Fréttablaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 88
Þetta gæti verið upphaf á gömlu lagi með Megasi: Það eru allir svo brjálaðir út í bank- ana. Svo gætu erindin tuttugu og sjö öll hafist á svipuðum nótum. Það eru allir svo bitrir út í bank- ana, það blæs ekki byrlega fyrir bönkunum... held allavega að það sé eðli- legt að verða pirraður við að horfa upp á eitthvert bákn sem á svo mikið af peningum að enginn veit hvað á að gera til að grynnka á þeim og að lokum sitjum við uppi með Elton John að syngja Sorry Seems to be the Hardest Word í einhverri frystigeymslu og enginn man hvernig það flipp byrjaði. er mótsagnakennt að heyra örvæntingarfulla kennara hamra á mikilvægi þess að kenna krökk- um að fara með peninga þegar sýnilegustu fjármálastofnanir samfélagsins finna sér það helst til dundurs að flytja inn afdank- aða poppara, skipta um nafn í sífellu með tilheyrandi auglýs- ingaherferðum og rafvæða Stuð- menn öllum til ama. maður tali nú ekki um jóla- gjafirnar til viðskiptavina, sem bréfberar landsins standa sveitt- ir við að troða inn um ósamvinnu- þýðar dyralúgur – enda ekki gerðar fyrir flísteppi, tertuspaða og brauðkörfur. Allt merkt við- komandi banka í bak og fyrir og orðið ennþá hallærislegra þegar hann skiptir um nafn tveimur mánuðum síðar. (Og þó, kannski væri gaman að eiga tertuspaða merktan Útvegsbankanum.) er alltaf óþolandi að horfa upp á fólk sem á meiri pening en maður sjálfur eyða honum í eitt- hvað sem manni finnst sjálfum vera vitleysa: Oj, ekki myndi ég kaupa þennan asnalega húsbíl. En það er virkilega óþolandi þegar ekki er um að ræða fólk með vilja og langanir heldur fyr- irtæki þar sem nægir að einum plebba detti í hug að tíu þúsund bestu viðskiptavinum bankans gæti þótt huggulegt að kúra sig undir flísteppi. Eins og tíu þús- und bestu viðskiptavinir bankans hafi ekki efni á að kaupa sér kasmírsjal með engu lógói. eru verstu mögu- legu fyrirmyndir þegar kemur að fjárhagslegu aðhaldi. Þeir eiga okkur ekki skilið. Ég ætla að flytja öll mín viðskipti yfir í Sparisjóð Dalvíkur, sem aldrei hringir í mig á óguðlegum tíma til að þröngva upp á mig viðbót- arlífeyrissparnaði, rétt skriðna yfir tvítugt, eða sigar á mig jakkafataklæddum útsendurum í Bóksölu stúdenta. Ég ráðlegg öllum að gera slíkt hið sama. Lifi Sparisjóður Dalvíkur NÝ R OUTLANDER | MEIRA EN FLOTTUR Mitsubishi Outlander hefur verið endurhannaður frá grunni. Útkoman er einhver glæsilegasti sportjeppi sem sést hefur. Og útlitið segir ekki allt, þ ví þ að er urrandi kraftur í DI-D dísilvélinni og byltingarkenndur drifbúnaðurinn kemur þ ér í jeppagírinn þ egar þ ess þ arf. Öflug og sparneytin 140 hestafla DI-D dísilvél (eyðsla 6,9 l í blönduðum akstri) Sérhannað Rockford hljóðkerfi Frábært 7 sæta innra rými 18" álfelgur Leðurinnrétting Sóllúga og þ akbogar Mikil veghæð HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi Til afgreiðslu strax Auglýsingasími – Mest lesið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.