Fréttablaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 22
[Hlutabréf] Peningaskápurinn ...
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF)
telur horfur íslenska hagkerfisins
mjög góðar en í þeim endurspegl-
ist opnir og sveigjanlegir markað-
ir, traust stofnanakerfi og stjórn-
sýsla auk skynsamlegrar nýtingar
náttúruauðlinda. Engu að síður
þarf að huga að ójafnvægi í hag-
kerfinu og grípa til aðgerða til að
ná tökum á þenslu, verðbólgu og
viðskiptahalla.
Sjóðurinn birti í vikunni árvissa
skýrslu sendinefndar sjóðsins um
íslensk efnahagsmál, en hún kemur
í kjölfar heimsóknar nefndarinnar
til landsins í júníbyrjun. Fyrir
sendinefndinni fer sem fyrr Benja-
min Hunt.
Í skýrslu sendinefndar sjóðsins
er bent á að í uppsveiflu síðustu
þriggja ára hafi hér orðið til í hag-
kerfinu ójafnvægi af áður óþekktri
stærð og hvetur sjóðurinn til auk-
ins aðhalds hins opinbera til að ná
tökum á eftirspurn. „Hægja þarf á
fyrirhuguðum auknum útgjöldum
þar til innlendum eftirspurnar-
þrýstingi hefur verið náð niður að
fullu. Á sama tíma þarf að ná tökum
á launaþenslu í opinbera geiran-
um,“ segir í niðurstöðum nefndar-
innar. Áfram er talin þörf mikils
aðhalds í peningamálastefnu Seðla-
bankans. Á það er bent að háir
vextir séu helsta ástæða þess að
krónan sé of hátt metin, en talið er
að gengi hennar muni færast nær
jafnvægisgengi þegar tök nást á
verðbólgu og vextir taka að lækka.
Enn og aftur kallar Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn eftir aðgerðum í
málefnum Íbúðalánasjóðs og bend-
ir á að samkeppni sjóðsins og bank-
anna dragi úr virkni peningastefnu
Seðlabankans.
Sjóðurinn hrósar bönkunum
fyrir að hafa unnið sig vel í gegn-
um þann óróa sem skapaðist í kjöl-
far neikvæðrar umræðu og efa-
semda um íslenska fjármálakerfið
á síðasta ári. Þeir hafi brugðist rétt
við áhyggjum markaðsaðila sem
og ábendingum Fjármálaeftirlits-
ins (FME). Þannig hafi bankarnir
staðist álagspróf FME. Sjóðurinn
hefur þó uppi almenn varnaðarorð
um starfsemi bankanna, sér í lagi
þar sem fyrirséður sé áframhald-
andi vöxtur þeirra og flækjustig
aukist í starfseminni. Áhersla
þeirra er því áfram sögð þurfa að
vera á áhættumat. Í þeim efnum er
sérstaklega bent á aukin útlán
bankanna til heimila hér í öðrum
gjaldmiðlum en krónum.
Jónas Fr. Jónsson, forstjóri
FME, segir sjónarmið Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins almennt vera í
takt við markmið FME. Í tilkynn-
ingu eftirlitsins er eftir honum
haft að FME fylgist vel með þeim
áhættum sem fyrir hendi séu í
kerfinu og komi sjónarmiðum
sínum á framfæri við stjórnendur
fjármálafyrirtækjanna telji það
ástæðu til. „Eins og glöggt kemur
fram hjá sjóðnum þá er starfsemi
FME orðin mjög alþjóðleg með eft-
irlitsábyrgð í öðrum löndum og
samvinnu við systurstofnanir í
fjölda ríkja,“ segir hann og bendir
á að FME geri frekari álagspróf til
viðbótar hinu reglubundna, sem
meðal annars tengist afleiddum
áföllum.
Kalla á aukið
aðhald ríkisins
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir horfur góðar í efna-
hagslífinu hér. Bönkunum er hrósað, en uppi höfð
varnaðarorð um gjaldeyrislán og áhættustýringu.
Hagnaður fasteignafélagsins Stoða,
sem á og leigir fasteignir hér á
landi og í Danmörku, nam rúmum
4,3 milljörðum
króna á fyrstu
sex mánuðum
ársins saman-
borið við tæpa
4,2 milljarða á
sama tíma í
fyrra.
Í uppgjörinu
kemur fram að
rekstrarhagnað-
ur hafi numið
rúmum 2,9 milljörðum samanborið
við rúma 1,9 milljarða í fyrra. Þar
af hækkuðu leigutekjur um 1,3
milljarða á milli ára.
Heildareignir Stoða námu rúmum
170 milljörðum króna í lok júní
samanborið við rúma 156 milljarða
í lok síðasta árs. Eigið fé nam 34,1
milljarði sem er 11,3 milljörðum
meira en í lok síðasta árs.
Leigutekjur
tóku stökkið
Mikill viðsnúningur varð á rekstri
Orkuveitu Reykjavíkur á fyrstu sex
mánuðum ársins samanborið við
sama tímabil í fyrra. Félagið hagn-
aðist nú um tæpa 8,2 milljarða króna
eftir skatta en tapaði nærri 4,8 millj-
örðum á fyrri hluta síðasta árs.
Þarna munar um þrettán milljörð-
um. „Þetta er búið að vera mjög gott
ár. Rekstrarhagnaðurinn sýnir mjög
heilbrigðan vöxt,“ segir Guðmund-
ur Þóroddsson, forstjóri OR.
Breytingar á fjármagnsliðum
skýra mikið til þennan viðsnúning.
Þeir voru jákvæðir um 7,5 milljarða
króna á fyrri árshelmingi en nei-
kvæðir um 9,2 milljarða í fyrra.
Langtímaskuldir OR eru að mestu
leyti í erlendum myntum og varð 7,7
milljarða gengishagnaður af lang-
tímalánum vegna styrkingar krón-
unnar. Auk gengishagnaðar hafa
breytingar á reikningsskilavenjum
þau áhrif að afleiða í orkusölusamn-
ingum kemur mjög sterk inn í
afkomuna, að sögn Guðmundar.
Betri afkoma varð á grunnrekstri.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir
(EBITDA) var ríflega 5,3 milljarðar
og hækkaði um 38,6 prósent á milli
ára. Þá hækkuðu tekjur um 22,6 pró-
sent og námu tæpum 10,5 milljörð-
um. Guðmundur segir að aukning
tekna liggi einkum í meiri stóriðju-
tekjum en restin liggur í auknu
umfangi fyrirtækisins.
Eignir OR námu 148,9 milljörðum
króna í lok júní en eigið fé stóð í 76,8
milljörðum. Eiginfjárhlutfall var
því 51,6 prósent.
Þrettán milljarða
sveifla OR á milli ára
Gengishagnaður af erlendum lánum var 7,7 milljarðar.
Hagnaður Byrs spari-
sjóðs nam rúmum 4,3
milljörðum króna á
fyrstu sex mánuðum árs-
ins samanborið við 698,6
milljónir króna á sama
tíma í fyrra. Þetta er
521,7 prósenta aukning á
milli ára. Byr varð til
með sameiningu Spari-
sjóðs vélstjóra og Spari-
sjóðs Hafnarfjarðar 1.
desember í fyrra.
Í uppgjörinu kemur fram að
hreinar rekstrartekjur hafi
numið tæpum 6,7 milljörðum
króna samanborið við rúma 1,6
milljarða í fyrra. Aukn-
ingin nemur 306,8 pró-
sentum. Þar af jukust
hreinar tekjur af fjár-
eignum á gangvirði, það
er hlutafjáreign í skráð-
um og óskráðum félög-
um, um 1.949,1 prósent á
tímabilinu.
Arðsemi eigin fjár var
62,4 prósent á ársgrund-
velli.
Ragnar Z. Guðjónsson,
sparisjóðsstjóri Byr, segir afkom-
una ríflega yfir væntingum en
gerir ekki ráð fyrir viðlíka aukn-
ingu á seinni hluta árs.
Afkoma yfir væntingum
Faroese design
when it is best
Feyreyjar
We will be at
the place during
ljosanott with
good offers