Fréttablaðið - 31.08.2007, Page 82
420 7001 • lifsstill.net
Fylkir var mikið mun
betra liðið gegn HK í gær en fyrir
einskæran klaufaskap tókst
Árbæingum ekki að klára Kópa-
vogsliðið fyrr en ellefu mínútum
fyrir leikslok. Það þurfti þrumu-
fleyg frá Peter Gravesen til að
landa stigunum þremur sem
Fylkir átti svo sannarlega skilið
enda var HK ekki með í leiknum
fyrr en í síðari hálfleik.
„Við áttum ekkert skilið enda
byrjum við ekki fyrr en eftir
klukkutíma og það dugar ekki
gegn liði eins og Fylki,“ sagði
hundfúll markvörður HK, Gunn-
leifur Gunnleifsson, en hann varði
eins og berserkur og hélt HK-
ingum á floti nánast allan leikinn.
„Þetta var framhald af Fram-
leiknum. Ég skil ekki hvað við
erum að spá. Það er margt að sem
verður að laga fyrir KR-leikinn.“
Fylkir átti fyrri hálfleik með
húð og hári og Gunnleifur hafði
brjálað að gera allan hálfleikinn
við verjast stórskotahríð
Árbæinga. Hann réði þó ekki við
skot Gravesens á 39. mínútu er
Halldór lagði boltann laglega á
hann. Það var fjórtánda skot Fylk-
is í leiknum.
HK kom mun grimmara til síð-
ari hálfleiksins en það vantaði
ákveðinn slagkraft í sóknarleik-
inn. HK-ingar gáfust þó ekki upp
og Hermann var verðlaunaður
fyrir gott hlaup þegar hann náði
að skila boltanum í netið á fjær-
stöng en vörn Fylkis gleymdi að
hafa gætur á Hermanni sem var
einn á auðum sjó.
Það var síðan Gravesen sem
kláraði leikinn með einu falleg-
asta marki sumarsins, þrumufleyg
fyrir utan teig sem Gunnleifur átti
ekki möguleika á að verja.
„Ég get alveg játað að ég er
alveg búinn,“ sagði brosmildur
Páll Einarsson, en hann lék allan
leikinn í fremstu víglínu hjá Fylki
og átti frábæra spretti í síðari
hálfleik.
„Þrjú stig eru frábær hér í dag
en við áttum að klára þetta fyrr.
Nú erum við í hörkubaráttu um
þriðja sætið og við ætlum okkur
það,“ sagði Páll sem reiknar með
að vera klár í næsta leik þó svo
hann hafi verið ansi þreyttur í
gær.
Gravesen afgreiddi HK með stæl
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson
skoraði þrennnu í 5-1 stórsigri FH á
KR í Landsbankadeildinni í gær.
FH náði með því sex stiga og
þriggja marka forskoti á Val sem á
leik inni gegn Víkingum á
sunnudaginn. Það var
meistarabragur á FH-liðinu í gær,
það leysti vel úr martraðarbyrjun
og setti nú alla pressuna yfir á
Valsmenn.
KR-ingar höfðu ekki skorað í 482
mínútur í leikjum gegn KR fyrir
leikinn en það tók þá ekki nema tíu
skeúndur að bæta út því. Bjarnólfur
Lárusson skoraði þá stórglæsilegt
mark með viðstöðulausu skoti eftir
sendingu Sigmunds Kristjánssonar
og upphlaup Grétars Hjartarsonar.
FH-ingar voru steinsofnandi og það
hjálpaði örugglega ekki að FH-lagið
var í gangi hálfa sóknina þar sem
vallarstarfsmenn gleymdu að
slökkva á því þegar flautað var til
leiks.
KR-ingar byrjuðu leikinn af
miklum krafti og það skall oft hurð
nærri hælum upp við mark FH-
inga. Bjarnólfur Lárusson var allt í
öllu fyrstu tuttugu mínúturnar en
síðan var eins og hann springi á
limminu og í kjölfarið tók FH-liðið
yfir miðjuna með Ásgeir Gunnar
Ásgeirsson í fararbroddi. Ásgeir
skoraði tvö mörk með sjö mínútna
millibili og FH-liðið var búið að
vinna upp forgjöfina sem þeir
færðu botnliðinu í upphafi leiksins.
Fyrst fylgdi hann á eftir skoti
Guðmundar Sævarssonar og svo
kom hann með eitt af sínum frægu
hlaupum inn í teiginn af miðjunni
og nýtti sér að mislukkað skot
Davíðs Þórs Viðarssonar varð að
hinni bestu stoðsendingu. FH-ingar
skoruðu síðan þriðja markið á
aðeins ellefu mínútum þegar
Tommy Nielsen skallaði inn
hornspyrnu Tryggva
Guðmundssonar.
KR-liðið hélt áfram að skapa sér
færi og vesturbæingar voru
duglegir að láta vaða á markið en
þeir máttu sín lítils á miðjunni og
FH-ingar voru komnir með öll völd
síðustu mínúturnar í hálfleiknum.
Seinni hálfleikurinn var síðan
algjörlega í eigu FH-inga og KR-
ingar geta þakkað fyrir að
meistaranir bættu bara við tveimur
mörkum, fyrst Ásgeir Gunnar með
laglegu langskoti eftir
skallasendingu Davíðs Þórs
Viðarssonar og svo Sigurvin
Ólafsson með skalla eftir
aukaspyrnur Tryggva
Guðmundssonar sem var allt í öllu í
sóknaruppbyggingu FH-liðsins í
gær.
„Það er þvílíkt gaman að skora
þrennu, það er ekki það oft sem
maður skorar og hvað þá þrjú
mörk,“ sagði FH-ingurinn og
miðjumaðurinn Ásgeir Gunnar
Ásgeirsson sem varð fyrsti
leikmaður Landsbankadeildar
karla til þess að skora þrjú mörk í
sumar. „Þeir skora eftir 10 sekúndur
og það var áfall fyrir okkur. Við
hikstuðum þarna í byrjun en þegar
við komumst yfir þá var þetta
aldrei spurning. Við ætluðum að
svara þessu marki þeirra og
gerðum það með stæl,“ sagði Ásgeir
Gunnar sem átti frábæran leik og
gat vel bætt við mörkin sín þrjú.
„Mér finnst alltaf skemmtilegast
að spila í rigningu sérstaklega
þegar það er svona logn og á svona
góðum velli. Maður var að reyna að
stinga sér inn í teig og það gekk vel
í dag. Ég er réttfættur en setti samt
tvö með vinstri í dag. Þetta er einn
af bestu leikjunum á ferlinum
allavega miðað við mörkin,“ sagði
Ásgeir kátur í leikslok og bætti við.
„Nú er pressan á Val.“
Logi Ólafsson, þjálfari KR, var
ekki eins kátur. „Við höfðum þann
einlæga ásetning að fara með góða
samvisku í fríið sem framundan er
en ég held að menn hafi ekki góða
samvisku eftir þennan leik. Það eru
þýðingarmikil smáatriði sem eru
að klikka í okkar leik. Það var mjög
góð stemning í liðinu í upphafi leiks
og fyrir leikinn en þegar FH komst
yfir þá var eins og menn glötuðu
þeirri trú að hægt væri að vinna
þennan mun upp. Við reyndum í
fyrri hálfleik og náðum upp nokkuð
mikilli pressu en þetta fellur ekki
með okkur eins og oft áður í sumar,“
segir Logi og bætir við.
„Það er verk að vinna í þessu fríi.
Það er vonandi að menn láti þessa
rassskellingu sér að kenningu
verða,“ sagði Logi að lokum.
Mark Bjarnólfs Lárussonar eftir 10 sekúndur dugði KR-ingum skammt þegar FH-ingar rasskelltu þá 5-1 í
Kaplakrikanum í gær. KR-ingar sitja því sem fastast á botninum með fjórtán mörk í mínus.