Fréttablaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 40
 31. ÁGÚST 2007 FÖSTUDAGUR2 fréttablaðið haustferðir Hótel Valhöll á Þingvöllum er vafalítið með þekktustu hótelum landsins. Í dag er það rekið af einkaaðilum sem leggja metnað sinn í hlýlegar og glæsilegar innréttingar, höfðinglega þjónustu og góðan mat og reynir þannig að standa undir nafninu sem því var gefið, enda er Valhöll griðastaður forfeðra okkar úr goðheimum. Kristbjörg Kristinsdóttir hótel- stýra tók við rekstrinum fyrir tveimur árum, en hún er öllu vön þegar kemur að hótelrekstri því hennar fyrra starf var á Hótel Borg. „Við maðurinn minn, Agnar Róbertsson, tókum við Valhöll árið 2005 og alveg frá upphafi var stefnan sú að hafa þetta ró- legt og rómantískt sveitahót- el,“ segir Kristbjörg sem er við- skiptafræðingur að mennt. Ótal Íslendingar hafa sopið sunnudagskaffið sitt á Hótel Val- höll og tilkomumikið að fara á Þingvöll að skoða haustliti þegar vel viðrar. Fyrir sérlegt áhuga- fólk um náttúruskoðun sem kýs að gefa sér örlítið meiri tíma bendir Kristbjörg á rómantískar nætur sem innihalda gistingu og þriggja rétta kvöldverð. „Á sumr- in er tilboðið á 24.500 en vetr- arverðið er 19.500 krónur fyrir parið. Yfir dimmustu vikur árs- ins er ekki hefðbundinn opnunar- tími og því hvetjum við fólk til að slá á þráðinn áður en það kemur hingað hvort sem er í kaffi eða gistingu,“ segir valkyrjan Krist- björg að lokum. margret@frettabladid.is Rómantískir Þingvellir Kristbjörg Kristinsdóttir hótelstýra leggur áherslu á sveitarómantíkina í Valhöll. Innan skamms munu Þingvellir skarta sínu fegursta en haustlitaferð í þjóðgarðinn er með því skemmtilegasta sem margir vita. Kjúklingasalat með furuhnetum og basilolíu að hætti Valhallar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Baðstofan er eitt af betri herbergjum hótelsins. Sérlega íslensk, sveitaleg og sæt. Hvorki sjónvarp né útvarp eru á herbergjum svo að gestir fái notið kyrrðarinnar í botn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Barinn hefur fengið nýtt útlit sem aðrar vistarverur hótelsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Lagt er upp úr rómantískri stemningu í brúðarsvítu hótelsins en eigendurnir sáu sjálfir um að velja innanstokksmuni með aðstoð góðra vina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI - Húsið er aðeins örfáa kílómetra frá Akureyri - Kyrrð og ró með frábæru útsýni yfir Akureyri og Eyjafjörð - Fullbúið hús með þremur herbergjum og svefnlofti, vönduðum innréttingum og búnaði - Heitur pottur og hiti í gólfum, stór verönd og grill - Leigist minnst í tvær nætur í einu Höfum milligöngu um sjóstangveiði og hestaferðir. Kjörið fyrir brúðhjón, fjölskyldur, starfsmannafélög eða aðra sem vilja eiga notalegar stundir í stórkostlegu umhverfi. Upplýsingar veitir Eva Reykjalín netfang: evareykjalin@simnet.is eða Elvar í síma 892 9795 VAÐLA VILLAN LÚXUSHÚS Í HEIÐINNI EKTA GISTING OG SPORT við Akureyri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.