Fréttablaðið - 31.08.2007, Síða 88
Þetta gæti verið upphaf á gömlu lagi með Megasi: Það
eru allir svo brjálaðir út í bank-
ana. Svo gætu erindin tuttugu og
sjö öll hafist á svipuðum nótum.
Það eru allir svo bitrir út í bank-
ana, það blæs ekki byrlega fyrir
bönkunum...
held allavega að það sé eðli-
legt að verða pirraður við að
horfa upp á eitthvert bákn sem á
svo mikið af peningum að enginn
veit hvað á að gera til að grynnka
á þeim og að lokum sitjum við
uppi með Elton John að syngja
Sorry Seems to be the Hardest
Word í einhverri frystigeymslu
og enginn man hvernig það flipp
byrjaði.
er mótsagnakennt að heyra
örvæntingarfulla kennara hamra
á mikilvægi þess að kenna krökk-
um að fara með peninga þegar
sýnilegustu fjármálastofnanir
samfélagsins finna sér það helst
til dundurs að flytja inn afdank-
aða poppara, skipta um nafn í
sífellu með tilheyrandi auglýs-
ingaherferðum og rafvæða Stuð-
menn öllum til ama.
maður tali nú ekki um jóla-
gjafirnar til viðskiptavina, sem
bréfberar landsins standa sveitt-
ir við að troða inn um ósamvinnu-
þýðar dyralúgur – enda ekki
gerðar fyrir flísteppi, tertuspaða
og brauðkörfur. Allt merkt við-
komandi banka í bak og fyrir og
orðið ennþá hallærislegra þegar
hann skiptir um nafn tveimur
mánuðum síðar. (Og þó, kannski
væri gaman að eiga tertuspaða
merktan Útvegsbankanum.)
er alltaf óþolandi að horfa
upp á fólk sem á meiri pening en
maður sjálfur eyða honum í eitt-
hvað sem manni finnst sjálfum
vera vitleysa: Oj, ekki myndi ég
kaupa þennan asnalega húsbíl.
En það er virkilega óþolandi
þegar ekki er um að ræða fólk
með vilja og langanir heldur fyr-
irtæki þar sem nægir að einum
plebba detti í hug að tíu þúsund
bestu viðskiptavinum bankans
gæti þótt huggulegt að kúra sig
undir flísteppi. Eins og tíu þús-
und bestu viðskiptavinir bankans
hafi ekki efni á að kaupa sér
kasmírsjal með engu lógói.
eru verstu mögu-
legu fyrirmyndir þegar kemur að
fjárhagslegu aðhaldi. Þeir eiga
okkur ekki skilið. Ég ætla að
flytja öll mín viðskipti yfir í
Sparisjóð Dalvíkur, sem aldrei
hringir í mig á óguðlegum tíma
til að þröngva upp á mig viðbót-
arlífeyrissparnaði, rétt skriðna
yfir tvítugt, eða sigar á mig
jakkafataklæddum útsendurum í
Bóksölu stúdenta. Ég ráðlegg
öllum að gera slíkt hið sama.
Lifi Sparisjóður
Dalvíkur
NÝ R OUTLANDER | MEIRA EN FLOTTUR
Mitsubishi Outlander hefur verið endurhannaður frá grunni.
Útkoman er einhver glæsilegasti sportjeppi sem sést hefur.
Og útlitið segir ekki allt, þ ví þ að er urrandi kraftur í DI-D
dísilvélinni og byltingarkenndur drifbúnaðurinn kemur þ ér
í jeppagírinn þ egar þ ess þ arf.
Öflug og sparneytin 140 hestafla DI-D dísilvél
(eyðsla 6,9 l í blönduðum akstri)
Sérhannað Rockford hljóðkerfi
Frábært 7 sæta innra rými
18" álfelgur
Leðurinnrétting
Sóllúga og þ akbogar
Mikil veghæð
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
Til afgreiðslu strax
Auglýsingasími
– Mest lesið