Fréttablaðið - 30.07.2007, Page 32
„Ég á mjög góða vini en samt hef
ég verið mjög mikið ein í gegn-
um tíðina. Enda lærir maður
mest um sjálfan sig þannig.“
Björg Melsted, myndlistarkona og
kennari, átti oft í basli með afmælis-
hald sem barn. Margir lögðu leið sína
út úr bænum á leið í sumarfrí í lok júlí
og þess vegna meira en að segja það að
efna til almennilegrar veislu í Kópa-
vogi þar sem Björg ólst upp.
„Ég lagði mikla vinnu í að bjóða í af-
mælið mitt sem barn. Margir krakkar
voru í fríi, svo ég bauð hreinlega öllum
þeim sem eftir voru í hverfinu,“ segir
Björg brosandi.
Móðir hennar tók þessum mikla
skara alltaf vel að sögn Bjargar og
útbjó heljarinnar langborð. Enda ekki
um annað að ræða en að bjóða stórfjöl-
skyldunni líka.
Síðastliðin ár hefur þó Björg
aðallega einbeitt sér að afmælishaldi
þriggja sona sinna og hefur ekki lagt á
sig að bjóða öllum Vesturbænum í til-
efni dagsins.
Þrítugsafmælið var þó haldið með
pompi og prakt að sögn Bjargar enda
dugði ekki minna undir veisluna en
flugskýlið í Nauthólsvík. „Ég var ný-
búin að gifta mig og var ólétt þegar
ég varð þrítug. Þá héldum við æsku-
vinkonurnar heljarinnar grímuball og
leigðum okkur íburðarmikla kjóla í til-
efni veislunnar. Síðan vill svo til að við
erum allar mismunandi í laginu og því
útbjuggum við borða þar sem á stóð
Miss Small, Medium og Large sem við
bárum við dressin,“ segir Björg, skelli-
hlæjandi, sem sjálf var með magann út
í loftið undir krínólínkjólnum. Veislu-
gestir tóku grímuballið mjög alvar-
lega að sögn Bjargar og mættu í sínu
fínasta grímupússi.
Í ár heldur Björg og fjölskylda til
Portúgals í tilefni afmælisdagsins
hennar en einnig í tilefni afmælis mið-
sonarins. Hann kom í heiminn dag-
inn eftir afmæli mömmu sinnar fyrir
átta árum síðan. „Tuttugu og átta ára
afmælisdagurinn minn er án efa sá
eftirminnilegasti. Ég var alveg kominn
á steypirinn og var skrifuð inn daginn
fyrir afmælið mitt. Síðan leið og beið
og ég bauð í smá kaffi í tilefni dagsins.
Síðan skrapp ég bara upp á deild eftir
kaffið og átti drenginn,“ segir Björg
hlæjandi.
Í ár á hins vegar æskuvinkona
Bjargar von á barni í lok júlí og Björg
vonar að litla stelpan verði afmælis-
gjöfin í dag.
Þór Jónsson hefur verið ráðinn í nýtt
starf forstöðumanns almannatengsla
hjá Kópavogsbæ. Hann verður í for-
svari fyrir stefnumörkun, þróun og
skipulagningu á sviði innri og ytri
upplýsinga og almannatengsla. Auk
þess verður hann öllum sviðum og
deildum stjórnsýslu bæjarins til að-
stoðar og ráðgjafar um hvers kyns
málefni á því sviði.
Þór lauk prófi í blaðamennsku frá
Blaðamannaháskólanum í Stokkhólmi
árið 1991 og hefur sótt námskeið í
blaðamennsku og fjölmiðlarétti hér
á landi og erlendis. Hann hefur starf-
að á fjölmiðlum frá árinu 1985, þar
af í fjórtán ár á fréttastofu Stöðvar
2, Bylgjunnar og NFS. Þór starfaði
síðast sem upplýsingafulltrúi félags-
málaráðuneytisins en hefur auk þess
annast stundakennslu við Háskóla Ís-
lands í hagnýtri fjölmiðlun, í meist-
aranámi bæði í opinberri stjórnsýslu
og blaða- og fréttamennsku.
Þór hefur unnið ýmis verkefni
fyrir Norrænu ráðherranefndina og
sat um árabil í stjórn Norræna blaða-
mannaskólans í Árósum. Auk þess
hefur hann gegnt fjölmörgum fé-
lags- og trúnaðarstörfum. Þór hefur
enn fremur samið og þýtt bækur og
leikþætti, t.d. skrifaði hann ævisögu
Sigurðar Dementz Franzsonar óperu-
söngvara.
Þór forstöðumaður almanna-
tengsla í Kópavogi
Elvis Presley kemur opinberlega
fram í fyrsta sinn
AFMÆLISBÖRN
Sýningin Í ríki Vatnajökuls
WOW! verður haldin í Ný-
heimum á Höfn í Hornafirði
2. til 6. ágúst. Sýningunni
er skipt í þrjá meginþætti,
atvinnu, mannlíf og menn-
ingu. Settir verða upp básar
þar sem gestir og gangandi
geta nálgast uppýsingar,
rætt við heimamenn yfir
kaffibolla, hlýtt á kynningar
í fyrirlestrasal Nýheima og
virt fyrir sér svipmyndum
af mannlífinu í Hornafirði.
Á sama tíma fer fram á
Höfn Unglingalandsmót
UMFÍ og því ljóst að líflegt
verður í bænum.
Samhliða sýningunni
verður rekin útvarpsstöðin
Ríki Vatnajökuls FM 105,7
þar sem sjónum verður
beint að Unglingalandsmót-
inu, úrslitum og viðburðum
tengdum mótinu og sýning-
unni. Sýningin í Nýheim-
um verður opin daglega frá
klukkan 15-18.
Í ríki Vatnajökuls
Elskulegur faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Guðmundur Snæbjörn
Árnason
fyrrverandi verslunarmaður, Hjallaseli 55,
sem lést á Landspítalanum Fossvogi þann 14. júlí sl.,
verður jarðsunginn frá Dómkirkunni í Reykjavík á
morgun, þriðjudaginn 31. júlí kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ágústa Harting
Kristján Guðmundsson
Sigurður Guðmundsson
www.minningargreinar.is
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Fallegir legsteinar
á góðu verði