Fréttablaðið - 31.08.2007, Page 1
„Það er okkar tilfinning að tilraunum
til innflutnings á stórhættulegum ólöglegum
vopnum sé sífellt að fjölga,“ segir Kári Gunnlaugs-
son, deildarstjóri tollgæslunnar á Suðurnesjum.
Lagt hefur verið hald á yfir þrjú hundruð ólögleg
vopn frá 1. júní til 29. ágúst í sumar.
Tollgæslan fann stóra ólöglega hnífa í fórum
farþega sem var að koma frá Danmörku á þriðjudag
en flest þeirra ólöglegu vopna, sem hald er lagt á,
finnast í fórum farþega sem eru að koma frá Spáni.
„Það kemur mér ekki á óvart að lögreglumenn geri
í auknum mæli ólögleg vopn upptæk á götunum.
Þessi vopn sem við höfum lagt hald á í sumar eru
mörg hver stórhættuleg,“ segir Kári.
Nokkur hundruð loftbyssur eru í geymslum
Tollgæslunnar. „Sum þessara vopna eru skotvopn
sem geta valdið miklum skaða. Skotfærin í þau eru í
mörgum tilfellum járnkúlur sem eru stórhættuleg-
ar,“ segir deildarstjóri tollgæslunnar á Suðurnesj-
um.
Í geymslum tollgæslunnar hafa safnast upp
hnúajárn, kasthnífar ýmiss konar, kaststjörnur,
sverð og kylfur. Öllum vopnum er eytt skipulega
með reglulegu millibili.
„Þótt við náum ekki öllum vopnunum þá er gott til
þess að hugsa að þau hafi verið gerð upptæk, þar
sem sum þessara vopna voru augljóslega ætluð til
þess að hóta eða beita ofbeldi,“ segir Kári.
Sektir fyrir tilraunir til smygls á vopnum eru á
bilinu tíu til tuttugu þúsund, allt eftir tegund vopna.
Hægt er að ljúka málum með dómsátt á staðnum þar
sem hald er lagt á vopnin.
Föstudagur
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í júlí 2007
Lestur meðal 18–49 ára
á höfuðborgarsvæðinu
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
36%
B
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
D
V
44%
71%
12%
Ætlaði að verða
kokkur
Fri
ís fer í sjónvarpið
AUÐUNN BLÖNDAL AFTUR Í SJÓNVARPIÐ
Efribekkingar í
framhaldsskólunum eru farnir að
busa fyrsta árs nemendur eins og
sást í Flensborg í Hafnarfirði í
gær.
Busavígslan fór fram í íþrótta-
húsinu við Strandgötu og þar
gerðu busarnir boot camp-
æfingar, máluðu hver annan, veltu
sér upp úr hveiti og léku sér með
pylsur. Hrefna Geirsdóttir
aðstoðarskólameistari segir að
busavígslan sé alltaf jafnvinsæl
meðal nemendanna. Skólayfirvöld
fái ávallt dagskrána fyrirfram og
leggi blessun sína yfir hana.
Busunum velt
upp úr hveiti
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
.2
00
7
www.IKEA.is
NÝR
VÖRULISTI
Hefur lagt hald á 300
ólögleg vopn í sumar
Tilraunum til að flytja inn stórhættuleg vopn fjölgar sífellt. Deildarstjóri í
tollgæslunni segir sum vopnin augljóslega ætluð til þess að hóta eða beita ofbeldi.
Sigurjón Brink er landsfrægur söngvari en hitt
vita færri að hann er líka listamaður í matar-
gerð og gildir þá einu hvort um heimilismat eða
veislurétti er að ræða.
„Ég er alinn upp með annan fótinn í eldhúsinu því
faðir minn er matreiðslumaður og ég starfaði dálítið
með honum á skólaárunum. Það stóð eiginleg il
ég færi í kokkinn “ segi Sr
jón. „Þetta er kassagítar/partíplata, bæði með frum-
sömdum lögum eftir okkur og þekktum lögum eftir
aðra.“
En aftur að eldhúsinu. „Eins og ég sagði áðan þá
kviknaði snemma áhugi hjá mér á að fikra mig áfram
í matargerð,“ segir Sigurjón og í ljós kemur að samn
ingur er milli hans og konunnar ueldhúsið á h i
„Þetta sýnir hvar hjartað í
Eiði Smára er,“ segir Styrmir
Gíslason, meðlimur nýs stuðnings-
klúbbs fótboltalandsliðsins.
Í gær fékk Styrmir símtal frá
Eiði Smára Guðjohnsen sem vildi fá
að borga úr eigin vasa nærri tvö
hundruð miða á landsleikinn gegn
Spánverjum laugardaginn 8. sept-
ember. Miðana átti að selja í forsölu
á Ölveri í gær. Klúbburinn vakti
athygli með fjörlegri framkomu á
landsleik gegn Kanada á dögunum.
„Eiður Smári sagðist hafa tekið
eftir okkur og heyrt af okkur frá
hinum strákunum í landsliðinu
sem voru mjög ánægðir með okkar
framtak. Hann vildi láta gott af
sér leiða og gaf okkur einfaldlega
þessa miða,“ segir Styrmir sem
hafði gaman af viðbrögðum fólks
sem ætlaði að borga en fékk þá að
vita að miðarnir væru þegar
greiddir af landsliðsfyrirliðanum
sem verður frá vegna meiðsla.
„Eiður Smári lét nú fylgja að það
væri gott að þeir sem fengju mið-
ana myndu öskra eins og vitleys-
ingar og mæta líka á leikinn gegn
Norður-Írum.“
Eiður gaf 200 miða á landsleik
„Honum var veitt
tímabundin lausn á meðan málið
er skoðað. Maður furðar sig
auðvitað mjög á þessu,“ segir
Ágúst Hafberg, aðstoðar-
framkvæmdastjóri viðskiptaþró-
unar hjá Norðuráli.
Grunsemdir öryggisvarða hjá
Norðuráli vöknuðu þegar starfs-
maður sást hlaða álhleifum í
bifreið sína snemma í gærmorg-
un. „Þetta var í kringum hálft
tonn. Ég get ekki sagt að það sé
algengt að starfsmenn steli áli.“
Ágúst segir málið vera í skoðun
hjá Norðuráli og lögreglu. Hann
segir starfsmanninn hafa gefið
sínar skýringar á athæfinu og
verst fregna af málinu á meðan
rannsókn stendur yfir. Markaðs-
verð á hálfu tonni af áli er í
kringum 80 þúsund krónur.
Reyndi að stela
hálfu tonn af áli