Fréttablaðið - 21.10.2007, Page 8

Fréttablaðið - 21.10.2007, Page 8
greinar@frettabladid.is Á Alþingi Íslendinga hefur nú í fimmta sinn verið lagt fram frumvarp til laga um breytingu lagaákvæða sem varða sölu áfengis og tóbaks. Inntak frumvarpsins er að sala á léttvíni og bjór verður leyfð í almennum verslunum og verðlagning gefin frjáls. Fylgismenn frumvarpsins halda því fram að frelsisskerðing felist í að þurfa að kaupa vín í sérstökum verslunum sem reknar eru af íslenska ríkinu. Víninu (og bjórnum) er líkt við matvöru og spurt hvers vegna neytendum sé ekki treyst til að kaupa hvítvínið á sama stað og fiskurinn fæst og rauðvínið í ostabúðinni. Áhyggjur þingmannanna væru skiljanlegar ef fyrirkomulag áfengissölu væri vont á Íslandi en svo er alls ekki. Áhugafólk um eðalvín og aðra áfenga drykki á kost á að kaupa vín í nærri 50 vínbúðum um allt land sem mörgum hefur verið valinn staður í nágrenni við aðrar verslanir, til dæmis stórar matvöruverslan- ir. Í vínbúðunum er mikið úrval og þjónusta góð. Vínbúðirnar hafa þróast í takt við kröfur tímans, frá því að vera fáar og nokkuð vel faldar verslanir þar sem söluvarningurinn var afgreiddur yfir búð- arborð og viðskiptavinum gafst ekki einu sinni kostur á að taka sér númer. Ekki verður séð að það sé goðgá fyrir neytendur að fara í vín- búð til að kaupa vín, rétt eins og margir hafa ánægju af að fara í ostabúð til að kaupa ost og fiskbúð til að kaupa fisk. Vissulega er sá munur á að ríkið hefur einkasölu á áfengi og rekur því vínbúðirnar. Og hvers vegna er það? Það er vegna þess að áfengi er ekki eins og hver önnur neysluvara. Áfengi er vímu- efni og þar með ekki sambærilegt við annan varning sem seldur er í almennum verslunum, þótt óhollur sé. Sala áfengis hlýtur því að verða að lúta öðrum lögmálum. Landlæknir og forstöðumaður Lýðheilsustöðvar hafa báðir lýst andstöðu sinni við frumvarp þingmannanna. Sömuleiðis SÁÁ en sá félagsskapur hefur á ferli sínum safnað gríðarlegum upplýs- ingum um umfang áfengisvandans á Íslandi. Ljóst er að áfengisneysla er með stærstu heilsufars- og fjöl- skylduvandamálum á Íslandi. Það er í besta falli barnaskapur að ímynda sér að sala á léttvíni og bjór í matvöruverslunum breyti engu um það eða breyti því jafnvel til hins betra. Áfengismenning Íslendinga verður ekki eins og Ítala við það að gera íslenskum neytendum kleift að kaupa áfengi í almennum verslunum. Íslensk áfengismenning sver sig í ætt við menningu nágrannaþjóðanna þar sem reynslan sýnir beint samhengi milli aðgengis að áfengi og heilsufarslegra og samfélagslegra vandamála í tengslum við áfengisneyslu. Binda verður vonir við að þingmenn hlýði á ráð þeirra sem þekkja best umfang áfengisvandans og láti þau vega þyngra en röksemdir sem snúa að verslunarfrelsi. Óraunsæ áfengis- rómantík Áhyggjur þingmannanna væru skiljanlegar ef fyrir- komulag áfengissölu væri vont á Íslandi en svo er alls ekki. Á Ísland að sækjast eftir framlengingu á „íslenska ákvæðinu“ á næstu loftslagsráðstefnu? Skynsamlegt fyrir alla Ríkisstjórn Íslands lýsti því yfir fyrr á þessu ári að leitað yrði allra leiða til að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda um 50 til 75% fyrir árið 2050. Allir sjá að þetta markmið er mjög metnaðarfullt og stórkostlegur árangur ef það tækist. Mestu máli skiptir að virkja sem best saman markaðsöflin og hið opinbera til þess að atvinnulífið finni nýjar og betri leiðir til að framleiða vöru og þjónustu. Jafnframt á að nýta þá möguleika sem skógrækt og landgræðsla býður upp á ásamt því að við öll í okkar daglega lífi reynum að taka sem mest og best tillit til umhverfisins. Íslenska ákvæðið svokallaða er í sjálfum sér ekki sér íslenskt. Kýótó-bókunin fól í sér sérstakt ákvæði fyrir lítil hagkerfi, þ.e. þau hagkerfi sem losa minna en 0,05% af heildar koldíoxíðlosun iðnríkjanna árið 1990. Þetta ákvæði gerir smáríkjum kleift að halda stórum framkvæmdum sem leiða til meira en 5% aukningar á losun fyrir utan útstreymisbókhald sitt að því gefnu að nýtt sé endurnýjanleg orka, besta fáanlega tækni og sem mestu skiptir að notkun orkunnar leiði til samdráttar í losun á heimsvísu. Forsenda þess að ákvæðið fékk brautargengi er því fyrst og síðast sú að það er skynsamlegt og ábyrgt þegar horft er á loftslagsvandann í heild. Jafnframt er ljóst að loftslagsvandinn er hnattrænn og tilgangslaust að líta á hann með öðrum augum. Fyrir Ísland er það mikið hagsmunamál að halda til haga þessu sérstaka ákvæði. Efnahagslegt mikil- vægi þess er umtalsvert fyrir þjóðina, loftið er takmörkuð auðlind í alþjóðlegu samhengi og það væri því andstætt íslenskum hagsmunum að halda ekki fast við ákvæðið þegar haldið verður til Balí. Íslensk stjórnvöld geta síðan tekið um það sjálf- stæða ákvörðun hvort þau nýta þessar heimildir þegar til þess kemur. Nauðsynlegt er að gera sér skýra grein fyrir því að loftslagsvandinn verður ekki leystur á nokkrum árum. Þess vegna er stefnumörkun í þessum málum til margra áratuga. Gera má ráð fyrir að fram- leiðslutækni muni taka gríðarlegum breytingum á næstu áratugum og við sjáum til dæmis hversu mjög hratt bílaiðnaðurinn hefur breyst í átt til umhverfis- vænnra lausna. Meira að segja áliðnaðurinn er á fullu við þróa nýja tegund keramíkskauta, sem mun minnka útblástur til allra muna. Slíkar breytingar munu verða á flestum sviðum hagkerfisins. Svigrúm þeirra ríkja eða fyrirtækja sem geta framleitt með lítilli mengun með endurnýjanlegum orkugjöfum á að vera meira en hinna sem geta það ekki. Slík nálgun knýr hraðar fram jákvæða þróun í þessu mikilvæga máli. Íslensk mengun eða útlensk? Mörgum þótti það heldur öfugsnúið þegar íslenskum ráðamönnum tókst að semja um 10% aukinn mengunarkvóta í Kýótó árið 1997 á meðan flestar aðrar vestrænar þjóðir skuldbundu sig til að losa 5% minna af gróðurhúsalofttegundum en áður. Rökin voru þau að eftir því sem Íslendingar meng- uðu meira þá menguðu aðrir minna. Íslendingar hefðu þess vegna skyldu gagnvart umhverfinu til að menga eins mikið og þeir kæmust mögulega upp með. Og íslenskum umhverfisverndarsinnum fór að líða svolítið eins og í skáldsögu eftir George Orwell: Mengun er umhverfisvæn – sögðu ráðherrarnir – og umhverfisvernd er mengandi. Því miður byggðist þetta allt á meiriháttar misskiln- ingi á eðli Kýótó-bókunarinnar. Misskilningurinn er sá að Kýótó-samningurinn eigi að minnka heildarlos- un gróðurhúsalofttegunda. Í reynd fjallar bókunin aðeins um iðnríki líkt og Ísland, Þýskaland og Bandaríkin, en ekki um þróunarríki. Ástæðan er einfaldlega sú að allir eru sammála um að ekki sé hægt að banna þróunarríkjum að beita sömu aðferðum til að komast upp úr fátækt eins og vestræn iðnríki beittu á sínum tíma. En það kom ekki í veg fyrir að íslenskir ráðamenn hreyktu sér af því að hagvöxturinn af álvinnslunni kæmi í okkar hlut en ekki fátæku ríkjanna sem þurfa á henni að halda. En íslenska ákvæðið byggist ekki bara á misskilningi, heldur líka staðreyndavillum. Fyrsta staðreyndavillan er sú að orkufreki iðnaðurinn (t.d. áliðnaðurinn) sem nú er verið að byggja upp utan Vesturlanda sé yfirleitt knúinn með kolum og olíu. Eins og verkfræð- ingurinn og fyrrverandi umhverfisráðherrann Júlíus Sólnes benti á fyrir nokkru verða helstu álbræðslurn- ar sem nú eru fyrirhugaðar í þróunarlöndum heimsins einmitt knúnar með vatnsorku. Eini munurinn er sá að Íslendingar geta boðið „cheapest energy prices“ og þannig séð til þess að álfyrirtækin geti framleitt meira ál fyrir minni pening. Önnur staðreynd sem sjaldan er tekin með í reikning- inn er að álið sem brætt er hér á landi er ekki frá Reyðarfirði eða Straumsvík, heldur frá Ástralíu og Jamaíka. Óunnið ál, svokallað súrál, er sem sagt flutt hingað til lands og svo aftur til annarra fjarlægra landa þar sem álið er notað í lúxusvörur (aðallega gosdósir, nammibréf og þess háttar). Enn hefur ekki verið útskýrt hvers vegna losunin af þessum stórfelldu þungaflutningum eru ekki hluti af reikningsdæminu hjá íslenskum álverssinnum. Í desember fer fram ráðstefna á Balí þar sem Kýótó- samningurinn verður endurnýjaður. Eflaust munu einhverjir krefjast þess að Íslendingar endurtaki leikinn frá 1997, fari aftur niður á hné og biðji um að fá að menga aðeins meira til að bjarga umhverfinu. Við hin ætlum að einbeita okkur að því að hvetja þjóðir heims til að taka loftslagsvandann alvarlega og takmarka losunina eins og framast er unnt. Líka hér á landi. Því íslensk mengun er ekkert skárri en útlensk.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.