúbb „Ég hef verið á leið í kaupstað á Bíldudal, hef staldrað við þarna í Bakkadal og einhver smellt af mér mynd. Ég var bóndi í tíu ár, en flutti í bæinn 1987.“ „Hingað var ég sendur með nesti og nýja skó. Mér var sagt að hér væri hæfileikafólkið, skrifstofan og að hér ætti ég að búa til ráðningar- samninga,“ segir Hannes Líndal Þjóðbjörnsson fjarskiptaverkfræð- ingur, en hann hefur í tæpt ár starf- að í borginni Bangalore á Indlandi við að opna nýja þróunardeild fyrir farsímarisann Nokia. „Ég er í því að ráða starfsfólk og hjálpa til við að búa til hugbúnað fyrir nýja farsíma. Við vinnum dag- lega að því að flytja fleiri verkefni frá Vesturlöndum því á Indlandi er nóg af fólki sem kann að splæsa saman tölvur og forrit,“ segir Hannes og bætir því hlæjandi við að í raun sé hann að saga greinina undan sjálfum sér. „Ég er sem sagt að kenna þeim að gera það sem ég geri og líklega að gera sjálfan mig atvinnulausan.“ Hannes segir gjörólíkt að vinna á Indlandi og í Danmörku þar sem hann starfaði áður fyrir Nokia. „Tímaskipulag fyrir mörgum Ind- verjum er eins ókunnugt og fílar á Reykjanesbraut svo maður þarf oft að passa þeirra tímaplön sérstak- lega. Það sama gildir um hina hörðu stéttaskiptingu í landinu þar sem fólk úr mismunandi þjóðfélagsstétt- um á erfitt með að líta hvort á annað sem jafningja, jafnvel inni á vinnu- staðnum. Á hinn bóginn eru Indverj- ar gegnumsneitt mjög duglegir, vel menntaðir og geta þulið upp stærð- fræðikenningar eins og vindurinn.“ Bangalore þykir ein vestrænasta borg Indlands og hefur verið kölluð Sílíkondalur austursins. Hannes segir að honum líki vistin vel. „Hér er aragrúi veitingahúsa og öflugt næturlíf sem endar þó alltaf með því að vopnaðir lögregluþjónar ryðj- ast inn á slaginu hálftólf þegar allt lokar. Hins vegar getur maður ekki verið annað en sáttur þegar maður er hér með einkabílstjóra, hlaupa- svein, heimilishjálp og mótorhjól.“ Þrátt fyrir þennan lúxus segist Hannes ekki geta hugsað sér að setj- ast að á Indlandi en hann flytur aftur til Kaupmannahafnar í sept- ember. „Ég veit ekki hvort ég hefði geðheilsu eða þolinmæði í að búa á Indlandi að eilífu. Eins yndislegt og þetta land er þá getur það reynt illi- lega á mann. Stéttaskiptingin, spill- ingin, mafían og fátæktin er allt að drepa. Það reynir á mann að þurfa að horfa framhjá þessu á hverjum degi til að geta sinnt því sem maður er sendur hingað til að gera. Ég get nú heldur ekki annað en sagt, þó það hljómi eins og guðlast í eyrum Íslendinga, að maður saknar rign- ingarinnar þegar maður sér hana ekki átta mánuði á ári.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.