Fréttablaðið - 30.07.2007, Page 46
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Nemendafélag tölvunarfræði-
nema við Háskólann í Reykjavík,
Tvíund, ætlar að efna til tölvu-
leikjamóts aðra helgina í ágúst.
Helgin verður því nokkurs konar
verslunarmannahelgi tölvunörd-
anna. „Vonandi eru allir helstu
nördar landsins að fara að mæta,“
sagði Bjarni Þór Árnason, upplýs-
ingafulltrúi Tvíundar, og hló við.
„Við höfum aldrei haldið svona
mót áður, en margir okkar hafa
tekið þátt í mótum. Þetta er líka í
fyrsta sinn sem svona mót er hald-
ið í skólanum,“ bætti hann við.
Mótið kallast Hringurinn og
verður tvískipt. Annars vegar
verður liðakeppni í tölvuleiknum
Counter-Strike, þar sem vegleg
verðlaun verða í boði, og hins
vegar leikjamót í öðrum leikjum.
„Við erum með kosningu samhliða
skráningunni. Það verður keppt í
leikjunum sem verða vinsælastir í
þeirri kosningu,“ útskýrði Bjarni.
Í Counter-Strike er keppt í fimm
manna liðum, en leikjamótið er
öllum opið.
Mótið fer fram í húsnæði
Háskólans í Reykjavík, frá klukk-
an 14 föstudaginn 10. ágúst til
sunnudagskvölds. „Þetta er nú oft
gert þannig að fólk flytur nánast
inn og spilar þar til það dettur
niður. Þetta verður eiginlega inni-
lega í staðinn fyrir útilegu,“ sagði
Bjarni sposkur. „En það verður
gæsla á staðnum allan tímann,“
bætti hann við.
Um 100 manns hafa þegar skráð
sig til leiks, en skráning stendur
enn yfir á hringurinn.net. Þátt-
tökugjald er tvö þúsund krónur.
„Það virðist vera mikill áhugi á
þessu. Samt er þetta kannski ekki
alveg besta tímasetningin svona
að sumri til. Ef vel gengur stefn-
um við á að hafa annað mót í jóla-
fríinu,“ sagði Bjarni.
Verslunarmannahelgi fyrir nördana
Fimm lög eftir Ingva Þór
Kormáksson komu nýlega út á
fjögurra diska safnplötu sem
nefnist The 1st Smooth Jazz
Avenue. Er platan, sem er gefin
út í Póllandi á vegum Sony/BGM,
komin í þrefalda platínusölu.
Á plötunni eru lög frá ýmsum
tímum, þau elstu í flutningi
þekktra nafna á borð við Louis
Armstrong, Ellu Fitzgerald, Doris
Day, Lisu Ekdahl, Chet Baker og
Tony Bennett. Ingvi er því í
aldeilis fínum félagsskap á
plötunni. „Þetta sker sig ekkert út
fyrir að vera lélegt. Þetta passar
alveg inn í þetta sem er þarna á
ferðinni,“ segir hann um lögin sín
fimm. „Þetta er ekkert leiðinlegt
og ég held að meiningin sé að
halda áfram með þessa
diskaröð.“
Tvö lög frá Ingva á plötunni
eru í flutningi hljómsveitar hans
JJ Soul Band, sem hann samdi í
samvinnu við breska söngvarann
JJ Soul. Jafnframt er aðal-
kynningarlag safnplötunnar Love
Me Tonight eftir Ingva í flutningi
Guðrúnar Gunnarsdóttur og tríós
Eðvarðs Lárussonar. Er það sama
lag og Eivör Pálsdóttir söng í
Söngvakeppni Sjónvarpsins árið
2003 og nefndist þá Í nótt. Lagið
hefur fengið fjölda verðlauna í
hinum ýmsu lagasmíðakeppnum,
þar á meðal fyrstu verðlaun á
Song Expo árið 2003 og á Unisong
ári síðar. Einnig fékk það 2. verð-
laun í flokki heimstónlistar í John
Lennon Songwriting Contest árið
2000. „Þetta sýnir að lagið hefur
náð til fólks,“ segir Ingvi, sem
botnar engu að síður ekkert í því
hvað það er við lagið sem gerir
það svona vinsælt.
Á fimm lög á metsöluplötu
Fyrirsætan Tinna Bergsdóttir
hefur búið og starfað í London
síðan í lok janúar á þessu ári. Hún
hefur haft nóg að gera og sat
nýverið fyrir í myndatökum fyrir
tímarit á borð við Elle, Marie
Claire og Harper‘s Bazaar auk
þess að koma fram á tísku-
sýningum, m.a. fyrir skartgripa-
framleiðandann Swarovski.
Samkeppnin í fyrirsætuheimi
borgarinnar er mikil enda segist
Tinna ánægð með hversu vel hefur
gengið. „Það eru mjög margar
stelpur að reyna fyrir sér hérna
og það er því ánægjulegt að hafa
komist inn í þessi blöð,“ segir hún.
Tinna bjó áður á Indlandi, þar sem
hún starfaði fyrir skrifstofu Esk-
imo Models. Hún fékk næg verk-
efni og sat meðal annars fyrir í
stórri Levi´s-herferð. Þaðan lá
leiðin til Tókýó og loks Lundúna.
Tinna segist ákveðin í að dvelja
í Evrópu um sinn. „Ég var
eiginlega komin með nóg af Asíu
og ákvað að fara til Evrópu. Ég
kem heim í ágúst og verð í tvær
vikur en svo fer ég aftur út til
þess að sýna á London Fashion
Week. Þaðan fer ég til Parísar,“
segir Tinna en hún er á mála hjá
skrifstofum í París og Mílanó sem
báðar hafa óskað eftir því að hún
komi til vinnu. „Mér finnst gott að
geta ferðast aðeins um,“ segir
hún. „Svo getur vel verið að ég
fari aftur til Tókýó fyrir jólin en
ég ætla að láta nægja að vera þar
í mánuð í þetta sinn. Annars hef
ég hugsað mér að vera að mestu í
Evrópu næstu mánuði þótt það
fari auðvitað eftir því hvernig
mér gengur að fá verkefni.“ Hún
segir að í raun sé ekkert til sem
heiti dæmigerður vinnudagur.
„Þetta er mjög mismunandi.
Stundum vinnur maður eins og
brjálæðingur marga daga í röð og
öðrum stundum fær maður ekkert
að gera í viku.“
Tinna leigir hjá vinkonu sinni í
London og býr þar með kærastan-
um, sem er indverskur og starfar
einnig sem fyrirsæta í borginni.
Þegar hún er innt eftir því hvort
fyrirsætustörfin gefi vel í aðra
hönd segir hún það
fara eftir ýmsu.
„Þetta getur verið
ágætlega borgað
þegar maður
lendir á góðum
verkefnum, en það
tekur tíma. Ég get
að minnsta kosti
keypt mér mat og
leyft mér ýmis-
legt,“ segir hún og
hlær.
„Ég hlusta yfirleitt bara á Popp-
land og það sem kemur þar. Það
er minn uppáhaldsþáttur. Ef ég
hlusta á annað í mp3-spilaran-
um mínum er það tónlist sem
menn kalla iðnaðarrokk eins og
Toto, Yes og Foreigner.“
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki