Fréttablaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 44
 31. ÁGÚST 2007 FÖSTUDAGUR6 fréttablaðið haustferðir Skemmtiferðaskip sjást gjarnan við hafnir landsins á sumrin. Nú er röðin komin að okkur að stíga um borð hjá Úrvali-Útsýn, sem býður ferðir með skipafélaginu Silver Sea. „Ísland komst í kynni við skipafélagið í gegnum söluaðila fyrir Norðurlöndin sem halda til í Danmörku. Félagið er með sölu- aðila víða um heim og nú er röðin komin að Íslandi,“ segir Þorsteinn Guðjónsson, for- stjóri Úrvals-Útsýnar. Skipafélagið er ítalskt og siglir út um allan heim. Meirihluti farþega er frá Bandaríkj- unum. „Evrópski markaðurinn hefur farið sívaxandi og þess vegna vaknaði áhugi hjá félaginu að leita inn á íslenska markaðinn,“ segir Þorsteinn, sem segir félagið vera með fjögur skip og eitt í byggingu. Farþegar geta farið um borð hvar sem er í heiminum og að sögn Þorsteins eru mjög fjölbreyttar ferðir í boði. „Fólk fer bæði í styttri ferðir í eina til tvær vikur og upp í heimsreisur sem vara í fleiri mánuði þar sem fólk nánast skiptir um lögheimili tímabundið,“ segir Þorsteinn hlæjandi. Hann segir ferðirnar hafa fengið góðar móttökur meðal Íslendinga sem þegar hafa látið sjá sig um borð. „Markhópurinn fram að þessu hefur verið rúmlega fimmtugur hjá Silver Seas. Hópurinn er hins vegar að yngjast og við bjóðum einnig upp á aðrar siglingar með afþreyingu sem höfðar meira til yngra fólks,“ segir Þorsteinn, sem segir einnig mikið um að fólk sigli í tilefni stórra tímamóta. „Það er mikið um að fólk haldi upp á brúðkaup með siglingu. Einnig að fólk fagni merkisafmælum og taki þá fjölskyld- una með,“ segir Þorsteinn. Hann segir þó nokkra hefð fyrir sigling- um meðal Íslendinga og telur það vera að færast í vöxt. „Það hefur alltaf verið viss sjarmi yfir siglingum, allt frá ferðum Goðafoss á sínum tíma. Þetta er sérstakur ferðamáti sem er allt öðruvísi en sólarlandaferðir og hefur alltaf tengst ákveðnum lúxus,“ segir Þorsteinn, sem segir flesta Íslendinga kjósa sólríkari slóðir en Ísland. „Flestir Íslendingarnir hefja siglinguna með flugferð og síðan er farið um borð á sólríkari slóðum. Þó er eitthvað um að farið sé um borð hérlendis,“ segir Þorsteinn, sem segir marga kjósa siglingar út af þjónust- unni. „Farþegarnir þurfa aldrei að borga um borð. Fólk pantar og greiðir ferðina fyrirfram þar sem langflest er innifalið, til að mynda þjónusta, matur, drykkir og skemmtun. Þetta kemur í veg fyrir álag sem skapast á ferðalögum þegar fólk veltir fyrir sér hve miklu það er búið að eyða,“ segir Þorsteinn, sem segir skipið bjóða upp á gríðarlegt úrval matsölustaða, leik- hús, spilavíti, heilsulind, sundlaug, hlaupa- braut og bari. Á siglingunni er komið við í ýmsum lönd- um þar sem gestir geta ýmist farið í skoð- unarferðir, spilað golf eða jafnvel fylgt kokkinum í land til að skoða matarmenn- ingu. „Þetta er tilvalið fyrir fólk sem vill fara á heimshornaflakk, enda eins og að vera á hóteli þar sem þú vaknar í nýju landi á hverjum morgni,“ segir Þorsteinn. rh@frettabladid.is Komið í nýja höfn á hverjum morgni Vistarverur skipanna eru margar hverjar eins og bestu hótelsvítur, búnar DVD-spilurum, þráðlausu neti og svölum. Um borð í skipum Silver Sea er hægt að bregða undir sig dansfætinum að loknum kvöldverði. Silver Wind, eitt af skipum félagsins, kom við í Reykjavík á dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Viðhaldsfríar ÞAKRENNUR Smiðjuvegi 4C Box 281 202 Kópavogur Sími 587 2202 Fax 587 2203 hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is Varmaskiptasamstæður loftræstistokkar og tengistykki Hágæða HAGBLIKK ehf. Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur. Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun. Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar. A u g l. Þ ó rh ild ar 1 4 6 0 .2 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.