Fréttablaðið - 30.07.2007, Page 34
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, TÖLVULEIKIR,
DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA!
SENDU SMS JA SMF Á 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ MIÐA
HEIMSFRUMSÝND MEÐ
ÍSLENSKU OG ENSKU TALI 27. JÚLÍ
11.
HVER
VINNUR
!
Íslendingar læra
ekki af reynslunni.
Við látum okkur ekki
segjast og komum upp
um smáborgarahátt
okkar sí og æ. Fyrir
daga veraldarvefsins
áttum við auðveldara
með að leyna okkar innsta eðli en nú
hafa bloggsíður og gagnvirkir frét-
tamiðlar flett ofan af okkur. Við erum
kjaftasögusjúkir smáborgarar. Því
verður ekki leynt.
Hundurinn Lúkas hristi upp í
kjaftasöguþjóðinni sem fór offari á
netinu og spann upp óhugnanlegar
sögur af dauða hans. Þegar rakkinn
fannst sprelllifandi í Fálkafelli
skömmuðust sín margir og óskuðu
þess eflaust að geta tekið orð sín
til baka. Ég hélt í sakleysi mínu að
málið, eins fáránlegt og það nú var,
hefði megnað að vekja okkur aðeins
til umhugsunar um hvað við skri-
fum á netið.
En allt kom fyrir ekki. Í gær
lést maður í skotárás í Reykjavík.
Lögreglurannsókn var varla hafin
þegar dómstóll götunnar hafði
dæmt í málinu á netinu.
„Erlendir borgarar hér á ferð
engin spurning. Uppgjör í gangi
um hver ráði Reykjavík. Enda he-
fur lögreglan engin tök á þessu,
og þetta á bara eftir að versna,“
skrifar lesandi við frétt af málinu
á Vísir.is. Skömmu seinna hafði
þessi athugasemd verið fjarlægð
og lesendum var meinað að skrifa
fleiri athugasemdir við fréttina.
Kjaftasöguþjóðinni var ekki trey-
standi til þess.
Á Moggablogginu drógu menn
svipaðar ályktanir: „Þori að veðja
stórt að hér er um að ræða „farand-
verkamenn“ frá einhverju af gömlu
Sovétríkjunum eða Póllandi...
Sendum þá heim,“ skrifaði einn
bloggarinn og annar þóttist vita
hverju væri um að kenna. „Stefna
stjórnvalda í vímuefnamálum er
það sem skapar þetta ástand,“ skri-
faði hann án þess að blikna.
Ég hélt að Lúkas hefði kennt
okkur að fara varlega í fullyrðingar-
nar. Enda kom það á daginn að er-
lendar mafíur og fíkniefnabarónar
tengdust málinu ekki á nokkurn
hátt. Kjaftasöguþjóðin þarf enn að
læra að skammast sín.