Fréttablaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 28
Nestistíminn finnst mörgum
skólabörnum með skemmtileg-
ustu stundum dagsins og því er
um að gera að útbúa nestis-
pakka sem inniheldur bæði
kærleik og heilsukost.
Margir kunna að spyrja sig hvern-
ig kærleik sé komið fyrir í nestis-
pakka og svarið er einfalt; hvað
sem er sem minnir barnið á vænt-
umþykju foreldranna.
Þetta geta verið litlir skilaboða-
miðar frá mömmu eða pabba.
Miðar með hvatningarorðum á
borð við „Gangi þér vel í prófinu“,
„Við förum í Bláa lónið á laugar-
daginn“ eða einverju öðru fallegu
sem kemur kannski á óvart og
hlýjar hjartarætur.
Maturinn í nestispakkanum á
umfram allt að vera fjölbreyttur,
hollur og lystugur fyrir barnið.
Til að auka á fjölbreytnina má
til dæms útbúa pítubrauð með tún-
fisksalati, grænmeti eða kjúklingi
svo fátt eitt sé nefnt.
Samlokur má gera skemmti-
legri með því að skera þær á
óhefðbundinn hátt og nota til þess
stór smákökuform; stjörnur,
hjörtu, blóm, gimsteinar og bílar
gera stundina gleðilegri fyrir
barnið og auka um leið á matar-
lystina.
Í nestispakkanum á alltaf að
vera góð samsetning af trefjum,
kolvetnum og próteinum, eða
grófu brauði, grænmeti og kjöti
eða fiskmeti en ef þau eru illa
fáanleg til að borða grænmetið er
hægt að beita brögðum. Til dæmis
má búa til slöngur eða „snáka“
með því að afhýða agúrku og skera
hana svo langsum þannig að úr
verði ormar. Til að kóróna verkið
má svo setja lítinn tómat á annann
endann og búa þannig til höfuð á
orminn.
Spjót standa líka alltaf fyrir
sínu og því er um að gera að henda
ekki grillpinnum þótt tekið sé að
líða á sumarið.
Kunni barnið að meta ávaxta-
safa er tilvalið að skella nokkrum
ferskum og frosnum ávöxtum í
blandara og búa til heilnæman
hristing. Hellið svo drykknum á
brúsa og geymið í frysti yfir nótt-
ina, en takið út áður en farið er í
skólann og þá ætti drykkurinn að
vera svalandi, ferskur og góður
þegar kemur að nestistímanum.
Armband úr morgunkorni er
skemmtileg tilbreyting fyrir litlar
dömur og eitthvað sem hægt er að
draga upp úr nestispakkanum með
stolti.
Til að gera slíkt armband eru
hringir úr morgunkorni, til dæmis
seríós, þræddir upp á teygju sem
síðan er hnýtt saman og til að kór-
óna verkið er svo hægt að festa
litla skilaboðamiðann á sömu
teygju þannig að úr verður ein-
stakur skartgripur.
Með kærleik í nesti
Uppskrift Sigurjóns
Matvæla- og næringarfræð-
ingar standa fyrir matvæla-
deginum sem haldinn er í
fimmtánda sinn um miðjan
október.
Matvæladagurinn er haldinn í
fimmtánda sinn hinn 16.októb-
er. Dagurinn er í umsjón Mat-
væla- og næringarfræðafélags
Ísland þar sem veitt verður
Fjöreggið, sem eru árleg verð-
laun félagsins fyrir lofsvert
framtak á matvæla- og næring-
arsviði.
Verðlaunin eru íslenskt gler-
listaverk, sem veitt er með
stuðningi frá Samtökum iðnað-
arins.
Félagsmenn sem og aðrir eru
eindregið hvattir til að senda
inn tilnefningar sem geta verið
vörur eða gott framtak ein-
staklinga, stofnana eða fyrir-
tækja sem sýnt hafa frum-
kvæði og stuðlað að öflugum
matvælaiðnaði.
Efni Matvæladagsins í ár er:
Þekking á matvælum, upplýs-
ingar og ábyrgð. Hverjir bera
ábyrgð á fæðuvali þjóðarinn-
ar?
Tilnefningar verða metnar
af fimm manna dómnefnd fag-
aðila og þurfa berast fyrir 10.
september næstkomandi.
Hægt er að kjósa beint á
heimasíðunni www.mni.is
Fjöreggið veitt á
Matvæladeginum
- leggur heiminn
að vörum þér
Gvatemalabaunir frá búgarðinum La Union
brenndar í vínarbrennslu - keimur af dökku
súkkulaði, kryddi og brenndum sykri.
Kaffi ræktað af sannri alúð.
Frábært í allar gerðir uppáhellingar. H2
hö
nn
un
NY UPPSKERA!