Fréttablaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 38
BLS. 8 | sirkus | 31. ÁGÚST 2007
M ér finnst þetta alveg meiri háttar skemmti-legt enda blundar lítill spennufíkill í mér,“
segir sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal en ný
syrpa af Tekinn hefst 14. september á Stöð 2. Á
meðal fórnarlamba Audda að þessu sinni verða
Jói Fel, Laddi, Ragnhildur Steinunn, Hermann
Hreiðars, Jógvan og Ásgeir Kolbeins. „Við reynd-
um að taka Eið Smára en það var eini hrekkur-
inn sem heppnaðist ekki. Áhorfendur fá samt að
sjá hvernig til tókst,“ segir Auddi og bætir við að
hugmyndavinnan og undirbúningurinn við
þættina sé afar skemmtileg. „Þetta er oft mikið
stress og margt verður að ganga upp svo hjartað
er oft í buxunum. Jói Fel þurfti til dæmis að
leggja í hárrétt bílastæði á réttum tíma svo
hrekkurinn myndi heppnast. Keðjuverkunin
getur verið mikil.“ Auddi segir hin frægu fórnar-
lömb hingað til hafa tekið hrekkjunum vel. Sem
betur fer hafi flestir húmorinn í lagi. „Við erum
náttúrlega ekkert að niðurlægja fólk, bara
hrekkja og það virðist sem þekkt fólk á Íslandi sé
voðalega kurteist. Það hefur allavega enginn sett
sig á háan hest enda væri voðalega skrítið ef fólk
væri gott með sig af því að það er frægt á Íslandi.
Menn missa sig kannski í Bandaríkjunum þar
sem þú getur fengið mörg hundruð milljónir
fyrir að vera frægur en hér á Íslandi missirðu
varla stjórn á skapinu þótt einhver leggi í stæðið
þitt. Jafnvel þótt þú sért frægur.“
Væri til í að eiga pylsuvagn
Auddi hefur starfað í sjónvarpi frá því hann byrj-
aði í 70 mínútum á sínum tíma á Popptíví.
Spurður hvað hann hefði fyrir stafni ef hann
væri ekki í sjónvarpi segir hann að hann væri til
í að eiga sinn eigin pylsuvagn. „Ef ég væri ekki
fyrir framan myndavélina vildi ég vinna á bak
við hana enda kominn með góða reynslu af sjón-
varpi eftir sjö ár í bransanum. Ef ég yrði að velja
eitthvað ótengt sjónvarpi þá yrði minn eigin
pysluvagn, Blöndalspylsur, fyrir valinu en
honum myndi ég koma fyrir fyrir utan sundlaug-
ina á Sauðárkróki,“ segir Auddi brosandi.
Lilja, kærasta Auðuns, vakti athygli í fyrri
seríunni af Tekinn. Auddi tekur undir að hún
hafi staðið sig vel enda þrusugóð leikkona.
„Hún reyndi fyrir sér í leiklistardeild Listahá-
skóla Íslands á sínum tíma og komst langt en
ákvað að skella sér í staðinn í lögfræðina. Hún
verður hins vegar ekki með í þessari syrpu því
við vildum ekki taka sénsinn á að einhver
myndi þekkja hana,“ segir Auddi sem vill sem
minnst tala um sitt persónulega líf. „Ég hef ekki
gert það í fimm ár og við erum enn saman svo
ég er sáttur og ætla ekkert að breyta því,“ segir
hann ákveðinn.
Barneignir ekki á dagskránni
Auddi er með margt í deiglunni en segist alltaf á
leiðinni í skóla þótt hann hafi ekki enn komið
sér í það. „Mér finnst mjög gaman að leika og
langar að mennta mig sem leikara. Vinnan er
bara svo skemmtileg að það er erfitt að kúpla sig
út og setjast á skólabekk,“ segir hann og bætir
við að hann myndi líklega halda til Bretlands
eða Bandaríkjanna þar sem enginn myndi
þekkja hann til að læra fagið. Hvort áhugi á frek-
ari frægð og frama í útlöndum blundi í honum
segir hann að það væri gaman að reyna fyrir sér.
„Það væri ekkert leiðinlegt að prófa Hollywood
en það eru kannski dálítið miklir draumórar.
Það er samt aldrei að vita hvað maður gerir.“
Auddi á sér sinn draumahrekk sem honum hefur
ekki enn tekist að framkvæma. „Mig langar að
hrekkja Björgólf yngri, það er draumurinn. Það
hefur hins vegar ekki tekist hingað til enda næst-
um jafn erfitt og að nálgast sjálfan páfann.“
Auddi segist ekki verða fyrir miklu áreiti vegna
frægðarinnar. Aðallega sé fólk að ræða við hann
um þáttinn á djamminu en það sé vanalega á
góðum nótum. Hann viðurkennir að hafa gaman
af því að kíkja út á lífið en að hann geri minna af
því í dag en áður fyrr. Hvort hann sé ekkert farið
að langa í rólegra fjölskyldulíf segist hann varla
geta eignast börn á meðan hann sé sjálfur barn.
„Ég heyrði þetta hjá einum gæja en held ég verði
að víkja frá þessari reglu því annars mun ég
aldrei eignast börn. Vonandi koma þau í fram-
tíðinni. Maður er umkringdur börnum vinanna
því Simmi, Jói, Sveppi og Pétur eru allir með
börn og spyrja mig reglulega hvort ég sé nokkuð
með vatnspung, svo ég er undir smá þrýstingi.
Barneignir eru samt ekkert á dagskránni.“
Þrátt fyrir að geta fíflast og grínast í sjónvarpi
viðurkennir Auddi að hann sé í rauninni feim-
inn, allavega við ókunnuga. „Ég er opinn og
kátur á mínum heimavelli en feiminn við fólk
sem ég þekki ekki og virðist því stundum hroka-
fullur,“ segir hann en bætir við að hrokinn sé
misskilinn. „Sjálfstraustið er í góðu lagi í því sem
ég er að gera, annars gæti ég líklega ekki unnið
þessa vinnu.“ Eins og flestir vita er Auddi frá
Sauðárkróki. Hvort hann gæti hugsað sér að
flytja aftur heim segir hann það ekki koma til
greina í nánustu framtíð. „Kannski í ellinni þegar
ég verð kominn með þrjú börn sem geta séð um
pylsuvagninn á meðan ég stjórna á bak við tjöld-
in,“ segir Auddi brosandi.
indiana@frettabladid.is
AUÐUNN BLÖNDAL SNÝR AFTUR Á SKJÁINN Á NÆSTUNNI ÞEGAR ÞÁTTURINN TEKINN HEFUR GÖNGU SÍNA.
AUDDI, SEM STEFNIR Á LEIKLISTARNÁM Í FRAMTÍÐINNI, SEGIST UNDIR ÞRÝSTINGI VARÐANDI BARNEIGNIR.
SÆT SAMAN Auddi vill lítið sem ekkert tjá sig um
ástina í lífi sínu en Lilja kærastan hans birtist í fyrri
þáttaröðinni af Tekinn. Hún verður þó ekki með í ár.
KÆRASTAN FJARRI GÓÐU GAMNI
AUÐUNN BLÖNDAL „Sjálfstraustið er í góðu lagi í því
sem ég er að gera, annars gæti ég líklega ekki
unnið þessa vinnu.” MYND/HÖRÐUR
„ÉG ER OPINN OG KÁTUR Á
MÍNUM HEIMAVELLI EN FEIMINN
VIÐ FÓLK SEM ÉG ÞEKKI EKKI
OG VIRÐIST ÞVÍ STUNDUM
HROKAFULLUR.“