Fréttablaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 63

Fréttablaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 63
Krónan mín kæra REYKJAVÍK: Kringlan Bankastræti 5 Faxafen 12 KÓPAVOGUR: Smáralind GARÐABÆR: Miðhraun 11 AKUREYRI: Glerárgata 32 www.66north.is 66 °N o rð u r/ áu st 07 Rán Létt, fóðruð, vatns- fráhrindandi og hlý útiföt Fást einnig í rauðu, svörtu og ólífugrænu úlpa 6.800 kr. buxur 4.700 kr. Bragi Fóðraður kuldagalli Fæst einnig appelsínugulur 12.500 kr. Óðinn Hlýjar og vindheldar flísbuxur Fást einnig ljósar og brúnar 4.400 kr. Keen Vatnsheldir og fóðraðir kuldaskór 8.800 kr. Frigg Létt og þægileg flíspeysa 5.700 kr. Óðinn vettlingar 1.500 kr. húfa 1.700 kr. lambhúshetta 1.700 kr. Óðinn Sígild flíspeysa 4.900 kr. Ásgarður Skinnfóðruð ullarhúfa 3.700 kr. Bifröst Ullarjakki 7.000 kr. Frigg Létt og góð flísundirföt peysa 4.900 kr. buxur 4.400 kr. Valhöll Kláðafrí og mjúk ullarnærföt peysa 4.300 kr. buxur 3.900 kr. Mikið úrval af fatnaði og smávörum fyrir hressa og káta skólakrakka á leið inn í veturinn. Margir litir. REYKJAVÍK: Kringlan Bankastræti 5 Faxafen 12 KÓPAVOGUR: Smáralind GARÐABÆR: Miðhraun 11 AKUREYRI: Glerárgata 32 www.66north.is Spáum hlýju skólaári Gjaldmiðill okkar Íslendinga frá 1885, krónan, er nú sem oft áður í brennidepli efna- hagsumræðunnar. For- svarsmenn og forstjórar allnokkurra stórfyrir- tækja sem reka umfangsmikla starf- semi erlendis halda því fram fullum fetum að tími krón- unnar sé liðinn og því sé innreið evrunnar tímaspursmál. Banka- menn, fræðimenn í háskólasamfé- laginu og ýmsir sjálfskipaðir sam- félagsrýnar taka í sama streng. Sífellt fleiri virðast vera þeirrar skoðunar að einhvers konar tenging við evru væri heppilegri kostur en núverandi peninga- stefna. Margir vilja taka upp evru, jafnvel án þess að ganga í Evrópusambandið. Um það má gjarnan deila hvort hægt sé að taka upp evru án þess að ganga í ESB en Gabriel Steil, sérfræðingur hjá Lombard Institute í London, heldur því fram að slíkt sé hægt. Á ráðstefnu á vegum RSE sem haldin var í síðustu viku sagði hann: „You would be mad to join the EU and if you do, don’t say you weren’t warned.“ Ég er hjartanlega sammála honum að því leyti, að það væri brjálæði að ganga í Evrópusambandið. Ástæðan fyrir stöðugleika og háu gengi evrunnar er það traust sem fólk hefur á henni. Ef hún glatar þessu trausti fer stöðugleikinn fyrir lítið og má gera ráð fyrir ýmsum slæmum afleiðingum. Muni Ísland taka upp evruna og afsala sér sjálfstæðri efnahags- stjórn, getum við ekki brugðist við þessum afleiðingum og neyðumst til að þola hitann og þungann af sveiflum á evrópskum mörkuðum. Efnahagsástandið á Íslandi hefur sjaldan verið betra en í dag. Verðbólgan er 3,4% og Seðla- bankinn spáir því að ná verð- bólgumarkmiðum sínum, 2,5%, á næsta ári. Atvinnuleysi hefur aldrei verið minna; 0,9% í júlí. Verg þjóðarframleiðsla á mann er með því hæsta sem gerist í heiminum en hún er helsti mæli- kvarðinn á hagvöxt. Skattaum- hverfið er tiltölulega samkeppn- ishæft og gott fyrir fjölbreytta atvinnusköpun. Á Ísland við stórfelld efnahags- leg vandamál að etja? Á upptaka evru að „bjarga“ Íslandi frá þeim? Sé litið á þessar lykiltölur hér að ofan, má auðveldlega draga þá ályktun að ástandið sé skrambi gott. Einhverjir kynnu að segja að ástandið gæti orðið enn betra. Hverju viljum við ná fram með upptöku annars gjaldmiðils? Lækka viðskipta- halla? Lækka vexti? Auka hagvöxt? Minnka atvinnuleysi?? Áður en ráðamenn hlaupa upp til handa og fóta og skipta um gjaldmiðil þarf að koma því á hreint hverju nýr gjaldmiðill á að áorka. Krónan er bara of kær til að vera látin lönd og leið að ástæðulausu. Höfundur situr í stjórn Ungra Vinstri grænna og Heimssýnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.