Fréttablaðið - 31.08.2007, Side 12
Hundrað dagar eru liðnir
síðan ríkisstjórn Sjálfstæð-
isflokks og Samfylkingar
tók við völdum. Hveiti-
brauðsdagarnir hafa verið
tíðindalitlir og flest fyrir-
heitin í stjórnarsáttmálan-
um bíða þess að verða efnd.
Víða um lönd er til siðs að ríkis-
stjórnir geri sem mest á fyrstu
vikum og mánuðum valdatíðar
sinnar. Nýir ráðherrar keppast við
að kynna pólitísk stefnumál og
gæta þess að ekki fari á milli mála
að mannaskipti hafi orðið í ráðu-
neytinu. Á Íslandi er þessu öðru
vísi farið og helgast það vísast af
þeirri staðreynd að hér starfa
jafnan samsteypustjórnir og einn
eða fleiri stjórnarflokkar sátu líka
í fyrri stjórn.
Afrekalisti ríkisstjórnarinnar
þessa hundrað daga er ekki langur
en magn er svo sem ekki gildur
mælikvarði í pólitík. Niðurskurð-
ur þorskkvóta um 63 þúsund tonn
er viðamesta ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar til þessa enda snert-
ir hún lífsafkomu þúsunda um allt
land. Um leið og tilkynnt var um
niðurskurðinn voru mótvægisað-
gerðir til að styrkja atvinnulíf í
sjávarbyggðum boðaðar. Vikið var
að þeim almennum orðum mið-
sumars en útfærslur eru enn á
huldu, ef undan eru skilin áform
um að flýta vegaframkvæmdum.
Að sönnu hefur meira borið á ráð-
herrum Samfylkingarinnar en
ráðherrum Sjálfstæðisflokksins.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra hefur skipað nokkr-
ar nefndir og starfshópa auk þess
sem hún hefur lækkað lánshlutfall
Íbúðalánasjóðs og ráðist gegn bið-
listum hjá Greiningar- og ráðgjaf-
arstöð ríkisins. Guðlaugur Þór
Þórðarson heilbrigðisráðherra
hefur ráðist gegn hliðstæðum bið-
listum hjá Barna- og unglingageð-
deild Landspítala.
Björgvin G. Sigurðsson við-
skiptaráðherra hefur, líkt og
Jóhanna, skipað nokkrar nefndir
og undan hans rifjum eru runnin
bráðabirgðalög um rafmagn á
Keflavíkurflugvelli.
Tvö ferðalög Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur utanríkisráð-
herra – til Afríku og Mið-Austur-
landa – voru býsna fréttnæm en af
vettvangi varnarmála voru yfir-
taka Íslendinga á ratsjárkerfinu
og heræfingin Norðurvíkingur
einna helst í kastljósi fjölmiðla.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um
Grímseyjarferjumálið hefur verið
efst á baugi í pólitíkinni síðan hún
var opinberuð um miðjan mánuð-
inn. Kristján L. Möller samgöngu-
ráðherra komst að þeirri niður-
stöðu, eftir lestur skýrslunnar, að
ráðgjafi Vegagerðarinnar bæri
ábyrgð. Óskaði hann eftir stjórn-
sýsluúttekt og setti nefnd á fót. Í
kjölfarið hafa fylgt hnútuköst
milli Ríkisendurskoðunar og fjár-
málaráðuneytisins um ákvæði
fjárreiðulaga og góða stjórnsýslu.
Össur Skarphéðinsson iðnaðar-
ráðherra hefur hafnað öllum
óskum um rannsóknarleyfi á hugs-
anlegum virkjunarsvæðum og
gert embættismönnum að taka
vatnalögin til endurskoðunar. Eiga
þau að óbreyttu að taka gildi 1.
nóvember. Össur mótmælti fyrir-
huguðum lögum harðlega þegar
þau voru til umræðu í þinginu á
síðasta ári. Sigurður Kári Kristj-
ánsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, hefur sagt að hann telji
ástæðulaust að endurskoða lögin.
Áhugamenn um pólitísk átök sjá
fram á veislu.
Samkvæmt stefnuyfirlýsingu rík-
isstjórnarinnar er stöðugleiki í
efnahagslífinu eitt brýnasta verk-
efni hennar. Segir þar að tryggja
verði að íslensk fyrirtæki búi við
bestu samkeppnis- og rekstrar-
skilyrði sem völ sé á og að mikil-
vægt sé að rekstrarumhverfi fyr-
irtækja tryggi vöxt þeirra og laði
að starfsemi frá öðrum löndum. Á
þeim hundrað dögum sem liðnir
eru frá því að stjórnin tók við
hefur þensla aukist. Lækkun
hámarkslánshlutfall Íbúðalána-
sjóðs er það eina sem gert hefur
verið til að sporna við þenslunni.
Þó sagt sé að vika í pólitík sé
langur tími eru hundrað dagar í
lífi ríkisstjórnar kannski ekkert
svo ofboðslega langur tími. Þing
kemur saman 1. október og þá
opnast farvegur hugmynda til
laga. Um leið opnast leikvöllur
stjórnarandstöðunnar til að berja
á ríkisstjórninni.
Hveitibrauðsdagarnir eru liðnir
„Sumarið er búið að vera eins og
tíðindalaus fyrri hálfleikur þar
sem þjálfarinn
lætur spila vörn
með einn
frammi,“ segir
Guðmundur
Gunnarsson,
formaður
Rafiðnaðarsam-
bandsins og
áhugamaður
um stjórnmál.
Hann segir að
áfram verði virkjað á Íslandi og
sú staðreynd þvælist fyrir
Samfylkingarráðherrunum. Fólk
vilji atvinnuöryggi og náttúru-
vernd gleymist þegar þarf að
borga vísareikninginn. Guðmund-
ur bendir líka á að erfiðara sé að
vera ráðherra með skömmtuð
fjárráð heldur en að sitja í
stjórnarandstöðu og boða ókeypis
námsbækur, jarðgöng og malbik
heim á hvern bæ.
Varnarleikur
„Almennt séð hefur ríkisstjórnin
lítið aðhafst og mér virðist sem
hún hafi notið
veðurblíðunnar
í sumar og
raunveruleg
stefnumótun sé
eftir,“ segir Jón
Magnússon,
þingmaður
Frjálslynda
flokksins. Hann
hefur áhyggjur
af stöðu og þróun efnahagsmála,
ekki síst krónubréfunum, og telur
stjórnina hafa flotið sofandi að
feigðarósi í því máli.
Jón telur stefnumörkun í
utanríkismálum ábótavant sem og
hvernig standa eigi að mótvægis-
aðgerðum vegna niðurskurðar
þorskkvóta. Þá gagnrýnir hann að
ríkisstjórnin skuli ekki beita sér
fyrir að íslenskir lántakendur
njóti sömu kjara og bjóðast á
hinum Norðurlöndunum.
Í sólbaði í sumar
„Þessir hundrað dagar hafa
einkennst af gaspri Samfylking-
arinnar, sem
áttar sig ekki á
að hún er
komin í
ríkisstjórn og
þögn Sjálfstæð-
isflokksins,
sem virðist
þjást af
valdaþreytu,“
segir Siv
Friðleifsdóttir,
formaður þingflokks Framsókn-
arflokksins.
Hún segir málefnasamning
stjórnarflokkanna loðinn og
almennt orðaðan og gefi auk
þess engin fyrirheit.
Þá greinir Siv ósamstöðu milli
flokkanna; yfirlýsingar hafi
verið gefnar þvers og kruss um
orkumál og óeining sé til dæmis
um hvalveiðar og tilfærslu
verkefna milli ráðuneyta.
Gaspur og þreyta
A
T
A
R
N
A
–
K
M
I
/
F
ÍT
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
Þetta er vél sem hefur
algera sérstöðu.
Fjórtán blettakerfi fyrir
ólíka bletti, t.d. vínbletti,
blóðbletti og grasgrænku.
Tromlan er óvenjustór,
tekur 65 l og hægt er að
þvo í henni allt að 8 kg.
Innra byrði tromlunnar er
með droplaga mynstri
sem fer sérlega vel með
þvottinn. Vélin er mjög
snör í snúningum: 15
mín. hraðkerfi og 60
mín. kraftþvottakerfi
fyrir meðalóhreinan þvott.
Snertihnappar. Stór og
öflugur skjár. Vélin hefur
mjög góða hljóðeinangrun
og er í orkuflokki A+.