Fréttablaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 42
 31. ÁGÚST 2007 FÖSTUDAGUR4 fréttablaðið haustferðir LÖNGUM ATHVARF SKÁLDA Det lille Apotek er virðulegur og kósí veitingastað- ur í hjarta Kaupmannahafnar. Hann er sá elsti í borginni, opn- aður 1720, en áður hafði verið alvöru apótek í húsnæðinu. Litla apótekið er aftan við Vorrar Frúarkirkju, í kjallara við Store Kannikestæde 15. Sá kjallari var einn af fáum sem ekki urðu eldi að bráð á þessu svæði. Sem krá hefur Litla apótekið verið vinsælt af menntamönn- um og skáldum í gegnum tíðina, enda aðeins steinsnar frá hinum gamla Kaupmanna- hafnarháskóla. Eflaust hafa þeir Íslendingar sem námu fræði sín við skólann tæmt þar marga kolluna og hugsað heim til ættjarðarinnar, jafnvel ort þar ljóð henni til dýrðar. Nú er áherslan ekki síst lögð á góðan mat í Litla apótekinu, meðal annars ekta danskan kost eins og síld, smurbrauð og svínasteik, og einnig má mæla með steinasteikinni. Litla apótekið í Köben hefur laðað til sín gesti síðan 1720. Heimsferðir halda áfram að bjóða beint flug til Montreal í Kanada í haust. Íslendingar eiga mikið í Kanada og margt sameiginlegt með Kan- adabúum. Fram eftir hausti munu Heimsferðir halda áfram að bjóða beint flug til Montreal í Qu- ebec-héraði, en í sumar var byrj- að að fljúga þangað með beinu leiguflugi í fyrsta sinn á Íslandi. Montreal er sannkölluð heims- borg með iðandi menningarlífi og hefur með réttu verið nefnd París Norður-Ameríku. Í henni fangar augað dásamlega blöndu af fallegum gömlum bygging- um og háhýsum nútímans. Borg- in á sér 400 ára sögu og er önnur stærsta frönskumælandi borg í heimi á eftir París, nema hvað í Montreal tala allir ensku. Miðborgin er nútímaleg með breiðgötum, verslunargötum, veitingastöðum, skemmtistöð- um, söfnum og litlum listagall- eríum, en gamli bærinn er um- vafinn dulúð og rómantík. Þar má finna fallegar smáverslan- ir, kaffihús, gallerí og veitinga- staði, en Montreal hefur verið ein helsta miðstöð matarmenningar í Norður-Ameríku með ómótstæði- legu úrvali alþjóðlegra veitinga- staða. Kvöld- og næturlíf borgar- innar er líflegt og kennir margra grasa, en fjöldinn allur af klúbb- um og börum býður upp á lifandi tónlist á hverju kvöldi. Frá Montreal er stutt að skjót- ast til útivistarparadísarinn- ar Mont Tremblant, sem er lít- ill fallegur bær sem minnir um margt á sjarmerandi fjalla- þorp Alpanna og stendur við Tremblant-vatnið. Þangað kemur fólk á öllum árstíðum til að njóta lífsins lystisemda við afþreying- ar af öllu tagi. Meðal annarra nýjunga hjá Heimsferðum í haust eru borgar- ferðir til Riga í Lettlandi og fjölda annarra áfangastaða; ferð- ir til Jamaíka og Kúbu, lúxus- siglingar, aðventuferðir til Stutt- gart og Heidelberg, en mikið er nú þegar um bókanir í komandi haustferðir. thordis@frettabladid.is Mögnuð Montreal Gamli bærinn í Montreal er mikið notað- ur við brúðarmyndatökur. Cirque du Soleil á rætur að rekja til Monreal. Hjólarómantík í töfrandi Montreal. FRÉTTABLAÐIÐ/LÁRUS KARL INGASON Veitingastaðurinn La Fermette Marbeuf er vel þess virði að heimsækja þegar leiðin liggur til Parísar. Fyrir utan fínan franskan mat og frábæra þjónustu býður hann upp á sannkallaða veislu fyrir augað. Staðurinn hóf göngu sína árið 1898 en stuttu síðar var hann tek- inn í gegn af ungum og hæfileika- ríkum arkitekt, M. Hurté, og mál- aranum Viel Horski, sem skreyttu hann listilega í hólf og gólf. Í tím- ans rás var staðnum breytt og listaverkin hulin en þau voru enduruppgötvuð fyrir tilviljun í framkvæmdum árið 1978. Staðsetningin er góð því La Vermette Marbeuf er við 5, Rue Marbeuf örskammt frá Champs- Elysées, götunni sem Sigurbog- inn er við. Matur, ljós og list La Fermette Marbeuf er íburðarmikill matstaður. Jómfrúarferð flugfélagsins Prim- era Air frá Akureyrarflugvelli verð- ur farin laugardaginn 1. septemb- er þegar nemendur Menntaskólans á Akureyri halda í útskriftarferð sína til Rhodos í Grikklandi. Flugið er á vegum Heimsferða og segir Bjarni Ingólfsson, mark- aðsstjóri Heimsferða, beina flugið frá Akureyri hafa fengið afburða góðar viðtökur og selst upp nær samstundis, enda ótvírætt mikið hagræði og sparnaður fyrir Norð- lendinga að eiga kost á beinu flugi frá Akureyri. Auk þessa fyrsta beina flugs Primera Air verður flogið í september með farþega beint frá Akureyri til Costa del Sol á Spáni. Heimsferðir munu svo í vaxandi mæli halda áfram að bjóða beint flug frá Akureyri á nýja árinu, bæði til vinsælla borga í Evrópu sem og sólarlanda. Primera Air er þriðja stærsta ferðaskrifstofa Norðurlanda og í eigu Primera Travel Group. Í eigu félagsins eru meðal annars Heims- ferðir og Terra Nova á Íslandi. Ís- lenska flugfélagið JetX annast allt flug Primera Air, bæði frá Íslandi og hinum Norðurlöndunum. Til Rhodos frá Akureyri Primera P IP A R • S ÍA • 7 0 5 8 9 Malarhöfða 2a • 110 Reykjavík Sími 570 9900 • www.fiat.is Opið: virka daga frá 8–18 laugardaga frá 12–16 Saga er umboðsaðili fyrir Alfa Romeo, Ducati, Ferrari, Fiat og Maserati Alfa Romeo 159 „Fallegasti bíll í heimi“ Þegar Ítalir hanna bíla breyta þeir draumi í veruleika. Þess vegna hefur Alfa Romeo 159 verið kallaður „fallegasti bíll í heimi“ af virtum bílagagnrýnendum. Áreiðanleiki og aksturseiginleikar hafa einnig hlotið mikið lof gagnrýnenda, enda kemst enginn langt á útlitinu einu saman. Komdu því og kíktu undir húddið, próf- aðu ólýsanlega aksturseiginleika og aktu burt á fallegasta bíl í heimi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.