Fréttablaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 86
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Hljómsveitin Amiina hefur hætt við tónleikaferð sína um Norður- Ameríku vegna veikinda og ann- arra vandræða. Áttu þær stöllur að halda fjölda tónleika frá 4. til 27. október í borgum á borð við New York, Los Angeles, Nashville og Toronto en ekkert verður af því í þetta sinn. „Það er rosalega svekkjandi að þurfa að fresta, sérstaklega með svona stuttum fyrirvara. Fólkið er búið að kaupa miða þannig að þetta er það versta sem maður lendir í að þurfa að taka ákvörðun um,“ segir María Huld Markan Sigfúsdóttir úr Amiina. „Þetta er samt betra heldur en að vera að standa í túr sem er ekki eins og hann á að vera.“ Að sögn Maríu voru ýmsir hlutir sem réðu því að tónleikaferðinni var frestað. „Það er aðallega búið að vera mikið stress og veikindi og mjög óheppilegar aðstæður. Við misstum til dæmis rútufyrirtækið sem við vorum búin að panta hjá og sátum uppi með enga rútu. Síðan voru það veikindi sem komu upp og það var dropinn sem fyllt mæl- inn. Við ákváðum að það væri best að fresta ferðinni og gera þetta frekar almennilega þegar við værum allar frískar og hressar.“ Amiina, sem gaf út plötuna Kurr fyrr á árinu, hefur sett stefnuna á tónleikaferð um Evrópu í október og til Japans, Ástralíu og Nýja- Sjálands eftir áramótin. Tónleikar á Iceland Airwaves-hátíðinni eru jafnframt fyrirhugaðir í október. Veikindi fresta tónleikaferð Hlín Agnarsdóttir hefur sagt starfi sínu hjá Þjóðleikhúsinu lausu en þar hefur hún gegnt starfi listræns ráðgjafa undanfarna þrjá vetur. „Það eru engar sérstakar ástæður fyrir uppsögninni, aðrar en þær að ég er að fara að gera mína eigin hluti og fara í framhaldsnám,“ segir Hlín sem er menntuð í bæði leiklistarfræðum og leikstjórn. „Mér fannst tími til kominn að breyta til og það fyrir löngu síðan. Mig hefur lengi langað til þess að bæta við menntun mína og auk þess að sinna mínum hugðarefnum betur. Ég hef sér- stakan áhuga á því að skrifa meira,“ segir Hlín en hún skrifaði meðal annars leikritið Láttu ekki deigan síga ásamt Eddu Björgvinsdóttur, Konur skelfa og Gallerí Njálu. „Það er ágætis sam- starf á milli mín og þjóðleikhússtjóra og ég mun halda áfram að starfa fyrir Þjóðleik- húsið í nokkurs konar hlutastarfi.“ Tinna Gunnlaugs- dóttir þjóðleikhússtjóri sendi Fréttablaðinu yfirlýsingu þar sem fram kemur að ekki verði ráðið í starf listræns ráðgjafa í stað Hlínar. „Hlín Agnarsdóttir kom til starfa við Þjóðleik- húsið í barneignarleyfi leiklistarráðunautar hússins. [...] Þegar samningstíma Hlínar lauk, óskaði þjóðleikhússtjóri, Tinna Gunnlaugsdótt- ir, eftir því að hún ynni áfram við stofnunina sem listrænn ráðgjafi en sú staða var ný og hugsuð sem tímabundin en nauðsynleg ráðstöf- un í kjölfar þjóðleikhússtjóraskipta. Hlín hefur nú starfað sem listrænn ráðgjafi við Þjóðleik- húsið í tvö ár og þjónað starfseminni með mikl- um ágætum. Hlín hverfur nú til annarra verk- efna, en hefur þó alls ekki sagt skilið við Þjóðleikhúsið. Hún mun meðal annars leik- stýra nýju verki eftir Steinunni Sigurðardóttur sem áætlað er að frumsýna á einu af sviðum Þjóðleikhússins haustið 2008.“ Hlín hættir hjá Þjóðleikhúsinu „Við erum fjórir strákar í leiklist- arnámi sem ákváðum að gera eitt- hvað saman í sumarfríinu, sett- umst niður og sömdum spunaleikrit fyrir leikskólabörn,“ segir Jóel Sæmundsson sem ætlar að sýna „Uppáhaldsævintýri Sportálfsins“ í leikskólum lands- ins næstu tvær vikur ásamt þeim Inga Hrafni Hilmarssyni, Smára Gunnarssyni og Kára Viðarssyni. Saman mynda þeir leikhópinn Vini. Þeir stunda allir leiklistar- nám við Rose Bruford College í London og hafa setið við skriftir og hugmyndavinnu frá því í byrj- un júlí. „Tveir okkar eru að vinna á leikskóla í sumar og þegar við fórum að sökkva okkur í barna- ævintýrin ákváðum við að spinna út frá þeim,“ segir Jóel. „Leikfé- lagið í Mosfellsbæ tók okkur opnum örmum og lagði bæði til búninga og æfingaaðstöðu.“ Leikritið er ekki um sjálfan Íþróttaálfinn heldur aðdáanda hans. „Söguhetjan kallar sig sport- álf vegna þess hversu mikið hann lítur upp til Íþróttaálfsins,“ segir Jóel. „Hann segir krökkunum ævintýrið um skrökvuprinsessuna sem skrökvar svo mikið að hún endar að lokum í garði hjá vondum töframanni sem hneppir hana í álög.“ Aðrar sögupersónur eru for- eldrar skrökvuprinsessunnar, dreki og risi svo nokkrar séu nefndar. „Við sömdum tvö lög við leikritið svo það er tónlist í verk- inu líka. Við vildum hafa þetta skemmtilegt og lifandi fyrir krakk- ana. Sportálfurinn er sögumaður allan tímann en leikritið er gagn- virkt og krakkarnir leika til að mynda hlutverk í sýningunni. Svo getur Sportálfurinn stoppað sýn- inguna ef hann er orðinn of hrædd- ur og á sama hátt getur hann spól- að til baka og endursýnt atriði sem honum finnast sérstaklega skemmtileg.“ Strákarnir hafa þegar heimsótt nokkra leikskóla til þess að kynna leikritið og Jóel segir að þeir hafi fengið fínar viðtökur. „Það er búið að bóka nokkrar sýningar núna í byrjun september. Svo ætlum við að halda áfram með þetta í jólafrí- inu okkar 10.-21. desember. Það er svo sem ekkert nýtt undir sólini en við ætlum með þessu að reyna að vera með öðruvísi nálgun á afþreyingu fyrir leikskóla- krakka.“ Við flugmennirnir erum alveg búnir að tapa ímyndinni því nú eru komnar stelpur í þetta. Mikið áfall.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.