Fréttablaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 70
Mikið gengur á hjá Lista-
safni Reykjavíkur þessa
dagana. Hafþór Yngva-
son og hans lið stendur í
ströngu; ekki færri en fjórar
sýningar eru á lokastigi,
þrjár bækur þeim tengdar
að koma út, og sú fyrsta
opnar í kvöld. Fyrir eru
tvær sýningar sem heimta
verðskuldaða athygli. Lista-
safn Reykjavíkur er enda
kraftmesta sýningastofnun
myndlistar í landinu.
Hafþór var gripinn á blaðamanna-
fundi í gær þar sem gengið var frá
samningi við Glitni, aðalstyrktar-
aðila yfirlitssýningar um feril
Gjörningaklúbbsins sem opnar í
kvöld í Hafnarhúsi. Hafþór hefur
lagt áherslu á þá stefnu í sýninga-
stjórn í hinum mörgu sölum Lista-
safnsins að auka hlut yngri mynd-
listarmanna og gera sýningar að
lifandi starfsvettvangi þeirra sem
eru í hvað mestu starfi í margvís-
legum birtingarmyndum þessi
dægrin.
. Þá er í vændum sýning á verka-
röð eftir Birgi Snæbjörn Birgisson
og Jóhannes Atli Hinriksson er með
innsetningu í D-salnum í Hafnar-
húsinu sem hefur verið lagður
undir yngstu kynslóðina. Þar verð-
ur Karlotta Blöndal með aðsetur í
nóvember á sama tíma og Margrét
Blöndal sýnir í aðalsölum hússins.
Þá er ógetið sýningar á lágmyndum
Helga Gíslasonar sem opnar líka 8.
september á Kjarvalsstöðum
Hafþór segir um stefnuna: „Þetta
er svo huglægt, það á ekki að vera
áþreifanlegt.. Það er ekki ungviðið
hér og hefðbundin list á Kjarvals-
stöðum. Erlendis eru söfn sem
sýna listamenn sem eru að berjast
við takmörkin, vilja brjótast út úr
viðjunum, vera með tilraunastarf-
semi. Fólk sem fer þangað hefur
áhuga á þeirri stemningu: hvað er
að gerast? Síðan,vill kannski sama
fólkið bara sjá vandaða sýningu í
öðrum söfnum vegna þess að það
vill sökkva sér niður í listina á
öðrum forsendum. Þetta gengur út
á að skapa tilfinningu frekar en að
eitt sé hér og annað þar.“
Um aðra helgi opna tvær aðrar
sýningar í sölum safnsins: yfirlits-
sýning á verkum Eggerts Péturs-
sonar, hins dáða málara, er á Kjar-
valsstöðum 8. september og er
styrkt af Landsbankanum, og í
Norðursal verður á sama tíma
opnuð sýningin Byggingarlist í
augnhæð. Báðum sýningunum
fylgja vandaðar bækur.
„Við erum búnir að gefa út
bækur sem tengjast sýningunum
hér: Þegar ég kom hingað sá ég að
það vantaði bækur hérna. Hingað
komu erlendir sýningarstjórar sem
vildu fá hugmynd um hvað væri að
gerast hérna og þær vantaði. Svo
ekki sé talað um íslenskan almenn-
ing. Það er feikileg vinna sem ligg-
ur að baki sýningum. Ólöf K. Sig-
urðardóttir er sýningarstjóri á
sýningu Eggerts og er búin að
vinna við hana í meira en ár. Eitt af
því sem safn þarf að gera er að
sinna rannsóknum og við gerum
það í beinum tengslum við sýning-
arnar, en það má ekki láta þá vinnu
tapast. Þess vegna verður að gefa
út rit um sýningarhaldið.
Við ætlum að safna saman gögn-
um um sýningarnar í D-salnum og
gefa út, vonandi fyrir Listahátíð í
vor, fyrstu bókina í þeirri röð.“
Sýning Eggerts er viðamikil. Verk-
in spanna allan feril Eggerts, frá
því hann tók þátt í starfi Suðurgötu
7 og til þessa dags. Málverk hans
af smágerðu landi undir fótum
okkar hafa lengi verið feikilega
eftirsótt enda fágætar smíðar á
striga.
„Það eru svo mörg handtökin við
að undirbúa sýningu, ekki bara að
færa verkin inn í safnið, tryggja
þau og það allt, heldur þarf líka að
búa til sýninguna. Það eru ekki
listamenn sem sýna í safninu held-
ur sýnir safnið verk þeirra. Það
eru ekki listamenn sem velja sín
verk, taka það sem til er á vinnu-
stofunni, heldur gengur sýningin
út á að finna einhverja hlið á mál-
unum. Sýna verkin í ákveðnu ljósi.
Það er hlutverk sýningarstjór-
anna,“ segir Hafþór.
Aðrir sýningarstjórar sem eru í
önnum þessi dægrin eru þau Mika
Hannula, Yean Fee Quay og Æsa
Sigurjónsdóttir, en það er Guja
Dögg Hauksdóttir deildarstjóri
byggingardeildar sem vinnur
Byggingarlist í augnhæð í Norður-
salnum.
Hún er eins og fyrri sýningar í
þeim sal einkum hugsuð fyrir börn
og er unnin í samstarfi við Arki-
tektafélag Íslands og Námsgagna-
stofnun. Gestum er boðið að upp-
lifa sýninguna á margvíslegan hátt
og geta sjálfir spreytt sig á að skapa
og hanna. Í tengslum við sýninguna
kemur út bók eftir Guju sem er
ætluð til fræðslu í byggingarlist.
„Hingað koma þúsundir skóla-
barna á hverju ári,“ segir Hafþór.
„Þau byrja á að skoða verk Kjar-
vals, næsta ár sýnum við þeim verk
Ásmundar og leiðum þau svo
lengra. Það verður að leiða fólk inn
í myndlistina. Skynjun á myndlist
er ekki sprottin af sjálfu sér, hún
er lærð. Ég vissi ekkert um bygg-
ingarlist fyrr en ég fór að læra um
hana og eftir það sá ég borgina sem
ég bjó í þá í nýju ljósi. Við þurfum
því að kenna fólki að njóta þeirrar
listar sem við bjóðum upp á.“
Ruglað saman reitum
Miðasala hefst
Miðasala og sala áskriftarkorta
á www.leikhusid.is eða í síma 551 1200
3. september
„Vits er þörf þeim er víða ratar“,
listaverk Finns Arnar Arnarssonar
myndlistarmanns, var valið til þess
að prýða Háskólatorg Háskóla
Íslands. Verkið er til minningar um
gjöf Vestur-Íslendinganna er stofn-
uðu Háskólasjóð Eimskipafélags
Íslands. Verkið verður staðsett í
keilu sem stendur upp úr þaki
Háskólatorgsins. Björgólfur Guð-
mundson, stjórnarformaður
Háskólasjóðs, greindi frá valinu.
Bygging Háskólatorgs er að hluta
fjármögnuð með framlagi Háskóla-
sjóðs sem stofnaður var með gjöf
Vestur-Íslendinga og er verkið til
minningar um þá gjöf.
Tillögu sína segir Finnur vísa til
þeirra sem um aldamótin 1900 fóru
vestur um haf, til Háskólans og
menntunar.
Finnur Arnar Arnarsson er fædd-
ur 1965. Hann nam við Myndlista-
og handíðaskóla Íslands. Hann á að
baki margar einkasýningar og sam-
sýningar heima og heiman,. Hann
starfar við kennslu í Listaháskóla
Íslands og margt fleira.
Finnur Arnar vann
ath kl. 22 á Nasa.
Bjöggi Gísla, Björn Thoroddsen,
Larry Coryell og fleiri gítarsnillingar
bregða á leik í kvöld. Sannnkölluð
gítarveisla sem verður ekki endur-
tekin. Skyldumæting fyrir luftgítar-
menn og þá sem kunna gripin.