Fréttablaðið - 30.07.2007, Blaðsíða 43
Á KAPLAKRIKAVELLI
MIÐVIKUDAGINN 1. ÁGÚST KL. 19.00
FORKEPPNI MEISTARADEILDAR 2007
frá Hvíta - Rússlandi
Forsala miða í FH-búðinni í Kaplakrika
FH
GEGN
FC Bate Borisov
Fjölmennum á völlinn og styðjum Íslandsmeistara FH
ÍSLANDSMEISTARAR FH 2004-2005-2006
Miðaverð kr. 1.500.-
Jamie Carragher,
varnarmaður Liverpool, segir að
Chelsea sé líklegast til að vinna
ensku deildina í ár en ekki
Manchester United. „United er
kannski meistari en Chelsea er
félagið til að miða við. Með Petr
Cech aftur í sínu besta formi
finnst ekki betri markmaður og
með John Terry fyrir framan
hann á Chelsea mikla möguleika á
að endurheimta titilinn,“ sagði
Carragher í sálfræðistríði fyrir
enska boltann.
„Liðið sem endar fyrir ofan
Chelsea verður meistari. United
er með gott lið og hefur líka
styrkt sig. Carlos Tevez myndi
breyta miklu fyrir möguleika
þeirra. Vonandi fá þeir hann
ekki,“ gantaðist Carragher.
Chelsea er betra
en Man. Utd.
Eftir ömurlegt tímabil í
fyrra hafa forráðamenn Bayern
Munchen tekið til í leikmanna-
hópi liðsins og er það þegar farið
að skila árangri. Bayern verður
ekki með í Meistaradeildinni á
þessu tímabili en liðið hefur sýnt
frábæra takta á undirbúnings-
tímabilinu.
Liðið vann um helgina deilda-
bikartitilinn í Þýskalandi en menn
á borð við Franck Ribery, Luca
Toni og Miroslav Klose, sem
komu til Bayern í sumar, líta vel
út og ljóst er að engin mistök
mega eiga sér stað hjá þýska
stórliðinu á komandi tímabili.
„Við erum komnir aftur,“ sagði
Ottmar Hitzfeld, stjóri Bayern.
Strax byrjað að
svara fyrir sig
Freddy Shepard,
fráfarandi stjórnarformaður
Newcastle, segir að Michael
Owen skuldi klúbbnum hollustu
sína. Owen hefur verið mikið
meiddur og á aðeins ellefu leiki
að baki fyrir félagið sem keypti
hann frá Real Madrid. Hann
meiddist á HM á síðasta ári og
spilaði ekki aftur fyrr en í maí.
„Hann skuldar Newcastle
mikið. Hann hefur spilað oftar
fyrir enska landsliðið en þetta
félag,“ sagði Shepard en framtíð
Owens hefur verið í óvissu eftir
að í ljós kom að bjóði félag 9,5
milljónir punda í hann geti
Newcastle ekki hafnað boðinu.
„Án klásúlunnar hefðum við ekki
getað keypt hann,“ bætti Shepard
við en síðasti virki dagur hennar
er á morgun.
Skuldar New-
castle tryggð
Forseti knattspyrnusam-
bands Evrópu, Michel Platini, lýsti
í gær yfir ánægju sinni með Evr-
ópumót kvennalandsliða skipuð
leikmönnum 19 ára og yngri sem
lauk í gær. Platini var staddur hér
á landi um helgina og veitti meðal
annars sigurlaunin að úrslitaleik
loknum á Laugardalsvelli í gær.
Á blaðamannafundi í höfuð-
stöðvum KSÍ sagðist Platini reynd-
ar ekki vita ýkja mikið um mótið.
„Ég get ekki fylgst með öllu en ef
eitthvað er að þá berast kvartanir
til mín. Mér hafa ekki borist nein-
ar kvartanir vegna mótsins og ég
er auðvitað mjög ánægður með
það,“ sagði Platini við blaðamenn í
gær.
Geir Þorsteinsson, formaður
Knattspyrnusambands Íslands,
sagðist einnig vera ánægður með
þetta glæsilega mót. „Þetta hefur
gengið mjög vel og allt hefur verið
í föstum skorðum,“ sagði for-
maðurinn ánægður.
Platini mjög sáttur
með Evrópumótið