Fréttablaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 63
Krónan mín kæra
REYKJAVÍK:
Kringlan
Bankastræti 5
Faxafen 12
KÓPAVOGUR:
Smáralind
GARÐABÆR:
Miðhraun 11
AKUREYRI:
Glerárgata 32
www.66north.is
66
°N
o
rð
u
r/
áu
st
07
Rán
Létt, fóðruð, vatns-
fráhrindandi og hlý útiföt
Fást einnig í rauðu,
svörtu og ólífugrænu
úlpa 6.800 kr.
buxur 4.700 kr.
Bragi
Fóðraður kuldagalli
Fæst einnig appelsínugulur
12.500 kr.
Óðinn
Hlýjar og vindheldar
flísbuxur
Fást einnig ljósar og brúnar
4.400 kr.
Keen
Vatnsheldir og fóðraðir
kuldaskór
8.800 kr.
Frigg
Létt og
þægileg flíspeysa
5.700 kr.
Óðinn
vettlingar 1.500 kr.
húfa 1.700 kr.
lambhúshetta 1.700 kr.
Óðinn
Sígild flíspeysa
4.900 kr.
Ásgarður
Skinnfóðruð ullarhúfa
3.700 kr.
Bifröst
Ullarjakki
7.000 kr.
Frigg
Létt og góð
flísundirföt
peysa 4.900 kr.
buxur 4.400 kr.
Valhöll
Kláðafrí og mjúk ullarnærföt
peysa 4.300 kr.
buxur 3.900 kr.
Mikið úrval af fatnaði og smávörum fyrir hressa og káta skólakrakka á leið inn í veturinn. Margir litir.
REYKJAVÍK:
Kringlan
Bankastræti 5
Faxafen 12
KÓPAVOGUR:
Smáralind
GARÐABÆR:
Miðhraun 11
AKUREYRI:
Glerárgata 32
www.66north.is
Spáum
hlýju skólaári
Gjaldmiðill okkar Íslendinga frá 1885,
krónan, er nú sem oft
áður í brennidepli efna-
hagsumræðunnar. For-
svarsmenn og forstjórar
allnokkurra stórfyrir-
tækja sem reka
umfangsmikla starf-
semi erlendis halda því
fram fullum fetum að tími krón-
unnar sé liðinn og því sé innreið
evrunnar tímaspursmál. Banka-
menn, fræðimenn í háskólasamfé-
laginu og ýmsir sjálfskipaðir sam-
félagsrýnar taka í sama streng.
Sífellt fleiri virðast
vera þeirrar skoðunar
að einhvers konar
tenging við evru væri
heppilegri kostur en
núverandi peninga-
stefna. Margir vilja
taka upp evru, jafnvel
án þess að ganga í
Evrópusambandið.
Um það má gjarnan
deila hvort hægt sé að
taka upp evru án þess
að ganga í ESB en Gabriel Steil,
sérfræðingur hjá Lombard
Institute í London, heldur því fram
að slíkt sé hægt. Á ráðstefnu á
vegum RSE sem haldin var í
síðustu viku sagði hann: „You
would be mad to join the EU and if
you do, don’t say you weren’t
warned.“ Ég er hjartanlega
sammála honum að því leyti, að
það væri brjálæði að ganga í
Evrópusambandið.
Ástæðan fyrir stöðugleika og háu
gengi evrunnar er það traust sem
fólk hefur á henni. Ef hún glatar
þessu trausti fer stöðugleikinn
fyrir lítið og má gera ráð fyrir
ýmsum slæmum afleiðingum.
Muni Ísland taka upp evruna og
afsala sér sjálfstæðri efnahags-
stjórn, getum við ekki brugðist við
þessum afleiðingum og neyðumst
til að þola hitann og þungann af
sveiflum á evrópskum mörkuðum.
Efnahagsástandið á Íslandi hefur
sjaldan verið betra en í dag.
Verðbólgan er 3,4% og Seðla-
bankinn spáir því að ná verð-
bólgumarkmiðum sínum, 2,5%,
á næsta ári. Atvinnuleysi hefur
aldrei verið minna; 0,9% í júlí.
Verg þjóðarframleiðsla á mann
er með því hæsta sem gerist í
heiminum en hún er helsti mæli-
kvarðinn á hagvöxt. Skattaum-
hverfið er tiltölulega samkeppn-
ishæft og gott fyrir fjölbreytta
atvinnusköpun.
Á Ísland við stórfelld efnahags-
leg vandamál að etja? Á upptaka
evru að „bjarga“ Íslandi frá
þeim? Sé litið á þessar lykiltölur
hér að ofan, má auðveldlega
draga þá ályktun að ástandið sé
skrambi gott. Einhverjir kynnu
að segja að ástandið gæti orðið
enn betra. Hverju viljum við ná
fram með upptöku annars
gjaldmiðils? Lækka viðskipta-
halla? Lækka vexti? Auka
hagvöxt? Minnka atvinnuleysi??
Áður en ráðamenn hlaupa upp til
handa og fóta og skipta um
gjaldmiðil þarf að koma því á
hreint hverju nýr gjaldmiðill á að
áorka. Krónan er bara of kær til
að vera látin lönd og leið að
ástæðulausu.
Höfundur situr í stjórn Ungra
Vinstri grænna og Heimssýnar.