Fréttablaðið - 31.08.2007, Qupperneq 72
Nýtt myndlistargallerí verður
opnað í Skólastræti 1 í dag. Gallerí-
ið hefur hlotið nafnið The Lost
Horse. Fyrsta sýningin er samsýn-
ing þeirra Gabríelu Friðriksdóttur,
Jóns Sæmundar Auðarsonar, Haf-
steins Michaels Guðmundssonar,
Davíðs Arnar Halldórssonar og
Tómasar Magnússonar.
„Þetta er eldgamalt hús sem var
byggt sem hesthús. Þegar menn
komu í kaupstaðarferðir til Reykja-
víkur var algengt að þeir yrðu ofur-
ölvi og týndu hestunum sínum. Til
að leysa vandamálið var þetta hús
byggt með pláss fyrir tíu hesta. Það
voru svo tveir menn sem fóru um
og sóttu hesta sem voru í reiðileysi
og sáu um þá þar til rann af eigend-
unum,“ segir Agnar Agnarsson,
annar eigenda gallerísins, um
ástæðuna fyrir nafngift gallerísins,
The Lost Horse, eða týndi hestur-
inn. Hægt verður að leigja út sýn-
ingarrými gallerísins og vinnustofu
sem er á bak við það. „Öllum er vel-
komið að sækja um að sýna hér en
við veljum hverjir fá að sýna, svo
sýningarnar samrýmist stefnu gall-
erísins.“
Sýningin á föstudag verður opnuð
kl. 19. Nánari upplýsingar má finna
á www.this.is/subaqua.
Týndi hesturinn
Margrét Hrafnsdóttir sópran og
Ólöf Sigursveinsdóttir sellóleikari
mynda saman „Aurora Borealis“.
Hafa þær unnið saman um nokkurt
skeið. Samstarfið byrjaði á lit-
skyggnusýningu Dieter Schweizer,
þar sem sýndar voru myndir frá
Sardiníu, en þar fluttu þær ítalskar
antíkaríur. Á litskyggnusýningu
Dieters með íslenskum myndum
tóku þær upp þráðinn með íslensk-
um þjóðlögum og við svo góðar mót-
tökur að ákveðið var að gera meira
úr. Í maí 2007 komu þær fram á opn-
unarhátíð íslenskra daga í Stuttgart
og af því tilefni var ákveðið að gefa
út geisladisk með íslenskum þjóð-
lögum sem nú er kominn út hjá 12
Tónum. Á disknum, Hjartahljóð,
styðjast þær stöllur við útsetningar
Jórunnar Viðar, Sigursveins D.
Kristinssonar og Hallgríms J. Jak-
obssonar. Í tilefni af útgáfu disksins
munu þær halda útgáfutónleika
föstudaginn 31. ágúst í vinnustofu
Hallsteins Sigurðssonar mynd-
höggvara að Ystaseli 37 sem er
óvanalegur og spennandi vettvang-
ur. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00 og
eru allir hjartanlega velkomnir.
Norðurljós í Ystaseli
28 29 30 31 1 2 3
Auglýsingasími
– Mest lesið
Föstudagskvöld 31. ágúst, kl. 22:00
Nasa
Iðnó
Föstudagskvöld 31. ágúst, kl. 20:00
Í kvöld:
Gítar
Larry Coryell
Bláir Söngvar
Bláir Skuggar
Björn Thoroddsen leiðir Gítargengið, alla kræfustu gítarleikara þjóðarinnar ásamt gítargoðsögninni
Larry Coryell. Algjört dúndur; þéttir hljómar og mikið fídbakk. Örn Árnason kynnir.
Bláir Söngvar/Bláir skuggar
Björn Thoroddsen, Larry Coryell og Gítargengið
Sigurður Flosason, saxófónleikarinn hugljúfi spilar glæný blúslög við texta Aðalsteins
Ásbergs Sigurðssonar. Flottur söngur Egils Ólafssonar og Ragnheiðar Gröndal ásamt
Kjartani Valdemarssyni og Matthíasi Hemstock.
Miðasala við innganginn og á www.midi.is
Allar upplýsingar um einstaka viðburði og
fl ytjendur á www.jazz.is
Jazzbíó kl.5
Í dag, föstudag í Tjarnarbíói. Sýnd
verður víðfræg heimildarmynd
Charlotte Zwerin: THELONIOUS
MONK - STRAIGHT NO CHASER.
Ókeypis fyrir þá sem keypt hafa miða á
atburði jazzhátíðar 2007
JAZZHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR 29. ÁGÚST - 1. SEPTEMBER 2007
ATH! Bre
ytt
staðsetn
ing
Siggi
Flosa
gengiðog
FO
RT
E
A
ug
lý
si
ng
as
to
fa
ALLIR ELSKA JAZZ!