Fréttablaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 32
BLS. 2 | sirkus | 31. ÁGÚST 2007
Heyrst hefur
MÓEIÐUR JÚNÍUSDÓTTIR LÝKUR BRÁÐUM BA-GRÁÐU Í GUÐFRÆÐI. HÚN HYGGUR Á
FREKARA NÁM OG ÆTLAR AÐ TAKA EMBÆTTISPRÓF.
M óeiður Júníusdóttir er við það að klára BA-prófið sitt í guðfræði. Hún ætlar þó hvorki að segja skil-ið við guð né fræðin að prófi loknu. Hún stefnir
að embættisprófi eftir tvö ár. Í framhaldinu getur hún sótt
um brauð.
„Ég hef alltaf verið trúuð og trúin hefur ýmis birtingar-
form. Tónlistin hefur til dæmis verið hluti af henni,“ segir
Móeiður, sem gerði garðinn fyrst frægan sem söngkona
enda af miklu tónlistarfólki komin.
Móeiður hefur mörg járn í eldinum því með skólanum
ætlar hún að sjá um barnastarfið í Fríkirkjunni í Reykjavík
ásamt öðru góðu fólki. Og starfið leggst vel í hana. „Ég get
tekið börnin mín með í kirkjuna og sameinað starfið þar
og góða stund með þeim,“ segir Móeiður, sem síðustu ár
hefur legið yfir Biblíunni og öðrum góðum skólabókum.
Og Móeiður er himinlifandi með guð-
fræðina. „Hún er alveg ofboðslega
skemmtileg og kemur alltaf á óvart. Það
er náttúrlega elsta deildin í háskólan-
um,“ segir Móeiður, sem reyndi fyrst við
aðra gamla en ekki síður merkilegri
grein, lögfræði. „Ég hætti eftir eitt ár
þegar ég komst að því að guðslög eru
bæði mikilvægari og merkilegri,“ segir
Móeiður, sem fær væntanlega innan
skamms nafnbótina séra Móeiður.
Guðslög
mikilvægari
en landslög
MÓEIÐUR
JÚNÍUSDÓTTIR
Móeiður ætlar
að sjá um
barnastarfið í
Fríkirkjunni í
Reykjavík í
vetur ásamt
öðru góðu
fólki.
MYND/GVA
E inar Bárðarson, umboðsmaður Íslands, hefur sett stórglæsilega íbúð sína við Hagamel 8 á sölu. Einar hefur
verið með annan fótinn í London síðustu ár
þar sem hann hefur unnið að framgangi
íslenskrar tónlistar. „Ég hef verið með íbúðir
í London og Reykjavík síðustu tvö ár en nú
verður smá breyting á,“ segir Einar. „Mér
finnst það mjög leiðinlegt og erfitt að selja
þessa íbúð. Hún er á besta stað í Reykjavík.“
Og það eru orð að sönnu. Íbúðin er fimm
herbergja, með tvö herbergi og þrjár stofur,
stutt frá Melaskóla og Melabúðinni. Hún
kostar líka sitt. Ásett verð er 55 milljónir.
Einar þarf starfs síns vegna að dvelja
meira í London en áður en hann hefur
meðal annars átt stóran þátt í því að koma
Garðari Thor Cortes á framfæri þar ytra sem
og Nylon-flokknum. Einar verður þó ekki
einn í London því kona hans, Áslaug
Einarsdóttir, og dóttir þeirra verða með
honum ytra.
„Ég verð nú með annan fótinn heima líka
því ég á hlut í stærsta tónleikafyrirtæki
landsins og þarf að sinna því,“ segir Einar og
vísar þar í fyrirtækið Concert sem hann
stofnaði fyrir nokkrum árum. Fram undan
eru meðal annars tónleikar með Chris
Cornell og Megasi í Laugardalshöll sem og
fullt af öðrum spennandi hlutum sem Einar
vill ekki gefa upp að svo stöddu.
Selur glæsihæð á Hagamel
HAGAMELUR 8 Íbúðin
hans Einars er í þessu
glæsilega húsi við
Hagamel.
EINAR BÁRÐAR Umboðsmaður Íslands
verður meira og minna í London næstu
ár svo hann hefur sett íbúðina sína við
Hagamel á sölu.
Guðný Pála Rögnvaldsdóttir, annar helmingur Gís-dúettsins, sem sló
í gegn í X-factor þáttunum, er aftur
komin í sjónvarpið. Hún er þó ekki
fyrir framan myndavélarnar að þessu
sinni heldur sinnir skriftustarfi á Stöð
2. Hugurinn stefnir þó aftur fyrir fram-
an myndavélarnar.
„Mig langar einna helst að vinna
við sjónvarp í framtíðinni fyrir utan
sönginn sem er alltaf efstur á listan-
um,“ segir Guðný Pála sem kolféll fyrir
myndavélunum þegar hún tók þátt í
X-factor. „Sjónvarpið hafði alltaf heill-
að að vissu marki en þegar ég sá
hvernig þetta gekk fyrir sig vissi ég að
þetta væri eitthvað sem hentaði mér
mjög vel.“
Guðný Pála segir hraðann, stressið
og adrenalínflæðið vera það sem heilli
einna helst við sjónvarpið. Hún hóf
störf fyrir rúmri viku síðan. „Þannig
að ég er orðin þrautþjálfuð,“ segir hún
og skellir upp úr. Draumur söngkon-
unnar er að stýra þætti á borð við
Ísland í dag. Hún segist þó ekki vera
byrjuð að blikka yfirmennina í von
um frekari frama innan fyrirtækisins.
„Ekki enn þá! Ég verð að vera aðeins
lengur áður en ég byrja á því. Ég má
ekki vera of æst!“ segir söngkonan og
hlær áður en hún snýr sér aftur að
skriftustarfinu.
Gís aftur í sjónvarpið
GUÐNÝ PÁLA RÖGNVALDSDÓTTIR Er
ánægð með nýja starfið sem skrifta á
Stöð 2. MYND/ANTON
Dead komið norður
Það er engin lognmolla hjá Jóni
Sæmundi sem nýlega opnaði Dead-
verslun á Laugavegi. Nú eru Dead-
vörurnar einnig komnar norður því ein
skemmtilegasta verslun Akureyrar,
antikverslunin Frúin í Hamborg, hefur
hafið sölu á vörum Jóns. Jón Sæmundur
fær hvorki meira né minna en nærri heilt
herbergi í versluninni undir vörur sínar en
deilir því reyndar með nokkrum bolum
frá Nakta apanum. Planið er að fá fleiri
íslenska hönnuði til að selja vörur sínar í
versluninni.
Gillz á faraldsfæti
Það er í nógu að snúast hjá Agli
Gillzenegger, eða Stóra G eins og hann
kallar sig stundum, um þessar mundir.
Íþróttaakademían í Reykjanesbæ er
komin á fullt en Gillz er potturinn og
pannan í félagslífinu þar. Hann lætur þó
ekki annir í skólanum halda aftur af sér
því Stóri G skellti sér til London fyrir
skömmu þar sem hann fylgdist með leik
Chelsea og Portsmouth í ensku
úrvalsdeildinni. Gillz bloggar um dvöl sína
í London á heimasíðu sinni en þar kemur
meðal annars fram að hann njóti ekki
sömu frægðar þar og hér á landi. Þurfti
hann meðal annars að standa í röð á
skemmtistöðum eins og hver annar
úthverfaplebbi.
LAUGAVEGUR 86-94, S: 511-2007
REYKJAVIK STORE